Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í ferðaþjónustunni varðandi veturinn er ákveðin bjartsýni ríkjandi í atvinnugreininni og telja forsvarsmenn flestra fyrirtækja að þau muni lifa COVID-19 ástandið af. Hér má sjá Goðafoss í vetrarbúningi.
Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í ferðaþjónustunni varðandi veturinn er ákveðin bjartsýni ríkjandi í atvinnugreininni og telja forsvarsmenn flestra fyrirtækja að þau muni lifa COVID-19 ástandið af. Hér má sjá Goðafoss í vetrarbúningi.
Mynd / Markaðsstofa Norðurlands
Fréttir 5. október 2020

Bjartsýni og kraftur ríkjandi en gera má ráð fyrir þungum vetri

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

„Það er ánægjulegt að sjá kraftinn og jákvæðnina sem kemur fram í þessari könnun, þrátt fyrir þá erfiðu stöðu sem er verið að vinna með. Ferðaþjónustuaðilar eru þrautseigir og tilbúnir að vinna með þau tækifæri sem gefast ásamt því að vera tilbúnir í að setja allt á fullt aftur um leið og færi gefst. Mikilvægt er að stjórnvöld styðji við greinina í gegnum næstu mánuði og vinni þannig með þessum aðilum að því að viðhalda kraftinum og möguleikunum á hraðri uppbyggingu á ný,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Stofan gerði á dögunum könnun á stöðu og horfum í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Meðal þess sem fram kemur í könnuninni er að meirihluti forsvarsmanna ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi telja að fyrirtæki þeirra muni komast í gegnum þá erfiðleika sem COVID-19 faraldurinn hefur orsakað.

Norðurland hefur um árabil verið vinsælasta svæði Íslendinga þegar kemur að vetrarferðum. Skíðaferðir eru ofarlega á blaði hjá mörgum.

Úrræði henta ekki

Könnunin er svipuð þeirri sem var gerð á vormánuðum, en tilgangurinn var að sjá hvort eitthvað hefði breyst hjá fyrirtækjunum síðan þá. Heilt yfir eru niðurstöðurnar svipaðar, en þó hefur orðið sú breyting að helmingi fleiri nýta nú hlutabótaleið stjórnvalda en gerðu það á vordögum. Engu að síður er tæplega helmingur fyrirtækja ekki að nýta úrræði stjórnvalda og meirihluti sagði ástæðuna vera þá að úrræði stjórnvalda henti þeim ekki.

Arnheiður segist ekki hafa fullnægjandi upplýsingar úr könnuninni hvers vegna aðeins rétt um helmingur fyrirtækja nýti sér þau úrræði sem stjórnvöld bjóði upp á. Það veki vissulega nokkra athygli hversu fáir nýti það sem í boði er af hálfu stjórnvalda. „Við sjáum að stór hluti lítilla fyrirtækja er ekki að nýta úrræðin. Það er mikilvægt að horfa sérstaklega á þennan hóp og skoða hvernig er hægt að koma til móts við hann. Að sama skapi verður að skoða aðstæður á ákveðnum svæðum þar sem eru miklir erfiðleikar og tryggja að ferðaþjónustan geti starfað af krafti eftir kórónuveirufaraldurinn,“ segir Arnheiður. „Við veltum því fyrir okkur hver ástæðan er, smæð fyrirtækja getur þar haft áhrif, árstíðasveifla eða kannski aðrar ástæður,“ segir hún.

Bjartsýni en ákveðnar blikur á lofti

Samt sem áður segir hún ákveðna bjartsýni ríkja í hópi forsvarsmanna ferðaþjónustufyrirtækja í lands-hlutanum og það viti á gott. Alls sögðu 76% aðspurðra að það væri líklegt eða mjög líklegt að fyrirtæki þeirra myndi lifa af það ástand sem hefur skapast vegna COVID-19. Þó hefur þeim fjölgað sem segjast í óvissu um hvort fyrirtækið verði opið næstu 12 mánuði. Í vor kváðust 8% svarenda í óvissu með hvort fyrirtækið yrði gangandi en nú hefur fjölgað í hópnum, 18% þeirra sem tóku þátt í könnuninni segjast nú vera í óvissu með hvort fyrirtæki verði opið. „Það eru greinilega ákveðnar blikur á lofti með veturinn,“ segir hún. „Mér sýnist að hann muni verða þungur, enda sést lítið af erlendum ferðamönnum.“

Gera má ráð fyrir að róðurinn verði þungur hjá ferðaþjónustunni á komandi vetri, enda sjást vart erlendir ferðamenn lengur. Hvítserkur mun áfram standa vaktina, ferðalöngum til ánægju.

Sumir loka, aðrir aðlaga vöruframboðið

Arnheiður segir að þegar hafi einhver fyrirtæki tekið ákvörðun um að loka þar til næsta vor en önnur hafi tækifæri á að ná til innlendra ferðamanna. „Norðurland hefur um árabil verið vinsælasta svæði Íslendinga þegar kemur að vetrarferðum og bendir reynslan í sumar til þess að við munum fá töluverðan fjölda í styttri ferðir þar sem fólk kemur á skíði og til þess að njóta menningar, afþreyingar, veitinga og góðrar þjónustu.“

Þá bendir hún á að ferðaþjónustufyrirtæki hafi í ríkum mæli aðlagað vöruframboð sitt í kjölfar breyttra aðstæðna, en rúmlega helmingur þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í könnuninni hafði gert breytingar á vöruframboði. Helstu breytingar snúa að verði, tilboðum, minna framboði, hætt var með ákveðna vöru og framboðið almennt lagað að því sem höfðar meira til Íslendinga. Það átti bæði við um matseðla veitingastaða og afþreyingu.

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...