Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Lukas Jokumssen er 22 ára Dani sem keypti í sumar Voðmúlastaði í Austur-Landeyjum.
Lukas Jokumssen er 22 ára Dani sem keypti í sumar Voðmúlastaði í Austur-Landeyjum.
Mynd / smh
Viðtal 13. janúar 2023

Ungur Dani kaupir Voðmúlastaði

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Lukas Jokumssen er 22 ára Dani , sem keypti í sumar kúabúið Voðmúlastaði í Austur-Landeyjum, af þeim Hlyni Snæ Theódórssyni og Guðlaugu Björk Guðlaugsdóttur.

Á Voðmúlastöðum hefur verið rekið myndarlegt kúabú, en á síðasta ári voru Voðmúlastaðir 10. nythæsta bú landsins, með 8.117 kíló eftir hverja árskú.

Bætt aðstaða

„Það gengur allt vel, núna er ég bara á fullu við að smíða 11 nýja bása inn í nýrra fjósið og var reyndar að flytja róbótann úr gamla fjósinu í það nýja.

Fjósin liggja saman en ég ætla að nota líka eldri hlutann og því þarf ég að uppfæra hann dálítið. Svo, eftir svona tíu ár, byggjum við kannski alveg nýtt og stórt fjós.

Svo eru verkefni fram undan í að laga aðstöðuna fyrir geldkýrnar,“ segir Lukas, sem segist ekkert hafa verið einmana á bænum á aðventunni.

„Það er góður friður hér til að vinna enda þarf ég að koma ýmsu í verk fyrir utan hefðbundin bústörf. Ég fékk reyndar föður minn í heimsókn um jólin sem hjálpaði til við að koma upp þessum básum.“

Lukas vann hörðum höndum að því að bæta ellefu básum við nýja fjósið þegar blaðamann bar að garði, enda ætlar hann að fjölga mjólkandi kúm upp í 60.

Í verklegu námi á Seljavöllum

Lukas kom til Íslands fyrir um tveimur árum til að taka verklega hlutann af búfræðinámi sínu í Danmörku. Hann dvaldi fyrst í hálft ár við nám á Seljavöllum í Hornafirði, snéri til Danmörku að því loknu til að ljúka búfræðinámi sínu en fór svo aftur á Seljavelli og starfaði þar í eitt ár. Hann segist ekki eiga neinar beinar rætur í landbúnaði í Danmörku en einhver ættmenni leggi þó stund á búskap.

„Ég hef alltaf haft áhuga á landbúnaði og stefnt að því að verða bóndi, en ég hef helst ekki viljað stunda hann í Danmörku. Það er svo rosalegt vesen,“ segir Lukas og vitnar til þess skrifræðis sem þar ríkir.

„Hér á Íslandi er ég kominn í frelsið og ég lendi oft í því að þurfa að útskýra fyrir bændum hér að þeir hafi það bara mjög gott, miðað við í Danmörku í það minnsta. Það er líka miklu auðveldara að hefja búskap hér.“

Á Voðmúlastöðum er Voðmúlastaðakapella, byggð 1946, og grafreitur. Þar var lengi kirkjusetur en það var lagt niður árið 1912. Lukas hefur tekið að sér umhirðu lóðarinnar, sem er í eigu þjóðkirkjunnar.

Markviss stækkun

Að sögn Lukasar fjármagnar hann kaupin á Voðmúlastöðum annars vegar með láni frá Byggðastofnun og hins vegar láni frá föður sínum, sem rekur verktakafyrirtæki í Danmörku.

Hann tók formlega við jörðinni í júlí og stefnir hann á að fjölga mjólkandi kúm á næstu misserum. Við yfirtökuna á búskapnum tók hann við 38 kúm frá fyrri eigendum, er kominn með 49 mjólkandi kýr núna en ætlar á næstu mánuðum að fjölga þeim upp í sextíu.

„Nytin hefur lækkað talsvert hér frá því að ég tók við, alveg niður í 23 lítra að meðaltali á kú yfir daginn frá um 28 lítrum þegar Hlynur og Guðlaug voru hér. Það er út af því að ég hef minnkað kjarnfóðurgjöf talsvert vegna þess hversu fóðrið hefur hækkað rosalega í verði. Ég á samt von á því að heildarútkoman verði góð hjá mér til lengri tíma litið – og að mjólkin verði í úrvalsflokki,“ segir hann.

Íslenskar kýr í of góðum holdum

Lukas hefur mjög ákveðnar skoðanir á kúabúskapnum og hvernig hann vill byggja upp sinn búrekstur. Ætlunin sé að bæta eitt og annað á næstu mánuðum og til dæmis verði vatnsdýnur fljótlega lagðar á 56 bása en hann áætlar að það eitt og sér ætti að getað skilað um tíu prósenta meiri nyt.

Hann segir að aðbúnaður og fóðrun mjólkurkúa verði lykilatriðin í átt að hámarksárangri til framtíðar í búrekstrinum á Voðmúlastöðum. Almennt segir hann að lykilatriðið sé að stilla orkufóðrun í hóf svo holdstigunarstig sé ákjósanlegt og líkaminn í jafnvægi, en hann telur að almennt séu gripir á kúabúum í of góðum holdum á Íslandi.

„Það er ekki gott, hvernig sem á það er litið, bæði vegna hættunnar á sjúkdómum og út af mjólkurframleiðslunni – ekki frekar en það er gott fyrir okkur mannfólkið,“ segir hann.

Fjárhundurinn Spori er á Voðmúlastöðum. Honum líkaði ekki lífið hjá fyrri eigendum í þéttbýlinu en kann mjög vel við sig hjá nautgripunum.

Jarðrækt á næsta ári

„Svo ætla ég að gera ýmislegt í jarðræktinni á næsta ári til að ná markmiðum mínum um aukna sjálfbærni í búrekstrinum. Ég ætla að fara í byggrækt og svo einnig að prófa baunaræktun, reyna að fá hana til að virka hér. Ég held það séu talsverðir möguleikar í slíkri ræktun og hún er einnig mjög hagkvæm. Það þarf ekki áburð fyrir hana og baunirnar eru góður próteingjafi. Ég hugsa ekki endilega um að framleiða sem allra mest af mjólk, heldur að gera framleiðsluna sem hagkvæmasta. En þetta snýst allt um að finna þetta fína jafnvægi í öllum þáttunum,“ segir hann.

Lukas er frá Mið-Jótlandi og á kærustu í Danmörku sem er þar við nám í félagsráðgjöf. Hann segir að hún sé sjálf ekki með mikinn áhuga á kúabúskap eins og er, en ætli að koma næsta haust á Voðmúlastaði og þá muni þau fara út í að byggja upp frekari ferðaþjónustu á bænum.

Hér sést heilsárshúsið sem er í útleigu á Airbnb, en stefnt er á að fjölga þeim í sex á næstu misserum.

„Hún hefur áhuga á því að vera hér í sveitinni og möguleikunum í ferðaþjónustunni. Við erum núna með eitt stórt heilsárshús hér sem þarf að sjá um og svo viljum við fjölga slíkum húsum upp í kannski sex. Það hefur gengið mjög vel að leigja þetta hús út, við höfum verið með það á Airbnb og haft ágætar tekjur af því frá lok júlímánaðar.“

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt