Þar sem birta er og ylur hvernig sem viðrar
Rekstur elsta elliheimilis hér á landi hefur staðið yfir síðan 29. október 1922 þegar steinhúsið Grund opnaði dyr sínar eldra fólki sem þurfti á aðhlynningu að halda.
Grund stóð þá vestan við Kaplaskjólsveginn, en brátt kom í ljós að húsrými var af skornum skammti miðað við þann fjölda sem bankaði upp á.
Var það fimm manna nefnd sem réðst í þau stórræði sem bygging nýs heimilis var, og mega eiga heiður af. Grund var fullgert eftir liðlega tveggja ára vinnu og stigu fyrstu vistmenn inn fyrir dyrnar í sumarlok árið 1930.
Hugmyndafræði Eden hrundið af stað
Í dag stendur Grund enn í Vesturbæ Reykjavíkur, stórt og reisulegt við Hringbraut 50. Heimilið er rekið undir hugmyndafræði Eden, sem hefur það að leiðarljósi að samfélag leggi áherslu á að viðhalda og efla lífsgæði einstaklinga sem njóta stuðnings við athafnir daglegs lífs. Unnið er gegn einmanaleika og vanmætti en að auki er lögð áhersla á að huga að vellíðan starfsfólks og aðstandenda.
Með það í huga var farið af stað með hönnun og smíði garðskála sem myndi gegna hlutverki kaffihúss Grundar, enda mikilvægt að hafa góða aðstöðu þar sem hægt er að setjast niður og spjalla með sínum nánustu. Í nóvembermánuði síðasta árs var svo kaffihúsið vígt, en fyrst um sinn var aðstaðan einungis opin heimilisfólki og aðstandendum þeirra. Sáu stjórnendur þó fyrir sér að ekki liði á löngu þar til að nágrannar þeirra í Vesturbænum gætu litið inn – og eins og hefur komið á daginn njóta þeir nú ilmandi veitinga við hin ýmsu tilefni.
Björt og smekkleg hönnun
Kaffihúsið, sem hlaut nafnið Mörk, er bjart og rúmgott, hannað af ASK arkitektum og í garðinum fyrir utan geta gestir notið listaverks eftir Helga Gíslason myndhöggvara. Stendur verkið í lítilli tjörn og úr því kemur rennandi vatn, sem ásamt torfþaki kaffihússins gefur notalega tengingu við ró og frið náttúrunnar. Leiksvæði fyrir börn er einnig fyrir utan og næsta víst að gestir af yngri kynslóðinni uni þar sér vel.
Nauðsyn mannlegra samskipta
Nú nýverið, um páskaleytið, sat þar stórsöngvarinn Jón Kr. Ólafsson sem var í heimsókn að vestan og naut sólargeislanna sem glæddust fram úr skýjunum. „Þetta er voðalega lekkert,“ segir Jón, sem pantaði sér svart te með mjólk. Hann hefur sterkar skoðanir á þeirri nauðsyn að bera sig eftir félagslegum samskiptum, enda einmanaleiki alvarleg heilbrigðis- og samfélagsvá. Jón bendir á að fólk verði að líta sér nær og reyna að hafa einhverja burði til að stíga út úr vítahring einangrunar, en ekki sitja heima innan þægindarammans. Þar kemur hugmyndafræði Eden inn í myndina, enda þjónar kaffihúsið nú að hluta til þeirri hugmynd að opna fyrir tengslamyndun mót einsemd og umkomuleysi.
Upplagt að gera sér dagamun
Kaffihúsið, sem er opið frá klukkan 13–17 daglega, býður upp á dýrindis smurbrauð, kökur, gos og kaffi og verður án efa dásamlegt að sitja úti við þegar nær dregur sumri og njóta veitinganna í sólskininu. Nægt rými er fyrir gesti í skálanum, sem er tengdur aðalbyggingunni, og vafalaust skemmtileg tilbreyting fyrir heimilisfólk á Grund að heimsækja kaffihúsið með vinum og vandamönnum.
