Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO
Fréttir 5. júlí 2019

Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO

Höfundur: Vilmundur Hansen

Vatnajökulsþjóðgarður er kominn á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi heimsminjanefndar UNESCO í Bakú í Aserbaídsjan í dag á grundvelli þess að þjóðgarðurinn hafi að geyma einstakar náttúruminjar. Þar með er staðfest að náttúra þjóðgarðsins og friðlandsins í Lónsöræfum teljist hafa einstakt gildi fyrir mannkynið.

Svæðið er einstakt á heimsvísu vegna sköpunarkrafta náttúrunnar, samspils elds og íss og þeirrar jarðfræðilegu fjölbreytni sem af því leiðir og er sýnileg á yfirborði þjóðgarðsins. Landsvæðið sem um ræðir er afar stórt og um 12% Íslands eru þannig komin á heimsminjaskrá UNESCO sem einstakar náttúruminjar.

Tillaga ríkisstjórnarinnar um að Vatnajökulsþjóðgarði yrði bætt á heimsminjaskrána var afhent skrifstofu heimsminjasamningsins í París í lok janúar 2018. Frá þeim tíma hefur tillagan verið til gaumgæfilegrar skoðunar og úttektar hjá Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökunum IUCN sem eru heimsminjanefndinni til aðstoðar við að meta heimsminjagildi, upprunaleika, heilleika og verndarstöðu staða sem tilnefndir eru á skrána vegna náttúrufars. Auk þess að vera viðurkenning á einstakri náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsvísu er ákvörðun heimsminjanefndarinnar viðurkenning á þeirri ákvörðun íslenskra stjórnvalda að stofna þennan víðfeðma þjóðgarð og mikilvægur stuðningur við verndun og stjórnun svæðisins.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Þetta er dýrmætt skref fyrir okkur Íslendinga sem án efa verður lyftistöng fyrir     svæðið og orðspor þess. Við berum ábyrgð á þessu stórbrotna landi, ekki aðeins fyrir okkur sjálf – heldur heiminn og framtíðina. Ég fagna þessum     mikilvæga áfanga og þakka þeim fjölmörgu sem unnið hafa ötullega að þessu markmiði undanfarin ár.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra: „Náttúra svæðisins sem nú fer inn á heimsminjaskrána er stórbrotin – með     ævintýralegum hraunmyndunum, svörtum söndum, fágætum gróðurvinjum, víðernum sem eiga sér fáa líka, minjum um stórkostleg hamfarahlaup     og jöklum sem geyma ótrúlega sögu og endurspegla um leið loftslagsvána. Afar óvenjulegt er að svo stór hluti lands sé á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta er sannarlega gleðidagur.“

Heimsminjasamningur Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um verndun menningar- og náttúruarfleifðar heimsins grundvallast á þeirri forsendu að ákveðnir staðir á jörðinni hafi sérstakt alþjóðlegt gildi og eigi sem slíkir að tilheyra sam¬eigin-legri arfleifð mannkynsins. Með samningnum viðurkenndu ríki nauðsyn verndunar þar sem það er talið skaða arfleifð allra þjóða heims ef einhver hluti hinnar menningarlegu eða náttúrulegu arfleifðar spillist eða hverfur. Ísland á þegar tvo staði á heimsminjaskránni, Þingvelli (2004) og Surtsey (2008). 

Tilnefning Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá UNESCO.

Skýrsla IUCN.

Kafli um Vatnajökulsþjóðgarð í skjali 43. fundar WHC.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...