Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Hofsós. Sveitarstjórnir munu leika lykilhlutverk í því endurreisnarstarfi sem mun þurfa að eiga sér stað á næstu misserum í kjölfar COVID-19 faraldursins.
Hofsós. Sveitarstjórnir munu leika lykilhlutverk í því endurreisnarstarfi sem mun þurfa að eiga sér stað á næstu misserum í kjölfar COVID-19 faraldursins.
Fréttir 8. júní 2020

Miklar áhyggjur af fjárhagsvanda sveitarfélaga eftir heimsfaraldurinn

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lýsir yfir miklum áhyggjum af áhrifum COVID-19 faraldursins á fjár­hagsstöðu sveitarfélaganna á starfssvæði samtakanna og þeim áhrifum á framlög úr Jöfnunar­sjóði sveitarfélaga sem ástandið mun hafa vegna versn­andi stöðu ríkissjóðs. Þetta kemur fram í bókun sem stjórn SSNV hefur sent Sigurði Inga Jóhanns­syni samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra. 
 
Ef litið er til nýlegrar greiningar Byggðastofnunar á áhrifum faraldursins  á sveitarfélög í landinu er ljóst að þau verða mikil. Lausafjárstaða og sjóðsstreymi sveitarfélaga mun breytast til hins verra. Tekjur munu dragast saman vegna breytts atvinnustigs með hruni ferðaþjónustunnar og afleiddra greina og þannig hafa áhrif á útsvarsstofn sveitarfélaga til lækkunar. Hafnargjöld munu víða dragast saman og gera má ráð fyrir auknum kostnaði við félagsaðstoð. Til viðbótar við framangreint eru mörg sveitarfélög að bregðast við ástandinu með ýmiss konar átaksverkefnum og flýta framkvæmdum með tilheyrandi auknum kostnaði. Allt þetta mun óhjákvæmilega leiða til aukinnar skuldsetningar sveitarfélaganna segir í bókun stjórnar SSNV. 
 
 Tekjur Jöfnunarsjóðs gætu dregist verulega saman
 
Í áðurnefndri greiningu Byggða­stofnunar kemur jafnframt fram að verði 10% samdráttur í skatttekjum ríkisjóðs gætu tekjur Jöfnunarsjóðs dregist saman um 4–5 milljarða sem hefur veruleg áhrif á rekstur sveitarfélaga í landinu. Sú skerðing til viðbótar við tekjuskerðingu vegna þeirra þátta sem nefndir voru hér að framan verður verulegt högg fyrir sveitarfélögin í landinu og til langs tíma leiða til þess að einhver sveitarfélög munu eiga í erfiðleikum með að halda úti lögbundinni þjónustu.
 
Mismikil áhrif á sveitarfélögin
 
Það er ljóst að áhrif ástandsins á sveitarfélögin munu verða mismikil. Án efa munu fjárhagserfiðleikar einhverra sveitarfélaga kalla á sértækar aðgerðir af hálfu ríkisins. Stjórn SSNV vill hins vegar benda á mikilvægi þess að gripið verði til almennra aðgerða vegna ástandsins sem klárlega hefur áhrif á öll sveitarfélögin í landinu. Að mati stjórnar SSNV er vænlegasta almenna aðgerðin að tryggja að ekki verði skerðing á framlögum úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaganna með því að veita viðbótarfjármagni til sjóðsins. Þannig verði tryggt að fyrirsjáanlegar sveiflur í tekjum sjóðsins vegna efnahagsástandsins muni ekki hafa áhrif á framlög til sveitarfélaganna.
 
 Sveitarfélög leika lykilhlutverk í endurreisnarstarfi
 
Skorað er á ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra og ríkisstjórnina alla að grípa til þessarar almennu aðgerðar til að styðja sveitarfélög í landinu öllu í að rækja sitt mikilvæga hlutverk í að komast yfir þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi. 
 
Samkvæmt skýrslu OECD um svæðabundin áhrif COVID-19 faraldursins munu sveitarstjórnir leika lykilhlutverk í því endur­reisnar­starfi sem mun þurfa að eiga sér stað á næstu misserum. Það er því gríðarlega mikilvægt að sveitarfélögin hafi til þess fjárhagslega burði og þar eru framlög Jöfnunarsjóðs mikilvægur þáttur. Þau framlög mega ekki skerðast eigi sveitarfélögin að geta rækt hlutverk sitt í endurreisninni og haldið úti nauðsynlegri þjónustu fyrir íbúa.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...