Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra, Brynja Davíðsdóttir ráðgjafi, Ragnhildur Helga Jónsdóttir, safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands, og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra, Brynja Davíðsdóttir ráðgjafi, Ragnhildur Helga Jónsdóttir, safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands, og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.
Mynd / Rósa Björk Jónsdóttir – LbhÍ
Fréttir 13. maí 2019

Hlaða Halldórsfjóss hýsir fræðslusýningu fuglafriðlandsins

Höfundur: smh
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra opnaði fyrsta áfanga Gestastofu friðlands fugla í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri síðasta vetrardag, 24. apríl, og staðfesti verndaráætlun svæðisins. Í þessum áfanga er gert ráð fyrir fræðslusýningu um fuglafriðlandið í Andakíl, sem komið var á árið 2011, og þýðingu þess. 
 
Ragnhildur Helga Jónsdóttir er safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands og í ávarpi hennar við opnun Gestastofuáfangans kom fram að henni þætti vera ákveðinn sjarmi yfir því að hlaða Halldórsfjóss hýsti Gestastofuna – því hún ætti sér sögulega tengingu við nýtingu landsins í kringum hana. 
 
„Hér var vetrarforðinn af þessum miklu engjum hér fyrir neðan og síðar túnunum úti á mýrunum til suðausturs varðveittur, þannig að kýr skólans gætu lifað veturinn af. Og það er líka góð tenging að í ár eru 130 ár frá því að búnaðarfræðsla hófst hér á Hvanneyri og því er ágætt að geta komið formi utan um næsta þrep í fræðslustarfsemi hér á stað.“
 
 
Hún sagði að langþráðu marki væri náð en öllum mætti vera ljóst að einungis lítið skref væri nú stigið á þeirri leið sem vonast væri eftir að vera farin á næstu árum. Einhvers staðar þurfi að byrja og rétt væri að grípa tækifærið til að gleðjast saman.
 
Um leið og formleg opnun fyrsta áfanga er orðin að veruleika eru lögð drög að öðrum áfanga. Gengið var formlega frá ráðningu Brynju Davíðsdóttur náttúru- og umhverfisfræðings um ráðgjöf við næsta áfanga á viðburðinum síðasta vetrardag.
 
Fyrsti áfangi Gestastofunnar hefur notið styrkja, meðal annars frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands, umhverfisráðuneyti, Borgarbyggð og Skorradalshreppi.  
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...