Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Landnámshænur í Hlésey undir Akrafjalli.
Landnámshænur í Hlésey undir Akrafjalli.
Mynd / Jóhanna Harðardóttir
Fréttir 17. desember 2020

Fyrsta húsdýrið á Norðurlöndum sem fær að bera rauða snigilinn

Höfundur: smh

Íslenska landnámshænan hefur verið samþykkt inn í verkefni Slow Food-hreyfingarinnar sem heitir Presidia. Ræktendur hennar hjá Eigenda- og ræktendafélagi landnámshænsna (ERL) munu fá leyfi til að merkja sínar vörur með rauða sniglinum, einkennismerki Slow Food-hreyfingarinnar, og er íslenska landnámshænan þar með fyrsta húsdýrið á Norðurlöndum sem hlotnast sá heiður.

Presidia er verndarverkefni Slow Food fyrir matvæli og/eða framleiðslu sem er í hættu á að leggjast af. Í Presidia-verkefnum er unnið í hópum smáframleiðenda sem vinna að framleiðslu gæðaafurða með menningargildi og verndun þeirra. Fyrir í því verkefni eru „íslenska skyrið“ og „íslenska geitin“, en ekki hefur fengist leyfi til að nota snigilinn á þær vörur enn. Unnið er að því fá slík leyfi og er reiknað með að það gerist fljótlega eftir áramót.

Saga ræktendanna sögð á umbúðunum

Dominique Plédel Jónsson, ritari Slow Food Reykjavíkur og fyrrverandi formaður, hefur unnið að þessum áfanga ásamt dr. Ólafi Dýrmundssyni, fyrrverandi ráðunauti Bændasamtaka Íslands, og Jóhönnu Harðardóttur, formanni ERL. Dominique er einnig núverandi formaður Slow Food á Norðurlöndunum og segir hún að nokkuð ströng framleiðsluskilyrði séu fyrir leyfinu fyrir því að fá að bera merki Slow Food. „Á umbúðum landnámseggjanna verður eins konar sögumiði, þar sem sagan á bak við hvern ræktanda er sögð. 

Jóhanna hefur verið frábær leiðtogi í þessari vinnu og Ólafur frábær ráðgjafi. Við fengum styrk frá Erfðanefnd landbúnaðarins sem hefur gert okkur kleift að vinna þetta verkefni sem var mjõg umfangsmikið. 

Við erum nú að vinna það sama fyrir geitina og hefðbundið íslenskt skyr, svo ræktendur og framleiðendur geti líka haft sams konar sögumiða á sínum vörum og Slow Food-merkið á sínum afurðum.

Bjartsýnir ræktendur landnámshænsna

Jóhanna segir spennandi tíma fram undan í samstarfi Slow Food og félagsins. „Við sem eigum landnámshænur erum afar bjartsýnt og þrautseigt lið eins og sést á því að við höfum haldið uppi starfinu síðan 2003. Við höfum unnið hörðum höndum að því að varðveita erfðamengi hennar og þjappa eigendum og ræktendum saman í þeirri viðleitni að halda stofninum í rækt, varna erfðablöndun í stofninn og styðja við bakið á ræktendunum við að koma sér upp landnámshænum, hýsa þær, fóðra og fjölga með sem bestum árangri. Hér á landi er stór hópur fólks sem leggur mikinn metnað í að halda þessar hænur og vegur þeirra hefur líka farið vaxandi víða erlendis, eins og á Norðurlöndum, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Kanada og víðar.

Þetta hefur gengið ótrúlega vel og smátt og smátt stækkar hópur þeirra sem fær sér landnámshænur í lausagöngu og hefur af því mikla ánægju, auk þess að njóta sérstaklega góðra eggja sem þær gefa af sér við þessi skilyrði. Hænurnar gefa ekki aðeins af sér góð egg heldur eru þær frábær heimilisdýr, skrautlegar, mannelskar og stórskemmtilegir og mismunandi karakterar eins og mörg önnur íslensk húsdýr,“ segir Jóhanna.

Heimsókn Slow Food í Hlésey. Hjónin Sigurður Ingólfsson, Jóhanna Harðardóttir, Ólafur Dýrmundsson, Elisa Demichelis, sem vinnur með Slow Food-hreyfingunni á Norðurlöndunum, Dominique Plédel Jónssson, Piero Sardo og Eirný Sigurðardóttir, sem var í stjórn Slow Food Reykjavík. Mynd / Skessuhorn

Fyrsta húsdýrið á Norðurlöndunum

Piero Sardo, forstöðumaður stofnunar Slow Food um líffræðilega fjölbreytni og einn af stofnendum Slow Food-hreyfingarinnar, var í hópi fólks sem heimsótti Jóhönnu fyrir nokkrum árum á bæinn Hlésey undir Akrafjalli. „Þau sáu hænurnar mínar og fengu eggjamorgunverð og í framhaldi af því fæddist sú hugmynd að reyna að komast í samstarf við Slow Food International þó ekki væri nema til að vernda stofninn, því hann er svo sannarlega þess virði að halda honum lifandi, ekki bara vegna erfðaefnisins heldur líka vegna menningarverðmæta hans.

Þetta gekk sumsé eftir og ekki bara það, heldur hefur landnámshænunni hlotnast sá einstaki heiður að vera fyrsta húsdýrið á Norðurlöndum sem fær að flagga merki Slow Food – rauða sniglinum í gegnum félagið ERL sem heldur utan um verkefnið fyrir hönd Slow Food.

Þessi vegtylla á eftir að verða ERL mikil stuðningur í starfi sínu til verndar stofninum

Íslenskir neytendur hugsa mikið um budduna í matarinnkaupum, en minna um gæði og vistspor. Það að halda lausagönguhænur sem lifa á lífrænu fóðri og við góðan húskost og lífsrými er hlutfallslega mun kostnaðarsamara pr egg en að reka verksmiðjubú og hingað til hefur það ekki skilað sér til framleiðendanna.

En á móti kemur að þessi egg eru einfaldlega allt öðruvísi og mun betri og það vita þeir sem byrja að neyta þeirra,“ segir Jóhanna.

Hún bætir því við að viðurkenningin eigi vonandi eftir að leiða til þess að neytendur eigi eftir að gera sér betur grein fyrir að það er munur á eggjategundum og að það sé hægt að borga meira fyrir slíka fyrsta flokks vöru og góða meðferð húsdýra.

Lítil ummerki varnarefna í lofti yfir Íslandi
Fréttir 10. nóvember 2025

Lítil ummerki varnarefna í lofti yfir Íslandi

Veðurstofan hefur vaktað ýmis efni í úrkomu og lofti á Stórhöfða í Vestmannaeyju...

Hörð andstaða gegn breytingum í samkeppnisátt
Fréttir 10. nóvember 2025

Hörð andstaða gegn breytingum í samkeppnisátt

Umsagnarferli um umdeild frumvarpsdrög þar sem breyta á búvörulögum, lauk 24. ok...

Raflínunefnd umdeild
Fréttir 10. nóvember 2025

Raflínunefnd umdeild

Sveitarfélög og hagsmunasamtök landeigenda hafa gagnrýnt fyrirhugaða stofnun raf...

Auknar rekstrartekjur RML
Fréttir 10. nóvember 2025

Auknar rekstrartekjur RML

Stjórn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) hélt ársfund í Borgarnesi til þe...

Ísland verði í leiðandi hlutverki
Fréttir 10. nóvember 2025

Ísland verði í leiðandi hlutverki

Stefnumótunarvinna hefur verið sett í gang um framtíð jarðhitanýtingar á Íslandi...

Munu sækjast eftir nýju blóðtökuleyfi
Fréttir 10. nóvember 2025

Munu sækjast eftir nýju blóðtökuleyfi

Forsvarsmenn Ísteka ehf. hafa hug á að sækja um nýtt leyfi til blóðtöku úr fylfu...

Umdeildir virkjanakostir í biðflokk
Fréttir 10. nóvember 2025

Umdeildir virkjanakostir í biðflokk

Jóhann Páll Jóhannsson vill Kjalölduveitu og virkjanakosti í Héraðsvötnum, það e...

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði
Fréttir 7. nóvember 2025

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði, sem hluti af nýjum áherslum og forgang...