Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Framkvæmdastjóri LM ásamt stjórn LM, varaformanni LH og forsvarsfólki hestamannafélagsins Skagfirðings á mótssvæðinu á Hólum.
Framkvæmdastjóri LM ásamt stjórn LM, varaformanni LH og forsvarsfólki hestamannafélagsins Skagfirðings á mótssvæðinu á Hólum.
Fréttir 1. júní 2016

Framkvæmdir við Landsmót á Hólum á lokastigi

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
„Hér er allt á réttri leið og nú tekur við vinna við lokafrágang. Við erum í góðum gír og sannfærð um að mótið verði mjög gott,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna, sem fram fer á Hólum í Hjaltadal í lok júní.
 
Heiðar segir að nú um helgina hafi skólahaldi í Háskólanum á Hólum lokið og í kjölfarið allt farið á fullt í þeim framkvæmdum sem ljúka þarf áður en blásið verði til landsmóts. Mannvirkjanefnd LH var í heimsókn á Hólum fyrr í vikunni og tók svæðið formlega út fyrir hönd LH. „Nefndin lýsti yfir ánægju sinni með svæðið og hvernig til hefði tekist með uppbyggingu. Nú tekur við lokafrágangur, það er eitt og annað eftir sem við erum á fullu í að framkvæma núna, en allt er samkvæmt áætlun,“ segir hann.
 
Um liðna helgi voru haldin mót á Hólum, bæði á vegum háskólans og eins heimamanna og komu vellirnir vel út að sögn Heiðars. „Knaparnir voru ánægðir með vellina og við erum auðvitað í skýjunum yfir því,“ segir hann. 
 
Bæta við tjaldstæðum
 
Fyrir liggur á næstu dögum að vinna við lagnir á svæðinu, m.a. rafmagns- og vatnslagnir sem og ljósleiðara og eins verður bætt við tjaldsvæðum, en þau 300 tjaldstæði sem í boði voru með rafmagni seldust upp á skömmum tíma. „Við ætlum að bæta við stæðum, eftirspurnin er mikil,“ segir Heiðar. Ferðaskrifstofan North West Adventures heldur utan um gistirými í Skagafirði í kringum mótið og mjög vel hefur gengið að selja það.
 
Jákvæðar og góðar viðtökur
 
„Miðasala hefur farið fram úr væntingum, við erum þegar búin að selja um 4.000 miða í forsölu og líklega hafa aldrei jafnmargir miðar verið seldir á landsmót miðað við árstíma, það er allur júnímánuður eftir í sölu og yfirleitt fer drjúgt út á þeim tíma,“ segir Heiðar. Forsölu lýkur 15. júní en eftir þann tíma gildir sama miðaverð og í hliði. Enn er því tækifæri á að kaupa miða á landsmót á góðu verði. „Við þurfum svo sannarlega ekki að kvarta yfir viðtökum, þær hafa verið mjög jákvæðar og góðar.“
Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...