Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Páll Ólafsson, garðyrkjubóndi á Hveravöllum í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu.
Páll Ólafsson, garðyrkjubóndi á Hveravöllum í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu.
Fréttir 9. maí 2018

Algerlega galin verðlagning

Höfundur: Vilmundur Hansen

Garðyrkjubændum í dreifbýli sem nota rafmagnslýsingu við ræktun svíður mörgum undan rafmagnsreikningnum enda borga þeir mun meira fyrir dreifingu á hverri kílóvattstund en íbúar í þéttbýli.

„Ég nota meira rafmagn til ræktunar en Þórshöfn og Raufarhöfn til húshitunar,“ segir Páll Ólafsson, garðyrkjubóndi á Hveravöllum í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu, en samt sem áður er ég að borga fyrir dreifbýlisdreifingu á rafmagni sem er miklu dýrari en þéttbýlisdreifingin.“

Páll segir að ef garðyrkjustöðin væri í þéttbýliskjarna sem teldi nokkra tugi íbúa þyrfti hann að borga mun minna fyrir rafmagnið en hann gerir í dag.

„Þetta er náttúrlega alveg galið á sama tíma og stjórnvöld eru að tala um landsbyggðarstefnu og söluaðili rafmagnsins er ríkisfyrirtæki. Orð og efndir eru því tvennt ólíkt í þessu tilfelli.“

Spara rafmagnið eins og hægt er

Að sögn Páls hefur hann dregið úr raforkunotkun eins og hann mögulega getur án þess að valda tjóni á uppskerunni. „Ég reyni að spara rafmagnið eins og mögulegt er en svo verður einfaldlega að gera dæmið upp og sjá hvort það gengur upp eða ekki.

Ég vil trúa því að það verði einhver breyting á þessu í nánustu framtíð og að starfshópurinn sem iðnaðarráðherra skipaði fyrir skömmu komi til með að taka á þessu máli.

Ég er samt hræddur um að greiðslubyrðin hjá mörgum sé nú þegar orðin það mikil, sér í lagi minni framleiðendum, að þeim blæði hratt út verði ekkert að gert fljótlega,“ segir Páll.

Hækkanirnar éta upp niðurgreiðslurnar

„Verð á raforku hefur hækkað eitthvað en flutningskostnaðurinn sérstaklega. Mig minnir að flutningskostnaðurinn hjá RARIK hafi verið tæpar 4 krónur árið 2014 á hverja kílóvattstund en í dag er það 5,98 krónur fyrir hverja kílóvattstund.

Upphæðin í niðurgreiðslusjóði raforku til garðyrkjubænda vegna lýsingar er 270 milljónir og þegar flutningurinn hækkar svona mikið étur það sjóðinn upp.

Ef ég skil gjaldskrá RARIK rétt þá mundi ég borga 2,5 krónur fyrir kílóvattstundina ef ég væri í þéttbýli en þar sem ég bý í dreifbýli borga ég 5,98 krónur fyrir hverja kílóvattstund. Á móti kemur dreifbýlisjöfnunargjald upp á 1,8 krónur. Ég er því að borga, þegar upp er staðið, næstum því tvisvar sinnum meira fyrir dreifinguna en ef starfsemin væri í þéttbýli,“ segir Páll.

Rukkaður um sér álag

„Ég bý átta kílómetra frá Laxárvirkjun og nýja Þeistareykjavirkjunin er hér rétt fyrir ofan mig og Krafla ekki í nema 60 kílómetra fjarlægð.  Hugsaðu þér vitleysuna, ég nota milli sjö og átta milljón kílóvattstundir á ári og RARIK rukkar mig um sérstakt álag vegna flutningsins.

Mér finnst að ríkisrekið einokunarfyrirtæki eins og RARIK eigi að geta rökstutt gjaldskrána sína betur en þeir gera í dag, ekki síst þegar hugsað er til þess að rafmagnið verður til úti á landi.“

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...