Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Hlynur Gauti Sigurðsson, Hjörtur Bergmann Jónsson, Eymundur Magnússon, Bjarni G. Björgvinsson og Jóhann
Gísli Jóhannsson stilla sér upp við kyndiaðstöðuna á Vallanesi.
Hlynur Gauti Sigurðsson, Hjörtur Bergmann Jónsson, Eymundur Magnússon, Bjarni G. Björgvinsson og Jóhann Gísli Jóhannsson stilla sér upp við kyndiaðstöðuna á Vallanesi.
Mynd / Eygló Björk Ólafsdóttir
Af vettvangi Bændasamtakana 20. maí 2024

Skógræktin tryggði búsetu

Höfundur: Hlynur Gauti Sigurðsson

Skógar íslenskra bænda dafna vítt og breitt um landið. Engum sem þá þekkja dylst lengur ágæti og ávinningur skóganna.

Skipulögð ríkisstudd skógrækt á lögbýlum hófst 1991 á innanverðu Fljótsdalshéraði (Hérað) með Héraðsskógum, verkefni sem var ýtt úr vör fyrst og fremst til að koma
í veg fyrir að búseta í sveitinni legðist af sökum niðurskurðar á sauðfé vegna riðuveiki. Lagt var upp með að bjóða bændum að rækta skóg í landi sínu. Tignarlegur Hallormsstaðarskógur gaf bændum kjark um árangur skógræktarinnar. Bændur hófu gróðursetningar af krafti og í dag, um þremur áratugum síðar, er Hérað ein blómlegasta og byggilegasta sveit landsins.

Dagana 18.–19. apríl fór formaður stjórnar búgreinadeildar skógarbænda hjá BÍ, Hjörtur Bergmann Jónsson, ásamt stjórnarmanninum Bjarna G. Björgvinssyni, fyrrum formanni, Jóhanni Gísla Jóhannssyni og undirrituðum í ferð um Hérað. Um árabil hafa aðalskrifstofur Skógræktarinnar verið á Egilsstöðum, eða alveg fram að síðustu áramótum við stofnun Lands og skógar.

Formenn skógarbænda á landsvísu samankomnir. F.v. Hjörtur Bergmann Jónsson, núverandi formaður búgreinadeildar skógarbænda hjá BÍ, Edda Björnsdóttir, fyrsti formaður Landssamtaka skógareigenda og Jóhann Gísli Jóhannsson, sem hefur gegnt báðum stöðum.

Heimsóttir voru vel valdir staðir með það að markmiði að skilja forsendur bændaskógræktar í fortíð, nútíð og ekki síst, framtíð. Skógar á ýmsum aldri teygja sig vítt og breitt um sveitina og skógarhögg er hafið á nokkrum jörðum.

Uppistaða skóganna er lerki og má vel sjá að grisjunar er þörf á mörgum bæjum.

Á jörðinni Víðivellir ytri 2 hefur verið komið upp einni afkastamestu viðarvinnslu landsins. Þar er fyrirtækið Skógarafurðir sem hefur vaxið örugglega á þeim áratug sem það hefur verið starfandi, enda bæði mikil eftirspurn eftir íslenskum viði og framboð timburs úr skógunum eykst ár frá ári. Þegar föruneytið bar að garði stóð yfir sögun á ösp sem ætluð var í utanhússklæðningu á gistiheimili í Vallanesi (betur verður komið að því hér síðar). Bjarki Jónsson, skógarbóndi og framkvæmdastjóri, sýndi allar nýjustu græjurnar á staðnum og voru þær af ólíkum stærðum og gerðum, svo sem háhraða stórviðarsagir, þurrkgámar, eldstæði, fræsarar og sagpressa. Með þessum búnaði er hægt að ná góðum afköstum í framleiðslu á pallaefni, panil, arinviði, og því nýjasta, ylkubbum. Óhætt er að segja að hugmyndirnar eru margar hjá ört stækkandi fyrirtæki og áhugavert verður að sjá fyrirtækið þróast inn í framtíðina.

Á næstu jörð, Víðivöllum ytri 1, er að finna annars konar viðarvinnslu en hjá nágrannanum. Þar fór Hörður Guðmundsson, skógarbóndi og þúsundþjalasmiður, yfir ýmislegt sem hann er að brasa úr efni skógarins. Mest fer fyrir framleiðslu á lerkistaurum. Fyrir um sex árum keypti hann fræsara og hefur eftirspurn girðingarstaura aukist ofboðslega ár frá ári. Nú hefur hann fengið annan fræsara og ætti sú búbót að halda í við eftirspurnina. Nýjasta græjan í flotanum er skífuvél sem lengst af var starfrækt á Flúðum og síðast í Eyjafirði. Hörður framleiðir einnig lífkol en þau eru eftirsóknarverður jarðvegsbætir fyrir t.d. tún. Þessir þrír vöruflokkar falla vel hver að öðrum þar sem hráefnið nýtist fullkomlega.

Hörður sýnir Hirti og Jóhanni Gísla glænýjar lerkiskífur.

Á Eskifirði er Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrabretta, að framleiða viðarperlur. Í upphafi var lögð höfuðáhersla á að fullnýta aflögð vörubretti en með aukinni grisjun í skógum á Héraði hefur opnast markaður fyrir viðarperlur úr íslensku lerki. Hráefnið er aðallega lakara efnið úr grisjunum sem síður hentar til flettingar. Viðarperlur úr lerki eru olíumettaðri en þekkist í perlum víða í Evrópu og eru fyrir vikið orkuríkari. Tandrabretti framleiðir viðarperlur undir merkinu Ilmur auk þess að hafa umboð fyrir viðarofna sem knúnir eru viðarperlum. Viðarofnar og nýting viðar er sjaldnast nefnt í samhengi orkuskipta en hún hentar mjög vel fyrir svokölluð „köld svæði“ víða um land. Ofnar Tandrabrettis hafa gefið góða raun, t.d. í skóla- og íþróttamannvirkjum í Neskaupstað og í Végarði, húsnæði sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps.

Í Vallanesi búa hjónin Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir. Undir merkjum fyrirtækis síns, Móðir jörð, hafa þau getið sér gott orð fyrir lífræna ræktun og má finna ýmsa gómsæta vöruflokka frá þeim í búðarhillum landsmanna. Án stórvaxinna skjólbelta og skóga sem umlykja jörðina á alla kanta er ólíklegt að ræktun væri jafn árangursrík og raun ber vitni. Ræktunarskilyrðin hafa batnað svo mjög að hægt er að líkja því við að landareignin hafi færst nokkuð suður á bóginn því veðurskilyrði eru einfaldlega allt önnur nú en þau voru áður. Nýverið fengu þau fellda aðra hverja ösp innan úr einu stóru skjólbelti í Vallanesi. Þau báðu Skógarafurðir að saga timbrið í fjalir og voru í óðaönn að klæða nýtt gistiheimili með viðnum. Í Vallanesi stendur veitingahús sem byggt er úr heimafenginni ösp og gengur húsið undir nafninu Asparhúsið. Þau hafa keypt tvo ofna hjá Tandrabretti sem mata má bæði með viðarperlum og kurli. Með tilkomu ofnanna munu þau geta nýtt umfram grisjunarvið síns eigin skógar til að hita allan húsakost á jörðinni og eru gróðurhúsin þar með talin.

Húsakynni sveitarstjórnarskrifstofu Fljótsdalshrepps hafa í yfir fimm ár verið hituð með viðarperlum frá Ilmi. Sveitarstjóri Fljótsdalshrepps, Helgi Gíslason, var á árum áður fyrsti framkvæmdastjóri Héraðsskóga. Hann hefur fylgst með trjánum vaxa á Héraði í gegnum árin og segir að bændaskógræktin hafi fært sveitinni nýtt og búsældarlegra líf. Sauðfjárbændur og kúabændur beita búpeningi í skógana sína glaðir í bragði. Búseta hefur haldist í sveitinni og ef til vill braggast.

Heilsusamlegir útivistarmöguleikar eru í skógunum á Héraði fyrir íbúa og gesti á Egilsstöðum, allan ársins hring.

Stórvirk flettisög hjá Skógarafurðum ehf.

Að ræða kjarna málsins og leita lausna
Lesendarýni 26. júlí 2024

Að ræða kjarna málsins og leita lausna

Enn er látið að því liggja að það sé einhver réttarfarsóvissa um að óheimilt sé ...

Kartaflan
Lesendarýni 16. júlí 2024

Kartaflan

Hvað vitum við um kartöfluna? Þessa nytjajurt sem heitir á fræðimáli Solanum tub...

Hraunflóðavarnir og þekking
Lesendarýni 16. júlí 2024

Hraunflóðavarnir og þekking

Nú eru í gangi umfangsmiklir jarðeldar á Reykjanesskaga, hafa þegar verið í gang...

Ekki lausn fyrir Landeyjahöfn - Síðari hluti
Lesendarýni 5. júlí 2024

Ekki lausn fyrir Landeyjahöfn - Síðari hluti

Í síðasta eintaki af Bbl. birtist grein um það hvernig öldusveigjan umhverfis Ve...

Dýravelferð og hugmyndafræði einnar heilsu: ábyrgð okkar allra
Lesendarýni 2. júlí 2024

Dýravelferð og hugmyndafræði einnar heilsu: ábyrgð okkar allra

Velferð dýra er ófrávíkjanleg krafa siðmenntaðs samfélags, hvort sem um ræðir gæ...

Framleiðsla og vinnsla búvara falla ekki undir EES-samninginn
Lesendarýni 24. júní 2024

Framleiðsla og vinnsla búvara falla ekki undir EES-samninginn

Fyrir röskum þremur árum ritaði greinarhöfundur þrjár greinar um landbúnað og sa...

Enn af undanþágum búvörulaga og stöðu bænda
Lesendarýni 21. júní 2024

Enn af undanþágum búvörulaga og stöðu bænda

Ágætu bændur. Í Bændablaðinu þann 16. maí sl. reifaði ég í bréfi til ykkar áhygg...

Af heimanautum og sæðinganautum
Lesendarýni 21. júní 2024

Af heimanautum og sæðinganautum

Mikil notkun heimanauta hefur um langa hríð verið eitt helsta umræðuefni og þræt...