Meira prótein í byrjun mjaltaskeiðs gæti aukið afurðasemina
Á faglegum nótum 28. október 2026

Meira prótein í byrjun mjaltaskeiðs gæti aukið afurðasemina

Höfundur: Snorri Sigurðsson

Þegar rætt er um fóðrun nýbærra kúa snýst umræðan oft um orkuna sem þær innbyrða og er sú áhersla raunar ofur eðlileg, enda eru flestar afurðamiklar kýr í neikvæðu orkujafnvægi í byrjun mjaltaskeiðsins vegna þess að mjólkurframleiðslan eykst hraðar en átgetan ræður við. Þær þurfa því að ganga á eigin líkamsforða, til að mæta mikilli næringarþörf mjólkurframleiðslunnar. Á síðustu árum hafa þó komið fram rannsóknir sem benda til þess að prótein, og þá sérstaklega framboð amínósýra til smáþarmanna, geti verið vanmetinn þáttur í afkastagetu kúa við upphaf mjaltaskeiðsins. Í umfjöllun norska prófessorsins Harald Volden í fagtímaritinu Buskap (7/2025) er vakin athygli á þessu og þar í landi er farið að tala um svokallaða „proteinboosting“ aðferð, sem kalla mætti próteinörvun á íslensku. Þar er hugmyndin sú að auka framboð svokallaðs AAT próteins fyrstu vikurnar eftir burð og beina þannig meiri næringu að júgrinu á því tímabili þegar framleiðslugeta kúnna er hvað mest.

Hvað er AAT?

Í norræna fóðurmatskerfinu NorFor er próteingildi fóðurs ekki aðeins metið út frá hrápróteini heldur einnig út frá því hversu mikið af amínósýrum skilar sér í raun til upptöku í smáþörmum. Sá mælikvarði kallast AAT (aminosyrer Absorberet i Tarmen), eða amínósýrur frásogaðar í þörmum. Amínósýrurnar eru gríðarlega mikilvægar enda bæði byggingarefni fyrir vefi líkamans og mjólkurprótein og einnig getur hluti þeirra nýst til að mynda glúkósa, sem er eitt mikilvægasta orkuefnið við mjólkurmyndun.

Nýbærur í sérstökum aðstæðum

Sérstaða jórturdýra er að hluta til sú að vambarörverurnar geta framleitt allar lífsnauðsynlegar amínósýrur. Þær sjá því að stórum hluta um próteinframleiðslu fyrir dýrið sjálft en þrátt fyrir það getur komið upp sú staða að eftirspurnin eftir amínósýrum verður meiri en framboðið, sérstaklega hjá mjög afkastamiklum kúm í byrjun mjaltaskeiðs eins og hér að framan greinir. Fyrstu vikurnar eftir burð stendur kýrin því frammi fyrir gríðarlegri áskorun. Júgrið kallar eftir sífellt meiri næringu til mjólkurmyndunar, en átgeta kúnna nær ekki að fylgja eftir. Kýrin nær einfaldlega ekki að éta nóg en til þess að svara kalli mjólkurframleiðslunnar þá gerist það að kýrin getur gengið á eigin orkuforða. Hún umbreytir líkamsfitunni í orku og nær þannig, a.m.k. að hluta til, að svara þörfinni fyrir orkuna sem ekki næst með því að éta.

Að sama skapi reynir líkaminn að sækja sér byggingarefni próteins úr líkamanum en umbreytigeta á próteini úr líkamanum er hins vegar minni en umbreytigeta úr fitu í orku. Þess vegna kemur upp ákveðið ójafnvægi, þar sem orka úr fituforða er tiltæk en framboð amínósýra getur verið takmarkandi. Samhliða þessu ríkir oft jafnframt glúkósaskortur. Mjólkursykur er megindrifkraftur líkamans til að framleiða mjólk og til að framleiða hann þarf glúkósa. Þegar glúkósaframboðið er aftur á móti takmarkað getur líkaminn farið að nýta amínósýrur til glúkósaframleiðslunnar. Sumir sérfræðingar áætla að allt að 30% af AAT-framboðinu geti í raun farið þessa leið á fyrstu vikum mjaltaskeiðsins. Þá standa aftur á móti færri amínósýrur eftir, til myndunar mjólkurpróteins.

6–7 kg meiri mjólk á dag

Undanfarin ár hafa sést fleiri og fleiri rannsóknir á þessu ferli öllu saman en ein áhugaverðasta rannsóknin á þessu sviði var birt í Journal of Dairy Science árið 2024 af vísindafólki við Cornell-háskólann. Þar voru 96 Holstein-kýr rannsakaðar og fengu mismikið framboð af próteini bæði fyrir og eftir burð. Kýr sem fengu aukið próteinframboð fyrsta 21 dag mjaltaskeiðsins mjólkuðu marktækt meira en samanburðarhópurinn. Eins og sjá má í meðfylgjandi töflu þá var meðalnytin 44,7 kg á dag, fyrstu þrjár vikur tilraunatímabilsins, samanborið við 38,0 kg hjá þeim kúm sem fengu hefðbundna fóðrun. Í síðari töflunni má sjá niðurstöður seinna tilraunatímabilsins, þ.e. frá degi 22 til 42. Þar sést að munurinn hélst áfram og var 54,1 kg á móti 49,3 kg á dag. Það sem þó var einna athyglisverðast var að áhrifin héldu áfram eftir að viðbótarfóðrunartímabilinu lauk. Kýrnar héldu sem sagt áfram að mjólka meira þótt þær væru komnar aftur á sambærilega fóðrun og samanburðarhópurinn.

Oft er aukin mjólkurframleiðsla einfaldlega afleiðing aukins áts, en það átti þó ekki við í þessari rannsókn. Át kúnna, mælt sem kg þurrefnis á dag, var nánast sú sama hjá hópunum tveimur og enginn marktækur munur fannst heldur á þyngdartapi kúnna. Þrátt fyrir það mjólkuðu þær kýr sem fengu meira AAT verulega meira. Vísindafólk Cornell-háskólans mátu það svo að aukið framboð amínósýra hafi einfaldlega gert kúnum kleift að beina stærri hluta næringarefnanna til mjólkurframleiðslunnar. Með öðrum orðum virðist fóðurorkunni í raun hafa verið ráðstafað betur og aukið þannig bæði afurðasemina og fóðurnýtinguna.

Það er sérstaklega áhugaverð niðurstaða fyrir kúabændur, því með þessu má ætla að hægt sé að bæta fóðurnýtingu kúa töluvert og fá þannig meiri mjólk úr hverju gefnu kílói fóðurs.

Kýr sem fengu aukið próteinframboð fyrsta 21 dag mjaltaskeiðsins mjólkuðu marktækt meira en samanburðarhópurinn.

Gæti aukið súrdoða

Hinn norski prófessor Harald Volden hefur, þrátt fyrir framansagt, bent þarlendum bændum á að ekki sé nú allt bara jákvætt við þessa aðferð. Kýr sem eru á svona próteinbættu fóðri mælast með aukið BHB-blóðgildi en BHB (beta-hýdroxýbútýrat) er eitt af þeim efnum sem mæld eru til þess að meta hættu á súrdoða. Þó svo að meðaltölin hafi ekki farið yfir viðmiðunarmörk, og tíðni klínískra vandamála hafi ekki aukist marktækt, telur vísindafólkið mikilvægt að fylgjast vel með efnaskiptastöðu kúnna ef bændur taka upp þessa aðferð við fóðrun.

Byrja fyrir burð?

Í framangreindri rannsókn var sumum kúnum einnig gefið aukið prótein síðustu fjórar vikurnar fyrir burð og skilaði það sér í því að þær mjólkuðu að meðaltali 3,7 kg meira á dag, á öllu tilraunatímabilinu, en samanburðarhópurinn. Jafnframt fundust engar vísbendingar um að þessar kýr væru að ganga á eigin líkamsforða eða væru með einhver efnaskiptavandamál. Þessar niðurstöður benda til þess að undirbúningur fyrir hvert mjaltaskeið geti byrjað fyrr en margir hafa hingað til talið.

Borgar þetta sig?

Samkvæmt norskum útreikningum kostar svona próteinörvun um það bil 180 norskar krónur á kú, fyrir 30 daga tímabil, eða um 2.300 íslenskar krónur. Á móti sýna samantektir úr mörgum tilraunum afurðaaukningu upp á 150–250 kg mjólkur á fyrstu 50 dögum mjaltaskeiðsins. Sé miðað við hefðbundið afurðastöðvaverð á Íslandi nú um stundir, myndi þetta afurðamagn gefa veltu upp á 22–37.000 íslenskar krónur. Hvort heimfæra megi kostnað og ávinning í mjólkurmagni beint upp á íslenskar aðstæður er nú líklega heldur óvarlegt að ætla. En þessar tölur eru þó svo áhugaverðar að það er harla líklegt að dæmið ætti að geta gengið upp á Íslandi líka, jafnvel þó svo að kostnaðurinn kunni að vera eitthvað hærri en hér er nefnt og ávinningurinn í lítrum talið eitthvað minni.

Langtímaáhrifin vantar

Eins og staðan er í dag þarf frekari rannsóknir enda virðist sem flestar tilraunir, sem hingað til hafa verið gerðar, horfi aðallega til fyrstu 40–50 daganna og því ekki að fullu ljóst hversu lengi áhrifin endast. Það verður þó einkar áhugavert að fylgjast með þessum málum á komandi misserum og árum, enda benda þessar rannsóknaáherslur til þess að við höfum hugsanlega verið aðeins of upptekin af orkufóðrun nýbæra í stað þess að horfa meira á próteinið sem þátttakanda í afurðaseminni sem slíkri. Ef rétt reynist þá er þessi markvissa „próteinörvun“, á fyrstu vikum mjaltaskeiðsins, með merkilegri breytingum síðari ára sem hafa orðið á fóðrunarleiðbeiningum.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...