Staðsetur liti í erfðamengi kúa
Fagfundur nautgriparæktarinnar fer fram á Hvanneyri í dag, 22. október. Markmið þessara funda, sem fara fram árlega, er að miðla til bænda og áhugafólks um landbúnað nýjustu rannsóknum og þekkingu í íslenskri nautgriparækt.
Eitt þeirra erinda ber heitið „Bröndótt gefur björg í bú“, þar sem Ágústa Rut Haraldsdóttir, meistaranemi í búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands, kynnir lokaverkefnið sitt. „Í stuttu máli er markmið verkefnisins að geta staðsett liti í erfðamengi íslenskra kúa,“ segir Ágústa í samtali.
„Áður en erfðamengjaúrvalið var innleitt í kynbótastarfinu byggði starfið á afkvæmarannsóknum,“ segir Ágústa. „Ef þú notaðir reynt naut gastu séð að það hafði gefið ákveðna liti í sæðingum. Í dag erum við að nota erfðamengjaúrvalið og þá eru engin reynd naut í notkun þannig að þegar bóndi lætur sæða kýrnar hjá sér veit hann hvernig faðirinn er á litinn en ekki hvort nautið beri einhverja erfðavísa sem gefa aðra liti.
Í ræktunarmarkmiði íslenska kúastofnins er tekið fram að viðhalda skuli litafjölbreytni. Til þess að við getum viðhaldið litum þurfum við að vita hvernig þeir erfast. Markmið þessarar rannsóknar er að geta sagt fyrir fram hvaða liti naut geta gefið þó svo að þau beri ekki svipgerðina. Ég vonast til að geta staðsett litaerfðir í íslenska kúastofninum svo að þau gögn séu til. Svo verður að koma í ljós hvað verður gert við þessar niðurstöður en nautastöðin mun áfram velja til notkunar bestu nautin burtséð frá lit.
Ég er með arfgerðagögn og litaskráningu yfir 20.000 gripi og mun nota aðferð sem kallast GWAS (Genome-Wide Association Study) til þess að bera saman liti til þess að sjá hvar breytileikinn er. Ég er oftast með yfir 100 gripi í hverjum lit og í öðrum kúakynjum eru staðsetningar margra litagena þekkt. Á kynningunni sýni ég meðal annars niðurstöður úr samanburði á erfðamörkum hjá grönóttum og einlitum nautgripum. Þar koma fram sterk tengsl milli svæðis á litningi 29 og grönótts litar. Þetta eru fyrstu niðurstöður og næsta skref er að skoða svæðið nánar,“ segir Ágústa. Aðalleiðbeinandinn hennar í verkefninu er Egill Gautason. Þeir sem geta ekki mætt á Hvanneyri geta fylgst með fundinum í streymi eða horft á upptöku.
