Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Georgetown-húfa  á herra
Hannyrðahornið 29. september 2020

Georgetown-húfa á herra

Höfundur: Handverkskúnst

Prjónuð hipster húfa á herra úr DROPS Flora. Húfan er prjónuð í stroffprjóni.

DROPS Design: fl-055

Stærðir: S/M (M/L) L/XL

Höfuðmál: ca 54/56 (56/58) 58/60 cm.

Hæð með tvöföldu uppábroti ca: 25 (26) 27 cm.

Garn: DROPS FLORA (fæst í Handverkskúnst): 100 (100) 100 g litur á mynd: indigo nr 10

Prjónfesta: 26 lykkjur x 32 umferðir í sléttu prjóni = 10x10 cm.

Prjónar: Sokkaprjónar og hringprjónn 40 cm nr 2,5

HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Smám saman er lykkjum fækkað, skiptið yfir á sokkaprjóna þegar þörf er á.
HÚFA: Fitjið upp 144 (152) 160 lykkjur á hringprjón. Tengið í hring og setjið prjónamerki sem markar upphaf umferðar. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroffprjón þar til stykkið mælist ca 26 (27) 28 cm (eða prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka).

Nú byrjar úrtaka fyrir toppinn á húfunni, prjónið þannig:

FYRSTA ÚRTAKA: *Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið*, prjónið frá *-* alls 36 (38) 40 sinnum í umferð (fækkað um 36 (38) 40 lykkjur) = 108 (114) 120 lykkjur.

Prjónið með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í 2 cm.

ÖNNUR ÚRTAKA: Prjónið 1 lykkju slétt, færið prjónamerkið hingað (þ.e.a.s. prjónamerkið er fært um 1 lykkju til vinstri og þetta er núna byrjun á umferð). *Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman*, prjónið frá *-* alls 36 (38) 40 sinnum í umferð (fækkað um 36 (38) 40 lykkjur) = 72 (76) 80 lykkjur. Allar brugðnar lykkjur eru núna horfnar. Prjónið slétt í hring, 1 cm.
ÞRIÐJA ÚRTAKA: Prjónið 2 lykkjur slétt saman út umferðina (fækkað um 36 (38) 40) = 36 (38) 40 lykkjur í umferð. Prjónið slétt í hring, 1 cm.

FJÓRÐA ÚRTAKA: Prjónið 2 lykkjur slétt saman út umferðina (fækkað um 18 (19) 20 lykkjur) = 18 (19) 20 lykkjur í umferð.
Klippið frá. Notið nál til að þræða þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar nokkrum sinnum. Herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 30 (31) 32 cm. Brjótið uppá kantinn 2 sinnum að réttu ca 2½ cm í hvort skipti. Húfan mælist ca 25 (26) 27 cm með uppábroti.

Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst,
www.garn.is

Lillemor bylgjuteppi
Hannyrðahornið 23. apríl 2024

Lillemor bylgjuteppi

Uppskriftina með fleiri myndum og nánari leiðbeiningum er að finna á www.GARN.is...

Kaðlahúfa
Hannyrðahornið 10. apríl 2024

Kaðlahúfa

Ein stærð, fullorðins

Létt pils fyrir sumarið
Hannyrðahornið 19. mars 2024

Létt pils fyrir sumarið

Létt og skemmtilegt pils prjónað úr Drops Safran. Nýttu þér 30% bómullarafslátti...

Baldur
Hannyrðahornið 5. mars 2024

Baldur

Stærðir: S M L XL

Þykk og góð hipsterhúfa
Hannyrðahornið 20. febrúar 2024

Þykk og góð hipsterhúfa

Fljótprjónuð húfa úr DROPS Snow á prjóna númer 7. Snow er ullargarn sem fæst í 5...

Yrja vettlingar
Hannyrðahornið 6. febrúar 2024

Yrja vettlingar

EFNI: 75g Hörpugull og sauðalitaður þingborgarlopi – undið tvöfalt

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin
Hannyrðahornið 23. janúar 2024

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin

Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað fram og til bak...

Jólahúfa
Hannyrðahornið 19. desember 2023

Jólahúfa

Ein stærð