Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Hjalteyri Sea Snack setti á markað um síðustu mánaðamót nýja vöru, Kalda bjórsnakk (Kaldi Beersnack), sem svo sannarlega hefur fallið í kramið hjá neytendum.
Hjalteyri Sea Snack setti á markað um síðustu mánaðamót nýja vöru, Kalda bjórsnakk (Kaldi Beersnack), sem svo sannarlega hefur fallið í kramið hjá neytendum.
Fréttir 28. febrúar 2018

Viðtökur fram úr björtustu vonum

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
„Viðtökurnar hafa farið fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Jóhannes Valgeirsson, framkvæmdastjóri hjá Hjalteyri Sea Snack.
 
Fyrirtækið setti á markað um síðustu mánaðamót nýja vöru, Kalda bjórsnakk (Kaldi Beersnack), sem svo sannarlega hefur fallið í kramið hjá neytendum. 
 
Félagið setur vöruna á markað í samstarfi við Bruggverksmiðjuna Kalda á Árskógssandi, sem framleiðir bjórinn Kalda og rekur að auki Bjórböðin. Þar á bæ hefur gestum verið boðið upp á þetta nýja snakk á meðan þeir njóta bjórbaðsins. Að félaginu Hjalteyri Sea Snack  standa þeir Jóhannes og Rúnar Friðriksson og fer framleiðslan fram í verksmiðju þess á Hjalteyri.
 
„Það hefur lengi blundað í okkur að finna okkur sérstöðu á markaði með sjávarsnakk. Það eru margir um hituna þegar að hinu 
 
hefðbundna kemur, harðfiski og bitafiski. Við höfum reynt að finna okkar vöru farveg utan þess hefðbundna, höfum m.a. framleitt bitafisk eða sjávarsnakk án viðbætts salts og eins höfum við prófað að nýta krydd af ýmsu tagi í okkar framleiðslu og það hefur alveg gengið upp. Við höfum sem sagt verið að bjóða upp á fisk án viðbætts salts, sem og fisk með miklu salti eða kryddi,“ segir Jóhannes.
 
 
Marinerað í IPA Kalda og sítrónupipar
 
Hann segir að þeir félagar hafi legið um skeið yfir stöðunni þegar upp kom hugmynd um að útbúa snakk sem upplagt væri að maula yfir bjór, heima í stofu eða á börum og veitingastöðum, þar sem tíðkast að bjóða upp á hnetur, brauð eða jafnvel popp með drykkjum. „Rúnar datt niður á þessa snilldarhugmynd og hafði samband við þau Agnesi og Ólaf hjá Bruggverksmiðjunni Kalda. Skemmst er frá því að segja að þau tóku hugmyndinni vel og voru meira en til í að lána sitt vörumerki, Kalda, sem er þekkt á markaði. Við höfum séð um þróun vörunnar, framleiðsluna og að koma henni á markað.“
 
Kalda bjórsnakk er útbúið með þeim hætti að fiskurinn er marineraður í ákveðinn tíma í IPA Kalda og sítrónupipar. Þar mallar hann um stund og fer þá í gegnum þar til gerða vél sem mótar fiskinn í hæfilega bita. „Það gerast einhverjir töfrar þarna í ferlinu, fiskurinn verður loftkenndur og mjúkur, en samt um leið stökkur.“
 
Betri viðtökur en við áttum von á
 
Kaldi bjórsnakk kom á markað um mánaðamótin janúar og febrúar og er m.a. til sölu í verslunum Krónunnar, Iceland og 10/11. Dreifing er í fullum gangi og það má nálgast vöruna víða á suðvesturhorninu, austur á Egilsstöðum, og svo má einnig finna snakkið á nokkrum stöðum í höfuðstað Norðurlands, Akureyri, m.a. hjá sælkeraversluninni Fisk kompaní. „Almennir neytendur hafa tekið vel við sér og þá hafa ferðamenn ávallt gaman af því að prófa eitthvað íslenskt og þessi vara virðist falla þeim vel í geð,“ segir Jóhannes, en viðtökur voru góðar, „betri en við áttum von á. Næsta skref hjá okkur er að gera átak í dreifingu og koma vörunni að sem víðast. Við höfum trú á vörunni og þetta fer vel af stað,“ segir Jóhannes. 
 
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...