Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Viðskipti með kolefnisbindingu
Mynd / HGS
Á faglegum nótum 14. desember 2020

Viðskipti með kolefnisbindingu

Höfundur: Hlynur Gauti Sigurðsson framkvæmdastjóri Landssamtaka skógarbænda

Við blasir að á komandi árum og áratugum verði æ dýrara að losa gróðurhúsalofttegundir út í andrúmsloftið. Kjósi fólk að ráðast í kolefnisjöfnun er nauðsynlegt að hún sé samkvæmt reglum og stöðlum og með viðurkennda vottun. Öðruvísi er ekki tryggt að hún verði viðurkennd í losunarbókhaldi.

Fyrirtæki sem stunda efnahagslega starfsemi menga yfirleitt eitthvað eða hafa neikvæð áhrif á umhverfi sitt á einhvern hátt. Þetta er misjafnt eftir fyrirtækjum og eðli starfsemi þeirra. Stundum greiða fyrirtæki fyrir þessi neikvæðu áhrif með einhverjum hætti, t.d. fyrir meðhöndlun úrgangs. Ein gæði sem fyrirtæki hafa hingað til getað nýtt sér án þess að greiða fyrir er losun á koltvísýringi út í andrúmsloftið. Þannig endurspeglast kostnaður samfélagsins vegna loftslagsbreytinga ekki í verði þeirra vara sem fyrirtækin sem losa koltvísýring út í amdrúmsloftið framleiða. Þetta hefur breyst á undanförnum árum og mun sú þróun ágerast að fyrirtæki þurfi að draga úr losun eins og mögulegt er. Það er hins vegar alveg ljóst að næstum ómögulegt er fyrir mörg fyrirtæki að ná kolefnishlutleysi með því að draga bara úr losun þar sem nánast óhjákvæmilegt er að þau muni losa koltvísýring út í andrúmsloftið í starfsemi sinni. Þetta þýðir að fyrirtækin þurfa að greiða með einhverjum hætti fyrir þá losun sem óhjákvæmilega hlýst af starfsemi þeirra, s.s með því að kaupa kolefnisbindingu til að jafna á móti losuninni. Mynd 1. sýnir á einfaldan hátt hvernig þessi viðskipti munu geta átt sér stað.

Mynd 1. Leiðin að kolefnishlutleysi.

Fyrirtæki þurfa ekki bara í auknum mæli að svara ákalli viðskiptavina sinna um samfélagslega ábyrgð og sjálfbæra nýtingu auðlinda heldur má einnig gera ráð fyrir því í náinni framtíð að þjóðríki muni skylda fyrirtæki til að ná kolefnishlutleysi. Skoðum aðeins þau skref sem þarf að taka  á þessari vegferð, mynd 2.

Mynd 2. Virðiskeðja kolefnisjöfnunar.

Kolefnisbókhald. Lykillinn að því að vita hvað fyrirtæki losar mikið kolefni er að fyrirtækið haldi kolefnisbókhald. Þar er gerð grein fyrir allri losun vegna starfsemi fyrirtækisins.

Niðurstaða úr kolefnisbókhaldi verður óhjákvæmilega neikvæð þar sem fyrirtækið er bara að losa kolefni en hefur ekki tryggt kolefnisjöfnun á móti. Frumkvæði og metnaður fyrirtækja, krafa viðskiptavina og eftir atvikum lög og reglur skapa þannig eftirspurn eftir kolefnisjöfnun.

Hér hefur fyrirtæki val um aðferð til kolefnisjöfnunar. Ein sú leið sem hægt er að mæla sterklega með er skógrækt. Ræktun skóga er náttúruleg og hagkvæm leið til að binda kolefni. Nú hefur fyrirtækið möguleika á að ná kolefnishlutleysi með því að kaupa kolefnisbindingu í skógrækt.

Til þess að fyrirtækið geti haldið fram kolefnishlutleysi þarf allt ferlið að vera samkvæmt gildandi reglum og stöðlum og vottað af óháðum þriðja aðila, hvort sem það er losun, aðgerðir til að minnka losun eða aðgerðir til kolefnisjöfnunar.  

Án vottunar verða engin viðskipti með kolefniseiningar en það er efni annarrar greinar sem birtist  á næstunni.

Hlynur Gauti Sigurðsson

framkvæmdastjóri Landssamtaka skógarbænda

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...