Haustúthlutun úr myndlistasjóði
Verkefni af landsbyggðinni eru meðal hæstu styrkþega við haustúthlutun úr myndlistasjóði. Úthlutað var úr sjóðnum 5. nóvember síðastliðinn. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra, og Sigrún Inga Hrólfsdóttir, formaður myndlistaráðs, afhentu myndlistafólki styrki. Alls var 32 milljónum króna úthlutað til 48 verkefna.

