Haustúthlutun úr myndlistasjóði
Verkefni af landsbyggðinni eru meðal hæstu styrkþega við haustúthlutun úr myndlistasjóði. Úthlutað var úr sjóðnum 5. nóvember síðastliðinn. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra, og Sigrún Inga Hrólfsdóttir, formaður myndlistaráðs, afhentu myndlistafólki styrki. Alls var 32 milljónum króna úthlutað til 48 verkefna.
Myndlistasjóði bárust 158 umsóknir og sótt var um styrki fyrir 199 milljónir króna. Styrkir voru veittir í tveimur flokkum. Það er útgáfu- rannsóknar- og aðrir styrkir og svo sýningarstyrkir.
Verkefni af landsbyggðinni meðal hæstu styrkþegar
Listasafn Ísafjarðar hlaut 1.500.000 krónur í styrk fyrir sýningu í Listasafni Ísafjarðar. Hótel Djúpavík hlaut 1.200.000 króna styrk fyrir samsýinguna The Factory 2027 í Verksmiðjunni á Djúpavík og Listasafn Árnesinga hlaut 1.000.000 fyrir sýninguna Please Repeat After Me.
Í matsnefnd sátu Birgir Snæbjörn Birgisson, Dorothée Maria Kirch, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Æsa Sigurjónsdóttir úr myndlistaráði. Gestir nefnfdarinnar voru Hildur Bjarnadóttir og Kristinn G. Harðarson.
Fyrsta úthlutun myndlistarsjóðs var árið 2013 og frá upphafi hafa sjóðnum borist tæplega 4450 umsóknir. Síðustu ár hefur 724 milljónum króna verið úthlutað úr sjóðnum. Næsti umsóknarfrestur verður í febrúar.
Hæstu styrkþegar í haust voru:
- Nýlistasafnið hlaut kr. 2.000.000 fyrir Vetrardagskrá Nýlistasafnsins: Þrjár sýningar
- Norræna húsið hlaut kr. 1.500.000 fyrir samsýningunni Southnord
- Listasafn Ísafjarðar hlaut 1.500.000 fyrir sýningum í Listasafni Ísafjarðar
- Kling & Bang hlaut kr. 1.500.000 fyrir samsýninguna Að halda, að gefa, að þiggja
- Hótel Djúpavík hlaut kr. 1.200.000 fyrir samsýninguna The Factory 2027 í Verksmiðjunni á Djúpavík
- Listasafn Árnesinga hlaut kr. 1.000.000 fyrir samsýninguna Please Repeat After Me
- Egill Sæbjörnsson hlaut 1.000.000 fyrir ýmsar sýningar 2027
28 önnur verkefni hlutu styrk að auki.
