Hvaðan kemur hvítlaukurinn?
Áður en að hvítlaukurinn hefur ratað úr kjörbúðinni á eldhúsborðið hefur hann oft ferðast langar leiðir. Árið 2025 voru flutt inn rúm 220 tonn af hvítlauk erlendis frá, mest frá Kína og þar á eftir frá Spáni og Hollandi.
Samkvæmt tölum frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) eru 28 milljón tonn framleidd af hvítlauk á heimsvísu árlega. Af þeirri framleiðslu koma um 22 milljón tonn frá Kína. Innan Evrópusambandsins er Spánn stærsti hvítlauksframleiðandinn samkvæmt tölum frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Hvítlaukur í tonnatali
Hvítlaukurinn í matvöruverslunum á Íslandi kemur víða að. Í tölfræði frá Hagstofu Íslands kemur fram að árið 2025 voru flutt inn 177.887 kíló af hvítlauk frá Kína. 16.878 kíló voru flutt inn frá Hollandi og 12.699 kíló frá Spáni. Hvítlaukur var fluttur inn frá 17 löndum það árið, en frá sumum löndum í það litlu magni að það hefur að líkindum verið til einkanota.
Tæplega 123 tonn hafa verið flutt inn af hvítlauk það sem komið er af ári og þar af koma 99 tonn frá Kína. 9.275 kíló hafa komið frá Spáni og 8.186 kíló frá Hollandi síðan í janúar á þessu ári.
Hvað er í matvöruverslunum?
Bónus selur um það bil 72 tonn af hvítlauk á ári samkvæmt upplýsingum frá versluninni. Þar er hægt að nálgast hvítlauk, geirlausan hvítlauk og lífrænan hvítlauk. Hvítlaukurinn sem fæst í Bónus er oftast nær frá Kína en einnig frá Spáni. Bónus fær sinn hvítlauk í gegnum milliliði í Hollandi. Verslanir Hagkaups selja um það bil 5 tonn af hvítlauk á ári. Í svari frá versluninni kemur fram að í úrvali yfir árið séu yfirleitt þrjú vörunúmer, það er hvítlaukur, geirlaus hvítlaukur og lífrænn hvítlaukur.
Íslenskur hvítlaukur er af skornum skammti en Þórunn Ólafsdóttir og Haraldur Guðjónsson, hvítlauksbændur á Neðri-Brekku í Dölum, hafa selt ferskan hvítlauk í verslunum Hagkaups. Í fyrra seldu þau 30 kíló en í ár varð uppskerubrestur vegna veðurs og hafa þau því ekki getað sett neinn ferskan hvítlauk á neytendamarkað. Sá hvítlaukur sem þau hafa fengið hefur verið það lítill að þau hafa notað hann í hliðarafurðir líkt og hvítlaukssalt og olíu.
Sælkeraverslunin Hyalin selur franskan þurrkaðan hvítlauk af tegundinni Ail Rose De Lautrec og kaupa hann milliliðalaust beint frá býli frá fjölskyldubúi í Tarn-héraði í Occitantie í Frakklandi. Hvítlaukurinn er árstíðabundin vara hjá versluninni og fá þau eina sendingu á ári. Magnið er breytilegt, yfirleitt um hálft tonn og selst upp á fáum vikum. Í ár er von á sendingunni rétt fyrir septemberlok en Karl Ólafur Hallbjörnsson hjá Hyalin segir að þessi hvítlaukur sé endingarbetri og bragðið sé þéttara og sætara.
Heildsalar versla við Holland
Bjarni Þór Logason, framkvæmdastjóri hjá heildsölunni Oriens ehf. (áður Epli og Co.), segir sitt fyrirtæki bæði flytja inn hvítlauk fyrir neytendamarkað og veitingamenn. Sá hvítlaukur sem er hugsaður fyrir neytendur er yfirleitt í 250 gramma neti á meðan búið er að afhýða og vakúmpakka hvítlauknum sem seldur er veitingastöðum í kílóavís. Hann segir litlar sveiflur vera á því magni sem flutt er inn á vegum Oriens á meðan verðið geti sveiflast aðeins milli árstíða.
Allur hvítlaukurinn sem Oriens flytur inn kemur í gegnum stórar heildsölur í Hollandi, sem aftur kaupa sinn hvítlauk frá Kína. Bjarni útskýrir að ferskvara eins og hvítlaukur sé flutt til Íslands með gámum sem koma vikulega frá Hollandi. Í þeim gámum séu aðeins örfáir kassar af hvítlauk fyrir neytendamarkað sem klárist að jafnaði á viku. Því sé matvaran ekki geymd lengi á lager hjá heildsölunni. Aðspurður telur Bjarni gæðin á þeim hvítlauk sem Oriens kaupir vera jöfn og góð. Hann bætir við að áður hafi hann unnið lengi í matvöruverslun og aldrei lent í skorti á hvítlauk.
Jóhanna Þorbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Banana ehf., segir að samkvæmt sinni reynslu sé hægt að treysta á að fá góðan hvítlauk til landsins allan ársins hring. Stærsti hluti hvítlauksins sem Bananar kaupa er ræktaður í Kína en hann kemur í gegnum millilið í Evrópu. Aðspurð segir hún ekki fýsilegt fyrir íslenska aðila að flytja hvítlauk beint frá Kína því að þá þyrfti að taka meira magn í einu ásamt því sem evrópsku milliliðirnir séu með gott gæðaeftirlit. Jóhann Steinn Eggertsson, framkvæmdastjóri Mata, segir sitt fyrirtæki líka flytja inn hvítlauk frá Kína sem kemur í gegnum milliliði í Hollandi. Hann segir litlar árstíðasveiflur þegar kemur að gæðum og verði á hvítlauki frá Kína, á meðan meiri sveiflur séu á verði og framboði á fínni hvítlauk frá Frakklandi og Spáni. Í sama streng tekur Jóhannes Þór Ævarsson, framkvæmdastjóri ferskvörusviðs hjá Innnesi.
Innflutningurinn á hvítlauknum sé mjög jafn yfir allt árið hvað varðar framboð og verð. Stærsti hlutinn sé hefðbundinn hvítlaukur ræktaður í Kína sem keyptur er í gegnum evrópska birgja. Þá hafi fyrirtækið einnig flutt inn spænskan hvítlauk fyrir smásölumarkað vegna mikilla bragðgæða og í minna magni nýupptekinn hvítlauk með stilk frá Frakklandi yfir sumarmánuðina. Evrópski hvítlaukurinn sé yfirleitt keyptur beint frá framleiðanda.
Fylgst með í Evrópu
Í skriflegu svari frá Matvælastofnun (MAST) um fyrirkomulag á eftirliti með innflutningi á hvítlauki segir að ekki sé sérstakt eftirlit með innflutningi á hvítlauki sem kemur til Íslands frá EES-löndunum nema ef tilkynning kemur í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið. Þaðan geti komið upplýsingar um til að mynda örverumengun eða varnaefnaleifar yfir leyfilegum mörkum. Þá er brugðist við með því að MAST hefur samband við viðeigandi heilbrigðiseftirlit sem framkvæmir sölustöðvun og innköllun ef þess þarf. Á samfélagsmiðlum hefur oft verið fullyrt að hvítlaukur frá Kína sé ræktaður við varasamar aðstæður. Við vinnslu þessarar greinar fundust engar traustar heimildir sem staðfesta það.
