Ekki unnið að því að fylgja markmiðum ESB
Mynd / ál
Fréttir 14. september 2026

Ekki unnið að því að fylgja markmiðum ESB

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Atvinnuvegaráðuneytið vinnur ekki að áætlun um að Ísland fylgi markmiðum Evrópusambandsins í landbúnaði.

Þetta kemur fram í svari Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnu- vegaráðherra 4. september við fyrirspurn frá Heiðbrá Ólafsdóttur, varaþingmanni Miðflokksins, frá 22. maí síðastliðnum.

Fyrirspurnin var eftirfarandi: „Er unnið að áætlun í ráðuneytinu um að Ísland fylgi markmiðum ESB í landbúnaði? Ef svo er, með hvaða hætti? Ef svo er ekki, hvers vegna ekki?

Í svari atvinnuvegaráðherra segir að ástæða þess að ekki sé unnið að slíkri áætlun sé að landbúnaður falli almennt ekki undir gildissvið samnings um Evrópska efnahagssvæðið þar sem samningurinn nær fyrst og fremst til innri markaðarins og fjórfrelsisins.

„Sameiginleg landbúnaðarstefna Evrópusambandsins (CAP) fellur því utan við gildissvið EES-samningsins. Viðskipti með tilteknar landbúnaðarvörur eru þó hluti af EES-samningnum, þar sem m.a. er kveðið á um frjálst flæði tiltekinna landbúnaðarafurða og vara sem tilgreindar eru í samningnum og viðaukum við hann, sbr. 3. mgr. 8. gr. samningsins, 19. gr. samningsins og bókun 3 um unnar landbúnaðarafurðir,“ segir enn fremur í svarinu.

Skylt efni: esb | landbúnaðarstefna

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...