Brennsluofn fyrir dýrahræ
Mynd / Aðsend
Fréttir 11. september 2026

Brennsluofn fyrir dýrahræ

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi hefur verið settur upp brennsluofn fyrir dýrahræ, sem er sá fyrsti á landsvísu sem rekinn verður af sveitarfélagi á Íslandi sérstaklega til að þjónusta bændur fyrir þessa sérhæfðu brennslu.

Haraldur Þór Jónsson.

Ofninn er viðbragð sveitar- félagsins við þeim stóraukna kostnaði bænda sem lagst hefur á þá eftir að hætt var að þjónusta þá með urðun á dýrahræjum, en í staðinn byrjað að keyra úrganginn í brennslustöðina Kölku á Reykjanesi.

Haraldur Þór Jónsson, oddviti sveitarfélagsins, segir að stefnt sé að því að kostnaður bænda við þjónustuna verði lægri en var í fyrra urðunarkerfi. Þar hafi förgunin kostað um 60–70 krónur á kílóið. Verðskráin muni endurspegla kostnað við kaup og rekstur á ofninum.

Hann segir stjórnvöld hafa lengi verið með áform um að koma upp söfnunarkerfi fyrir þennan úrgang svo mögulegt sé að hætta að farga honum ólöglega með urðun. Í nýjustu tillögum þeirra sé gert ráð fyrir að hann verði allur fluttur í Kölku á Reykjanesi, sem hann telur óhagkvæmt fyrirkomulag. Hann bætir við að leysa mætti úrgangsvandann með uppsetningu á 15–20 ofnum hringinn í kringum landið.

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...