Mikil eftirspurn er eftir mjólkurkvóta og verð á greiðslumarki hækkar í samræmi við þá þróun.
Mikil eftirspurn er eftir mjólkurkvóta og verð á greiðslumarki hækkar í samræmi við þá þróun.
Mynd / smh
Fréttir 11. september 2026

Stóraukin eftirspurn eftir mjólkurkvóta

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Jafnvægisverð hækkar

Á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur 1. september var eftirspurn eftir mjólkurkvóta tíföld á við framboðið.

Eftirspurnin nam 3.985.000 lítrum en framboðið 379.072 lítrum. Munurinn hefur aukist hratt á síðustu þremur mörkuðum. Verð hækkar Framboðið hefur dregist verulega saman. Í nóvember 2025 voru 866.812 lítrar boðnir til sölu og í apríl síðastliðnum 624.608 lítrar. Eftirspurnin nam 1.217.100 lítrum í nóvember en fór í 3.494.900 lítra á aprílmarkaðnum.

Jafnvægisverðið hefur einnig hækkað á síðustu mörkuðum. Það hélst óbreytt í 250 krónum á lítrann í eitt ár frá nóvember 2024 til nóvembermarkaðar í fyrra, en hækkaði í 260 krónur í apríl 2026 og er nú komið í 270 krónur á lítrann. Í nóvember 2023 var jafnvægisverðið 300 krónur á lítrann.

Alls 89 gild tilboð á markaðnum

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð sé þrefalt afurða- stöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 439 krónur á lítrann.

Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 89 gild tilboð um kaup og gild sölutilboð voru sjö. Fjöldi kaup- tilboða undir jafnvægisverði var 17, en ekkert sölutilboð var yfir jafnvægisverði.

Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru því sjö talsins og selja allt sitt magn.

Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 72 talsins og fá 11% af umbeðnu magni. Af kauptilboðum eru sjö sem fá úthlutun úr forgangspotti nýliða.

Skylt efni: mjólkurkvóti

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...