Nýr mælikvarði á líftölu
Mynd / ál
Fréttir 14. september 2026

Nýr mælikvarði á líftölu

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í haust stendur til að kynna fyrir kúabændum nýjan mælikvarða á líftölu sem gefur upplýsingar um magn baktería í mjólk.

Rannsóknarstofa mjólkuriðnaðarins (RM) tók árið 2023 nýtt mælingartæki sem notar IBC bakteríueiningar, sem er sambærilegt því sem gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Nýja mælingar- tækið nær að telja fleiri bakteríur en gamla tækið og sýnir hærri niðurstöður en eldri búnaður. Frá þessu greinir Auðhumla í fréttatilkynningu.

RM hefur umreiknað niðurstöður eldra tækisins til þess að það falli að núgildandi reglum um flokkun og verðfellingar vegna líftölu í mjólk. Unnið er að endurskoðun á þessum reglum og mun RM hætta umreikningi þegar þær taka gildi. Til þess að venja bændur við væntanlegar breytingar hefur verið settur í loftið hluti af nýjum bændavef Auðhumlu. Þar geta bændur bæði séð gildi líftölunnar samkvæmt núverandi mælikvarða sem og verðandi gildi líftölunnar samkvæmt nýja mælikvarðanum. Eldri mælikvarðinn er línulegur á meðan sá nýi er í veldisfalli. Samanburður milli kvarða er því erfiður, en í fréttatilkynningu er tekið sem dæmi að 20 á núverandi mælikvarða, sem er hámarksgildi fyrir úrvalsmjólk, er sambærilegt 65 á nýjum mælikvarða. Þá verður líftalan 80 á núverandi mælikvarða, sem er hámarksgildi fyrir fyrsta flokks mjólk, talan 383 á nýjum mælikvarða.

Með því að smella á „Bændavefur“ á heimasíðu Auðhumlu opnast flettigluggi þar sem bændum gefst kostur á að velja á milli „Bondi“ og „Bondi 2 – BETA“. Síðarnefndi valkosturinn leiðir notendur á nýja vefinn og er hægt að skrá sig inn með sama notandanafni og lykilorði og áður.

Auðhumla er samvinnufélag kúabænda sem sér um að taka við mjólk frá félagsmönnum. Starfssvæði Auðhumlu er allt landið nema Skagafjörður. Saman eiga Auðhumla og Kaupfélag Skagafjarðar Mjólkursamsöluna ehf.

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...