Með því að velja lífrænt vottaðar vörur leggi neytendur sitt af mörkum til að stuðla að aukinni lífrænni framleiðslu til framtíðar.
Með því að velja lífrænt vottaðar vörur leggi neytendur sitt af mörkum til að stuðla að aukinni lífrænni framleiðslu til framtíðar.
Mynd / Aðsend
Fréttir 15. september 2026

Lífræni dagurinn haldinn í Kringlunni í ár

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Lífræni dagurinn verður haldinn í Kringlunni laugardaginn 19. september frá klukkan 11-18. „Áherslan í ár er á höfuðborgarsvæðið, að fara með viðburðinn til fjöldans,“ segir Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri Lífræns Íslands sem stendur að deginum. Metfjöldi ræktenda og framleiðenda tekur þátt í ár.

„Markmiðið er að leyfa neytendum að kynnast lífrænum bændum, fólkinu á bak við lífræna íslenska matinn.“ Anna María segir neytendur hafa gríðarleg völd með vali sínu á matvöru. Hún segir að með því að velja lífrænt vottaðar vörur leggi neytendur sitt af mörkum til að stuðla að aukinni lífrænni framleiðslu til framtíðar. Hún segir að tvær vörur sem líta alveg eins út í búðinni geti átt gjörólíka sögu. „Vottunarmerkið segir þér hver þessi saga er.“

Fjölbreytt vöruúrval

Vöruúrvalið verður fjölbreytt á lífræna deginum og einskorðast ekki við mat. Gestum gefst kostur á að smakka, versla og kynnast framleiðendum. Þátttakendur þetta árið eru garðyrkjustöðvarnar Breiðargerði, Akur organic og Syðra Holt, Móðir jörð, Biobú, sem mætir með mjólkurafurðir, Sölvanes, sem er sauðfjárbú og Biobóndinn, sem ræktar kartöflur og grænmeti. Auk þeirra jurtastofa og kaffibrennsla Sólheima, Norðursalt, Villimey sem framleiðir húðvörur og sjálf vottunarstofan Tún.

Sérstök dagskrá verður fyrir börn þar sem yngstu neytendurnir fá að kynnast uppruna matarins á skemmtilegan hátt.

Atvinnuvegaráðuneytið stendur árlega að veitingu viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun, framleiðslu eða framþróun lífrænna afurða á Íslandi. Viðurkenningin verður veitt klukkan 13. Samhliða munu bændur á Móður jörð í Vallanesi á Héraði og Syðra Holti í Svarfaðardal bjóða gestum heim í hlað.

Stefnt að tíföldun í framleiðslu

„Það er ýmislegt komið af stað eftir að atvinnuvegaráðuneytið gaf út aðgerðaáætlunina um eflingu lífræns landbúnaðar þar sem markmiðið er að koma lífrænum landbúnaði úr 1% upp í 10% árið 2040. Þetta er tíföldun miðað við í dag. En það er enn stórt verkefni fyrir höndum – og ýmislegt í bígerð.“ Markmið Evrópusambandsins er að 25% ræktunarlands verði vottað lífrænt árið 2030.

Anna María segir Ísland vera komið styst á veg sé horft til Norður- landanna. Hún finnur fyrir auknum áhuga á lífrænt vottuðum vörum og segir neytendur í auknum mæli velta fyrir sér lýðheilsu-, umhverfis- og dýraverndunarmálum. Mikilvægt sé að stofnanir landbúnaðarins, háskólarnir, verslanir, mötuneyti og sveitarfélög fari að skoða hvað þau geti gert til að efla lífræna ræktun á Íslandi. „Það þarf samstillt átak til að lífræn ræktun geti farið að vaxa.“

Skylt efni: lífrænt vottað

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...