Samkvæmt losunarbókhaldi Hagstofunnar var um tveggja prósenta aukning í losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði á síðasta ári.
Samkvæmt losunarbókhaldi Hagstofunnar var um tveggja prósenta aukning í losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði á síðasta ári.
Mynd / smh
Fréttir 15. september 2026

Losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði jókst

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Hagstofa Íslands hefur birt bráðabirgðaniðurstöður sínar um losun gróðurhúsalofttegunda frá íslenska hagkerfinu fyrir síðasta ár, þar sem heildarniðurstaðan er sú að samdráttur mælist um fimm prósent á milli ára. Aukning er hins vegar á losun frá þeim hluta losunarbókhaldsins sem landbúnaður tilheyrir, sem nemur um tveimur prósentum.

Bókhald Hagstofunnar um losun frá hagkerfi Íslands snýr að losun frá íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum, hvar sem þeir eru í heiminum.

Losun á metani og hláturgasi eykst

Undir losunarflokki Hagstofunnar sem heitir „A- Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar“, er sérstakur undirflokkur fyrir ræktun nytjajurta og búfjárrækt. Þar sést að um tveggja prósenta aukning er í losun á koltvísýringsígildum – sem nær yfir allar gróðurhúsalofttegundir sem losna úr þessum flokki. Losun á koltvísýringi dregst þó nokkuð saman en losun á bæði metani og hláturgasi eykst nokkuð.

Í grein á Vísi árið 2023 var munurinn á þessum tveimur bókhaldskerfum útskýrður af sérfræðingum Umhverfisstofnunar, Hagstofunnar og Landgræðslunnar. Þar segir að tilgangur bókhaldskerfis Hagstofunnar sé að meta losun út frá atvinnugreinum í hlutfalli við fjölda starfsfólks, veltu og skattagreiðslur atvinnugreina. 

Umhverfis- og orkustofnun heldur utan um annars konar loftslagsbókhald sem þó skarast að vissu leyti við bókhald Hagstofunnar og eru grunngögn fyrir þá vinnu. Það inniheldur hins vegar losun og bindingu vegna landnotkunar og skógræktar á Íslandi, sem ekki er tekið inn hjá Hagstofunni.

Landsskýrslur UOS

Niðurstöður losunarbókhalds Umhverfis- og orkustofnunar eru settar fram árlega í Landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda (National Inventory Report) sem falla undir rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (UNFCCC). Öll aðildarríki þessa samnings skila inn slíku bókhaldi. Bókhaldið er síðan forsenda uppgjörs skuldbindinganna sem Ísland hefur gagnvart Evrópusambandinu og Sameinuðu þjóðunum vegna Parísarsamningsins.

Ríki sem tilheyra Evrópska efnahagssvæðinu skila bókhaldi um losun frá hagkerfi (Air Emission Accounts) til Hagstofu Evrópusambandsins (Eurostat).

Þessu bókhaldi fylgja engar beinar alþjóðlegar skuldbindingar en Evrópuþingið hefur nýtt þessa reikninga til grundvallar lagasetningar þar sem reikningarnir tengjast öðrum efnahagsreikningum, svo sem landsframleiðslu og atvinnutölfræði. 

Skylt efni: loftslagsmál

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f