Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Irina Kamp við saumavélina að setja saman prjónahúfu.
Irina Kamp við saumavélina að setja saman prjónahúfu.
Mynd / HKr.
Fólk 2. janúar 2018

Hægt að skoða flíkur í framleiðslu og hvali sem busla í sjónum

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Á Hvammstanga í Miðfirði er rekin ullarvöruverksmiðjan KIDKA ehf. Þar er prjóna- og saumastofa ásamt ferðamannaverslun og heildsölu.
 
KIDKA er afsprengi stærstu saumastofu landsins sem rekin var undir ýmsum nöfnum á Hvammstanga í yfir 40 ár. KIDKA er í eigu Irinu Kamp og Kristins Karlssonar.  Framleiðslan er nær eingöngu úr íslenskri ull sem keypt er af Ístex ehf. í Mosfellsbæ. 
 
Irina segir að ferðamanna­straumurinn til þeirra aukist ár frá ári. Það hefur ekki síst vakið áhuga ferðamanna að þar gefst fólki kostur á að ganga um verksmiðjuna og sjá fólk að störfum. Þannig kynnist fólk því frá fyrstu hendi að um ósvikna alíslenska prjónavöru er að ræða. Prjónavélarnar eru þó þýskar að uppruna. Nafn fyrirtækisins segir Irina vera sprottið upp úr orðaleik föður síns með nöfn þeirra Kristins. 
 
Tíu manna vinnustaður
 
„Það eru í kringum tíu manns að vinna hér núna.Við erum að framleiða peysur og smávörur úr íslenskri ull. Það er mjög vinsælt hjá ferðamönnum að sjá að þetta er raunverulega framleitt hér, en ekki í Kína eða annars staðar,“  segir Irina. 
 
„Þetta skiptir máli því það getur verið mjög villandi fyrir kaupendur sem vilja kaupa íslenskar vörur að sjá kannski bara merkinguna Design in Iceland, en ekkert um það hvar varan er framleidd. 
Þá þykir ferðamönnum líka gaman að horfa hér út um gluggana, en í sjónum á firðinum hér fyrir framan má oft sjá hvali. Það þykir þeim mjög merkilegt.“ 
 
Opið hús
 
Einn angi af þeirri viðleitni að kynna almenningi vörur fyrirtækisins var að í prjónastofunni var opið hús og haldin kynning eða tískusýning 3. desember síðastliðinn fyrir gesti og heimafólk. Var viðburðurinn vel sóttur og báru krakkarnir sem þar sýndu sig mjög fagmannlega.
 
Starfsemin gengur vel
 
Irina segir sölu á þeirra vörum ganga vel. 
„Það hafa verið sveiflur í þessu, en nú gengur vel og ullin er alltaf vinsæl. Það var svolítið erfitt þegar flísefnið kom, en nú vill fólk frekar fá vörur úr náttúrulegum efnum. Við erum að selja hér í versluninni hjá okkur og í verslunum í Reykjavík, á Akureyri og úti um allt land. Sem stendur erum við eingöngu að framleiða okkar vörulínu. Við höfum framleitt fyrir Þýskalandsmarkað og fyrir Rússland, en þar sem gengið er nú óhagstætt þá höldum við okkur bara við heimamarkað.“
 
„Svo er merkið okkar KIDKA að verða nokkuð þekkt hjá ferðamönnum. Þá erum við að búa til netverslun á heimasíðu okkar svo Íslendingar geti líka verslað þar. Við leggjum því mikla áherslu á að kynna starfsemina fyrir Íslendingum og að þeir geti pantað okkar vörur á netinu.“
 
Flíkurnar ýfðar með spænskum könglum
 
Irina segir íslensku ullina sérstaka um margt og t.d. sé hægt að ýfa hana sem ekki er hægt með alla ull. Fer ýfingin fram í sérstökum vélum þar sem notaðir eru náttúrulegir könglar frá Spáni sem þykja ekki síðri til þessara verka en einhverjar gaddaspólur úr stáli. 
 
„Ég er frá Þýskalandi en hef búið hér í 20 ár. Ég kom hingað og var að temja hesta. Ég var svo í hestamennsku í mörg ár og þá m.a. að ferðast með túrista yfir hálendið. Síðan hef ég verið hér og á nú helminginn í þessu fyrirtæki. 
 
Prjónaiðnaður á Hvammstanga síðan 1972
 
Miklar sviptingar hafa verið í prjónaiðnaðinum á Íslandi  í gegnum tíðina. Einna þekktastar eru verksmiðjur Álafoss í þáverandi Mosfellssveit og öflugar verksmiðjur Sambandsins á Akureyri. Prjónafyrirtæki hafa síðan komið og farið og önnur stofnuð á þeirra grunni. Segja má að KIDKA sé byggð á slíkum grunni. 
 
Prjónastofan Drífa hf. var stofnuð á Hvammstanga árið 1972. Undir síðustu aldamót var stofnað sérstakt félag um framleiðsluna undir nafninu Ísprjón ehf. Undir nafninu Drífa ehf. varð þá sölu- og markaðshluti fyrirtækisins. 
 
Ísprjón/Drífa fluttu svo í nýtt einnar hæðar rúmgott 1.000 fermetra stálgrindarhús árið 2000, en húsið, sem var í eigu nokkurra heimamanna, var reist árið 1999. Kristinn Karlsson var þá framleiðslustjóri fyrirtækisins. Hluti af tækjabúnaðinum kom frá prjónastofunni Foldu á Akureyri. Í kjölfar gjaldþrots þess fyrirtækis 1998 var prjónadeild fyrirtækisins keypt til Hvammstanga. Vefstólar Foldu voru hins vegar seldir með vefdeild Foldu til Skagastrandar.
 
Við flutninginn í nýja húsið í júlí árið 2000 flutti Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra ræðu og sagði það merkilega staðreynd að á Hvammstanga væri ein fullkomnasta og trúlega stærsta prjónastofa í ullariðnaði í Norður-Evrópu. Þarna er nú aðsetur KIDKA í dag. 
 
Ísprjón/Drífa verður Freyjuprjón og síðan KIDKA 
 
Ísprjón/Drífa tók síðan breytingum. Rússar komu inn sem eignaraðilar ásamt BYKO og fékk fyrirtækið þá nafnið Freyjuprjón sem um árabil var ein af stærstu prjónastofum landsins. Irina Kamp og Kristinn Karlsson keyptu síðan Freyjuprjón af BYKO og Rússum 2008. Fékk fyrirtækið þá nafnið KIDKA. Lesendur geta svo kynnt sér hvað þar er á boðstólum á vefslóðinni www.kidka.com

8 myndir:

Skylt efni: KIDKA | íslensk ull | prjónastofa

Auknar fjárveitingar til viðhalds varnarlína í Miðfjarðarhólfi
Fréttir 8. júní 2023

Auknar fjárveitingar til viðhalds varnarlína í Miðfjarðarhólfi

Fjárveitingar til viðhalds á tveimur varnarlínum sauðfjársjúkdóma milli Miðfjarð...

Nýr lausapenni
Fréttir 8. júní 2023

Nýr lausapenni

Umfangsmeira Bændablað kallar á mannafla og er Þórdís Anna Gylfadóttir nýr liðsf...

Dregur úr innlendri framleiðslu nautakjöts
Fréttir 8. júní 2023

Dregur úr innlendri framleiðslu nautakjöts

Samdráttur í nautakjötsframleiðslu nú er afleiðing lægra afurðaverðs árið 2021 a...

Eitt sýni jákvætt á Urriðaá
Fréttir 8. júní 2023

Eitt sýni jákvætt á Urriðaá

Nú er ljóst að eina staðfesta riðuveikitilfellið á Urriðaá í Miðfirði var í kind...

Ályktað um innflutning og upprunamerkingar
Fréttir 8. júní 2023

Ályktað um innflutning og upprunamerkingar

Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga, sem haldinn var á Sauðárkróki þann 6. júní s...

Eftirmál riðuveiki
Fréttir 8. júní 2023

Eftirmál riðuveiki

Sauðfjárbændurnir á Urriðaá og Bergsstöðum í Miðfirði standa saman í erfiðum sam...

Óvissa um starfsemi BÍL
Fréttir 7. júní 2023

Óvissa um starfsemi BÍL

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga (BÍL) lýsir yfir vonbrigðum með drátt ...

Vilja flytja út færeysk hross
Fréttir 6. júní 2023

Vilja flytja út færeysk hross

Til þess að bjarga færeyska hrossastofninum frá aldauða hefur komið til skoðunar...