Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026
Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum frá 23. október. Mismunandi tímabil er innan hvers veiðisvæðis. Verndarsvæði verður á Reykjanesi líkt og undanfarin ár.
Veiðisvæðin eru eftirfarandi:
| Austurland | 23. október – 22. desember |
| Norðausturland |
23. október – 1. desember |
| Norðvesturland | 23. október – 17. nóvember |
| Suðurland | 23. október – 17. nóvember |
| Vesturland |
23. október – 1. desember |
| Vestfirðir |
23. október – 24. nóvember |
Á vef stjórnarráðsins er ítrekað að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra.
Einnig segir að fyrirkomulag rjúpnaveiði í ár byggir á þeim grunni sem lagt var upp með í samvinnu hagaðila við gerð stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpnastofninn sem gerð var árið 2024. Lagt sé upp með að það hafi jákvæð áhrif á bæði rjúpnastofninn og alla hagaðila
Er veiðimönnum bent á að kynna sér takmarkanir á veiðum á friðlýstum svæðum og eru þeir hvattir til góðrar umgengi um náttúru landsins.
