Körfur úr víði sem Katrín gerði í Skotlandi í vor. Henni þykir gaman að sjá muninn milli víðitegunda og yrkja í handverkinu.
Körfur úr víði sem Katrín gerði í Skotlandi í vor. Henni þykir gaman að sjá muninn milli víðitegunda og yrkja í handverkinu.
Mynd / Katrín Dröfn Guðmundsdóttir
Viðtal 31. ágúst 2026

Ræktar víði til handverks

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Í Túngarði í Dalabyggð er ræktaður víðir til tágaframleiðslu. Katrín Dröfn Guðmundsdóttir, þjóðfræðingur og garðyrkjuáhugakona, stendur að baki verkefninu. Markmiðið er að byggja upp framleiðslu á tágum fyrir handverk, líkt og körfur, girðingar og húsgögn.

Katrín Dröfn Guðmundsdóttir.

Katrín býr hluta úr árinu í Túngarði á Fellsströnd í Dalabyggð og er annars búsett í Reykjavík. Hún hefur lengi stundað garðyrkju og unnið að handverki. Ræktunin í Túngarði hófst af alvöru árið 2025 og er hún nú búin að gróðursetja tæplega 6.000 víðiplöntur.

Garðyrkja og handverk mætast

„Þetta er sjötta sumarið mitt í Túngarði,“ segir Katrín. Hún ólst upp í garðyrkju og vann hjá föður sínum sem var með skrúðgarðafyrirtækið Garðaprýði. Áhuginn á þjóðháttum og handverki mættu garðyrkjuþekkingunni í þeirri hugmynd að rækta víði til handverksnota. „Ég fór á Reykjalund og lærði að gera körfur úr bambus og þá kviknaði þessi áhugi. Mig langaði að gera körfur úr víði en það var hvergi hægt að kaupa tága í slíkt. Ég er svo hvatvís að ég hugsaði með mér: ég á þetta stóra land og ég kann að rækta, ég ætla bara að rækta efniviðinn sjálf.“ Verkefnið fór af stað af alvöru eftir að Katrín hlaut styrk frá DalaAuð fyrir verkefni í kringum Brothættar byggðir og frá Uppbygingarsjóði Vesturlands.

Ákveðin tilraunaræktun

Um 6.000 plöntur eru komnar í jörðu. „Ég er í rauninni í tilraunaræktun. Víðirinn er gróðursettur þétt til að árssprotarnir séu í meiri kappi við birtuna og vaxi þá meira,“ segir Katrín. Í Túngarði eru yfir 50 yrki af víði. „Ég er að prófa ýmislegt, svo grisja ég og bæti í eftir því hvað virkar. Mig langar að vera með fjölbreytta tága fyrir ólík handverk.“

Það fara margar plöntur í hvert handverk. „Maður þarf fulla uppskeru af tíu plöntum til að gera körfu svo mig langar að fara upp í 30.000 plöntur sem fyrst til að geta gert stærri muni,“ segir Katrín. Hún er búin að búa til beð fyrir næsta vor fyrir 10.000 plöntur og stefnan er að stækka upp í 30.000 plöntur árið 2028.

Körfuvíðir.

Körfur, girðingar og líkkistur

Katrín fór á námskeið í Skotlandi til að læra að gera ofin handverk hjá litlu fyrirtæki sem kallast Naturally Useful. „Þarna lærði ég ýmislegt og gerði nokkrar körfur en ég sé fyrir mér að vinna stærri handverk í framtíðinni. Ég er mjög spennt fyrir því að prófa að gera líkkistur. Þær eru svo fallegar, ofnar úr víði, og maður getur jafnvel ofið blóm eða aðrar jurtir með.“ Katrín stefnir á að fara út á næsta ári til að læra að gera líkkistur en þær hafa reynst mjög vinsælar að sögn staðarhaldara Naturally Useful. Katrín er einnig spennt fyrir því að prófa að nota víðinn við árbakka til að koma í veg fyrir jarðvegsrof en það er mikið um slík verkefni erlendis að sögn Katrínar. 

Ferlið hægt en sjarmerandi

„Erlendis tekur það fimm ár að fá fulla uppskeru frá hverri plöntu en það er erfitt að segja hvað þetta tekur langan tíma hérlendis, kannski sjö eða átta ár. Ég er fyrst til að rækta þetta svona á Íslandi svo maður veit það ekki,“ segir Katrín. „Árssprotarnir eru notaðir í handverkið og það tekur langan tíma að þurrka þá. Það fer eftir þykkt greinanna en getur tekið allt að átta vikur. Þetta er hægt ferli en sjarmerandi.“ Þegar plönturnar hafa náð ákveðinni stærð klippir Katrín tágana, flokkar eftir stærð og tegund og setur í búnt sem hún leggur í hjall. Til að vefa úr tágunum þarf síðan að leggja þá aftur í bleyti til að mýkja þá upp og tekur það nokkrar vikur. „Það er þó öðruvísi með lifandi girðingar og strúktúra, þá er þeim stungið beint í jörð því maður vill fá rætur svo ekki þarf að þurrka. Þá er strúktúrinn gerður með það í huga að hann vaxi áfram og laufgist,“ útskýrir Katrín.

Stemning fyrir handverki í sveitinni

„Það er stemning fyrir þessu í sveitinni. Hér í nágrenninu er Urður ullarvinnsla, við erum spenntar fyrir því að búa til vörur og efnivið fyrir handverk.“ Katrín stefnir á að selja tága, að gera eigin handverk, auk þess sem hún sér fyrir sér að halda námskeið. „Mig langar í samfélag í kringum þetta verkefni. Það eru svo margir sem geta nýtt sér tága, fólk í garðyrkju, handverksfólk, listamenn, það er hægt að nota þetta í alls konar. Ég er mjög opin fyrir samstarfi og ef fólk langar að vera með í þessari tilraunastarfsemi þá hef ég áhuga á því, fólk á að vinna saman, læra hvert af öðru, það er framtíðin.“ 

Skylt efni: túngarður

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt