Nýr starfshópur um ferjuáætlun
Nýr starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar hefur hafið störf. Hópnum er ætlað að greina stöðu ferjusiglinga og móta heildstæða stefnu ásamt aðgerðaáætlun um öruggar og áreiðanlegar ferjusamgöngur á Íslandi. Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir 1. desember næstkomandi.
„Það er brýn nauðsyn að móta fyrstu heildstæðu stefnu til framtíðar um ferjusamgöngur á Íslandi. Mikilvægt er að greina þarfir fyrir slíkar samgöngur og hvernig best fer á því að skipuleggja þær með tilliti til samgönguþarfa, öryggis og orkuskipta,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Stefnt er að því að í aðgerðaáætluninni verði m.a. sett fram framkvæmda- og kostnaðaráætlun um endurnýjun ferjuflotans. Á vef Stjórnarráðs Íslands segir að lögð sér áhersla á að starfshópurinn eigi gott samráð við hagaðila. Af þeim sökum hafi sérstaklega verið óskað eftir tengiliðum frá sveitarfélögum sem treysta á ferjusamgöngur. Starfshópurinn muni eiga samráð við tengiliðina og gefa þeim kost á að veita umsögn um drög að niðurstöðum áður en þeim er skilað til ráðherra.
Starfshópurinn var skipaður í samræmi við aðgerð 1.11 í þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040.
Starfshópurinn er þannig er þannig skipaður:
- Sóley Ragnarsdóttir, formaður, án tilnefningar,
- Hilmar Stefánsson, tilnefndur af Vegagerðinni
- Jón Gunnar Jónsson, tilnefndur af Samgöngustofu
- Sunna Þórðardóttir, tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu
