Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri hjá Hey – Ferðaþjónustu bænda.
Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri hjá Hey – Ferðaþjónustu bænda.
Fréttaskýring 31. júlí 2019

Mikið áfall fyrir alla

Höfundur: Vilmundur Hansen

Berglind Viktorsdóttir, gæða­stjóri hjá Hey – Ferða­þjónustu bænda, segir að Efstidalur II sé innan Hey Iceland fjölskyldunnar, sem saman­stendur af félögum á um 170 stöðum um land allt.

„Síðustu daga og vikur hefur hugur hópsins verið bæði hjá fjölskyldum þeirra barna sem urðu fyrir sýkingu og hjá stórfjöl­skyldunni í Efstadal II.“

Býlið hefur sannarlega verið undir smá­sjánni undanfarið enda á þessi faraldur sér ekki fordæmi hér á landi. Allt frá upphafi ferðaþjónustunnar á bænum, sem má rekja til ársins 2002, hefur fjölskyldan lagt áherslu á að tengja saman ferðaþjónustu og landbúnað og það varð til þess að Efstidalur II komst á kortið sem eftirsóknarverður staður til að heimsækja. Það er því erfitt að setja sig í spor fjölskyldunnar núna en ljóst er að áfallið er mikið, bæði fyrir þau persónulega og fyrir rekstur staðarins.

Það liggur ljóst fyrir að E-coli bakterían finnst víða í umhverfinu og því er mikilvægt að koma í veg fyrir að sambærileg tilfelli gerist aftur hér á landi. Öll getum við dregið okkar lærdóm af þessu og saman leggjum við okkar af mörkum til að tryggja að þetta gerist ekki aftur. Til dæmis þurfa eftirlitsaðilar að fylgja skýrum og samræmdum reglum og hafa virkt eftirlit, staðarhaldarar þurfa að brýna mikilvægi handþvotta og tryggja viðeigandi aðstöðu til þess. Þá er það ábyrgð okkar allra að passa upp á hreinlæti og handþvott með sápu og vatni auk spritts. Þá væri vert að koma upp skýrum samræmdum leiðbeiningum til gesta varðandi umgengni við dýrin.

Við viljum ekki glata þeim mögu­leika sem felst í því að heimsækja dýrin í sveitinni og bragða á matvælum beint frá býli. Þetta er jarðtengingin okkar við náttúru landsins og lífið í sveitinni og með því að læra af reynslunni, bregðast við og halda áfram veginn tryggjum við öruggara umhverfi fyrir okkur öll.“

Tafarlausra hnattrænna aðgerða þörf
Fréttaskýring 9. mars 2026

Tafarlausra hnattrænna aðgerða þörf

Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) hefur sent frá sér nýja skýrslu, GEO-...

Erfiður áratugur að baki og bjartari tímar í vændum
Fréttaskýring 6. mars 2026

Erfiður áratugur að baki og bjartari tímar í vændum

Þau sögulegu tíðindi urðu á árunum 2022–2023 að mannfjöldi á Íslandi varð meiri ...

Minni tekjuvöxtur 2024 en afkoma batnaði lítillega
Fréttaskýring 4. mars 2026

Minni tekjuvöxtur 2024 en afkoma batnaði lítillega

Afkoma í landbúnaði batnaði lítillega á árinu 2024 miðað við fyrri ár, þrátt fyr...

Veltihringrás Atlantshafsins veikist
Fréttaskýring 17. febrúar 2026

Veltihringrás Atlantshafsins veikist

Veltihringrás Atlantshafsins, AMOC, er að veikjast og rannsóknir benda til aukin...

Fríverslunarsamningur EFTA við Mercosur
Fréttaskýring 30. janúar 2026

Fríverslunarsamningur EFTA við Mercosur

Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) skrifuðu 16. september síðastliðinn undir fríve...

Vindurinn fái farveg
Fréttaskýring 23. janúar 2026

Vindurinn fái farveg

Enn ríkir óvissa um hlut vindorku í orkuframboði vegna lagaumhverfis og kærumála...

Óvissa og áskoranir í þróun orkumála
Fréttaskýring 19. desember 2025

Óvissa og áskoranir í þróun orkumála

Samkvæmt nýútgefinni Orkuspá fyrir Ísland eru umtalsverðar áskoranir og mikil óv...

Íslendingar fá 45% hitaeininga úr gjörunnum matvælum
Fréttaskýring 4. desember 2025

Íslendingar fá 45% hitaeininga úr gjörunnum matvælum

Niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar leiða í ljós að í fæðuneyslu landsmanna...