Staðan á verklegri kennslu í skrúðgarðyrkju er óviðunandi á Reykjum.
Staðan á verklegri kennslu í skrúðgarðyrkju er óviðunandi á Reykjum.
Mynd / Edda Kristín Sigurjónsdóttir
Fréttir 12. mars 2026

Beðið eftir stefnumótun fyrir garðyrkjunám á Íslandi

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Enn er beðið eftir pólitískri stefnumótun um málefni garðyrkjunáms á Íslandi, en Garðyrkjuskólinn á Reykjum hefur verið vanfjármagnaður frá því að Fjölbrautaskóli Suðurlands (FSu) tók við honum á árinu 2022.

Fyrir um ári síðan sendi Soffía Sveinsdóttir, skólameistari FSu, Ásthildi Lóu Þórsdóttur þáverandi mennta- og barnamálaráðherra minnisblað vegna bágrar stöðu garðyrkjunámsins á Reykjum. Síðan hafa tveir ráðherrar tekið við ráðuneytinu með frekari töfum á afgreiðslu erindisins.

Aftur gert að sjálfstæðri einingu

Í minnisblaðinu kallaði Soffía eftir pólitískri stefnu um hvað gera eigi við garðyrkjunám á Íslandi. Þar lagði hún til að garðyrkjunám yrði aftur gert að sjálfstæðri einingu eins og hann var frá stofnun hans 1939 og þangað til hann var sameinaður Landbúnaðarháskóla Íslands í byrjun árs 2005.

Til vara var lagt til að starfsemin yrði áfram undir FSu, en með auknu fjármagni svo hægt væri að endurnýja húsakost, hreinsa til á svæðinu eftir margra ára niðurníðslu, auk fjármagns til að endurskoða námsbrautir, efla starfsmenntanámið og fara í markaðsátak til að laða yngri nemendur að skólanum.

Húsakostur í óviðunandi ástandi

Á þessu ári sem liðið er frá því að minnisblaðið var sent hefur lítið gerst til hagsbóta fyrir Garðyrkjuskólann, en hluti af húsakosti skólans hefur verið í óviðunandi ástandi. Að sögn Soffíu eru endurbætur á aðalbyggingu skólans þó langt komnar en þær hófust á árinu 2020. Aðstaða til verklegrar kennslu í skrúðgarðyrkju sé hins vegar óviðunandi og brýnast að bæta þar úr. Þá sé aðstaða til verklegrar kennslu í blómaskreytingum til bráðabirgða.

Önnur aðstaða til verklegrar kennslu, á öðrum brautum, sé í ágætu standi, en tilraunagróðurhús skólans nýtist einnig til kennslu á garðyrkjuframleiðslubrautum. Þá segir hún skóginn í kringum skólann, sem og útisvæði skólans, nýtast vel í verklega kennslu á ýmsum brautum skólans. Þó hafi starfsfólk vantað á undanförnum árum til að sinna útisvæðinu nægilega vel.

Verulegt fjármagn lengi vantað

Fyrir ári var staðan sú að verulegt fjármagn vantaði inn í reksturinn á skólanum til að hægt væri að halda við eðlilegri starfsemi og sinna viðhaldi. Einnig var talið brýnt að efla námið og uppfæra námskrá, sem síðast hafi verið gert á árinu 2018. Undirbúningsvinna sé þó farin af stað fyrir þá uppfærslu. „Hún er unnin í samstarfi við fagnefndir garðyrkjubrauta og í þeim sitja fulltrúar atvinnulífs viðkomandi atvinnugreinar og með því móti geta atvinnugreinarnar komið sínum sjónarmiðum beint á framfæri við endurskoðunina.

FSu hefur tryggt kennslu og óbreytt námsframboð fyrir nemendur garðyrkjuskólans hingað til (nema að blómaskreytingabraut var ekki kennd frá hausti 2024, en þá voru of fáir umsækjendur). Kostnaður við Reyki hefur verið meiri en fjármagnið sem skólinn fær fyrir garðyrkjunámið, þannig að rekstur garðyrkjunámsins hefur bitnað á annarri starfsemi FSu og valdið hallarekstri undanfarin ár,“ útskýrir Soffía.

Tveir starfshópar

Tveir starfshópar voru skipaðir eftir tilfærslu skólans undir FSu, sem áttu að skila tillögum til úrbóta. Soffía segir þann fyrri hafa skilaði skýrslu í lok árs 2022, með metnaðarfullum tillögum. Sá seinni tók til starfa í ágúst 2023. Hann átti að fylgja fyrri niðurstöðum eftir og var gert ráð fyrir að hópurinn myndi skila drögum í október sama ár, en engar tillögur komu hins vegar frá honum.  

„Við yfirfærslu námsins frá Landbúnaðarháskólanum yfir til FSu fylgdi ekki það fjármagn sem þurfti til að reka garðyrkjunámið og ekki hefur verið tryggt fjármagn til uppbyggingar á svæðinu, eins og starfshópurinn gerði tillögu um,“ heldur Soffía áfram.

„Garðyrkjunámið er metnaðarfullt og faglegt og undirbýr nemendur vel undir störf í atvinnulífi garðyrkjunnar. Nemendur eru almennt ánægðir með kennsluna og segja fagþekkingu kennara til mikillar fyrirmyndar, en gera athugasemdir við aðstöðuna. 

Nauðsynlegt er að fá pólitísk svör sem fyrst um framtíð námsins. Ef námið á að vera áfram á Reykjum, þá þarf að tryggja skólastarfinu eðlilega framfærslu og aðbúnað sem er að minnsta kosti áþekkur öðrum iðn- og starfsmenntagreinum. Nú liggur mest á að ljúka framkvæmdum við aðalbyggingu skólans og koma upp aðstöðu fyrir verklega kennslu í skrúðgarðyrkju.“  

Samfélagslega mikilvægur skóli

Guðríður Helgadóttir, staðarhaldari á Reykjum og sviðsstjóri garðyrkjubrauta Fjölbrautaskóla Suðurlands, tekur í sama streng og Soffía og segir að staðan sé mikið til óbreytt enda hafi mikið verið um mannabreytingar í fagráðuneyti skólans og það taki tíma fyrir nýja aðila að setja sig inn í hlutina. 

„Það sem háir okkur helst er að ekki hefur verið tryggt nægilegt rekstrarfé fyrir þessa einingu, það þarf að ljúka framkvæmdum við aðalbyggingu skólans, þó þær eru langt komnar. Aðstaða til verklegrar kennslu í skrúðgarðyrkju er orðin mjög bágborin. Það er að okkar mati verkefni stjórnvalda að tryggja framtíð garðyrkjumenntunar á framhaldsskólastigi í landinu.

Það sér hvert mannsbarn að það er gífurlega mikilvægt fyrir samfélagið að hægt sé að mennta fólk til garðyrkjustarfa hér innanlands, Garðyrkjuskólinn framleiðir fólkið sem framleiðir matvæli, skógarplöntur, garðplöntur og annan gróður, mótar umhverfi og klæðir landið gróðri.  

Í vor er öflugur nemendahópur að klára hjá okkur og hlökkum við til að sjá þau hasla sér völl í faginu. Við verðum líka vör við mikinn áhuga á náminu enda erum við að taka inn nýjan nemendahóp í haust. Við leggjum ekki árar í bát þótt aðstaðan gæti verið betri, þess í stað einbeitum við okkur að því að bjóða upp á faglega metnaðarfullt nám sem uppfyllir kröfur atvinnulífsins og býr nemendur vel undir framtíðina í garðyrkju, hún er svo sannarlega björt.“

Inntaki og sýnileika námsins breytt

Ákvörðun mennta- og menningarmálaráðherra árið 2021 um yfirfærslu á garðyrkjunáminu frá Landbúnaðarháskólanum til FSu var tekin eftir að starfshópur ráðherra skilaði niðurstöðu um framtíðarskipulag námsins.

Tilefnið þess að starfshópurinn var skipaður var sagt vera að vaxandi áhyggjur voru meðal hagaðila í garðyrkjugreinum sem töldu að verið væri að breyta inntaki og sýnileika námsins. Var á það bent að starfsmenntanám eins og það á Reykjum sé í raun, væri nær því að vera á framhaldsskólastigi og ætti því ekki að vera kennt við háskóla.

Skylt efni: Garðyrkja | Byggingar

Fólk fylgir ekki næringarráðleggingum
Fréttir 13. mars 2026

Fólk fylgir ekki næringarráðleggingum

Offita er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Danir fylgja ekki opinberum næ...

Ostur er ostur
Fréttir 13. mars 2026

Ostur er ostur

Í gær vísaði Landsréttur máli Danóls ehf. gegn ríkinu vegna tollflokkunar á pizz...

Tæp 60% hafa aðgang að afleysingu
Fréttir 13. mars 2026

Tæp 60% hafa aðgang að afleysingu

Um 57% bænda í Bændasamtökum Íslands hafa aðgang að afleysingafólki samkvæmt kön...

Beðið eftir stefnumótun fyrir garðyrkjunám á Íslandi
Fréttir 12. mars 2026

Beðið eftir stefnumótun fyrir garðyrkjunám á Íslandi

Enn er beðið eftir pólitískri stefnumótun um málefni garðyrkjunáms á Íslandi, en...

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum
Fréttir 12. mars 2026

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum

Í undirbúningi er átak í endurheimt votlendis á ríkisjörðum í umsjón Lands og sk...

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði
Fréttir 12. mars 2026

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði

Alls uppfylltu 47 kúabú skilyrði Auðhumlu um framleiðslu á úrvalsmjólk alla mánu...

Setja ætti niður samningsmarkmið
Fréttir 12. mars 2026

Setja ætti niður samningsmarkmið

Bændasamtök Íslands (BÍ) setja sig ekki upp á móti því að áframhald viðræðna við...

Nýr vettvangur frumframleiðenda og ferðaþjónustuaðila
Fréttir 11. mars 2026

Nýr vettvangur frumframleiðenda og ferðaþjónustuaðila

Slow Food á Íslandi stendur fyrir stefnumóti frumframleiðenda og ferðaþjónustunn...