Tæp 60% hafa aðgang að afleysingu
Um 57% bænda í Bændasamtökum Íslands hafa aðgang að afleysingafólki samkvæmt könnun Bændablaðsins á meðal bænda innan Bændasamtaka Íslands.
Aðeins 35% garðyrkjubænda segjast hafa aðgang að afleysingafólki og 40% skógræktar- og svínabænda. Staðan er skárri í öðrum búgreinum, en innan flestra þeirra svöruðu á milli 50–60% bænda könnuninni játandi.
Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Bændablaðsins meðal félagsmanna í Bændasamtökum Íslands en þeir eru um 2.600 talsins. Svör bárust frá 380 félagsmönnum sem er 14,6% þátttaka. Könnunin stóð frá 3.–10. mars.
