Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri
Mynd / Úr safni
Fréttir 14. mars 2026

Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Dagana 16.-17. mars næstkomandi verður nýsköpunarvinnustofa í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri á vegum LbHÍ og Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem slík vinnustofa er haldin.

„Hugmyndin er að nota sprotafyrirtæki sem þegar eru starfandi sem dæmi um hvernig hægt er að þróa hugmynd frá upphafi yfir í raunverulegt verkefni, og hvernig má fylgja henni eftir og láta hana vaxa,“ segir Alexander Schepsky, framkvæmdastjóri Gleipnis.

Á staðnum verða sjö nýsköpunarfyrirtæki; Svepparíkið, Sveppasmiðjan, Lava Seaweed, Hvammsskel, Stormur, Hringvarmi og Sea Growth.

„Við vonumst til að fá hugmyndir frá nemendum LbHÍ um hvernig megi draga úr matarsóun, nýta betur hliðarstrauma í landbúnaði og sjávarútvegi, spara orku eða nýta glatvarma á skilvirkari hátt,“ segir Alexander.

Hægt er að kynna sér vinnustofuna frekar á vefsíðu LbHÍ. „Við vonum að þetta kveiki umræðu og samstarf um hvernig megi nýta betur þær auðlindir sem Ísland hefur upp á að bjóða,“ segir Alexander að endingu.

Svepparíkið Þróar sjálfbært ræktunarkerfi fyrir sælkerasveppi sem nýtir lífræna hliðarstrauma úr landbúnaði í hringrásarvæna matvælaframleiðslu. 
Sveppasmiðjan Byggir upp samþætt aquaponics-kerfi þar sem sveppir, grænmeti og fiskar eru ræktaðir saman í sjálfbæru framleiðslu- og rannsóknarumhverfi.
Lava Seaweed

Þróar landbundna ræktun á rauðþörungum sem nýtir næringarríkt frárennslisvatn úr fiskeldi í hringrásarkerfi. 

Hvammsskel Fjölskyldurekið fyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu bláskeljaræktar í Hvammsfirði og aukinni framleiðslu íslenskrar skeljar. 
Stormur Þróar lausnir þar sem gagnaver eru staðsett þannig að orka og afgangshiti nýtist betur í samfélaginu. 
Hringvarmi Nýtir afgangshita frá gagnaverum til að knýja staðbundnar einingar fyrir matvælaframleiðslu og bæta orkunýtingu. 
Sea Growth Þróar frumuræktað sjávarfang þar sem fiskfrumur eru ræktaðar til að framleiða sjálfbæran fisk án veiða eða hefðbundins fiskeldis.

    Skreiðarhjallur í Torino
    Fréttir 13. október 2026

    Skreiðarhjallur í Torino

    „Við höfðum mikið að segja, tókum okkar pláss og vöktum gríðarlega athygli,“ seg...

    Meiri lægðagangur í NV-Evrópu
    Fréttir 13. október 2026

    Meiri lægðagangur í NV-Evrópu

    Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir of...

    Koma öðrum flokki ekki í verð
    Fréttir 13. október 2026

    Koma öðrum flokki ekki í verð

    Gulræturnar eru á leið á markað en sökum tíðarfars verður hlutfall annars flokks...

    Djúp lægð nálgast landið
    Fréttir 12. október 2026

    Djúp lægð nálgast landið

    Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við djúpri lægð sem nálgas...

    Ráðleggingar frá grasalækninum
    Fréttir 12. október 2026

    Ráðleggingar frá grasalækninum

    Fjölmargar jurtir hafa lækningamátt og hafa verið notaðar í þúsundir ára. Í flen...

    Vel sótt Landbúnaðarsýning
    Fréttir 12. október 2026

    Vel sótt Landbúnaðarsýning

    Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-1...

    Íslensk klassík með amerískan hatt
    Fréttir 12. október 2026

    Íslensk klassík með amerískan hatt

    Karamellusnúðurinn sem fæst í hverju bakaríi og nær hverri kjörbúð er klassískur...

    Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði
    Fréttir 12. október 2026

    Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði

    Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að ...