Yfirlit IFCN um meðalstærð kúabúa (kýr og buffalóar) árið 2025.
Yfirlit IFCN um meðalstærð kúabúa (kýr og buffalóar) árið 2025.
Mynd / IFCN
Á faglegum nótum 30. september 2026

Spá mjólkurskorti í heiminum

Höfundur: Snorri Sigurðsson

IFCN (International Farm Comparison Network) eru alþjóðleg samtök sem vinna að því að bera saman margs konar upplýsingar um framleiðslu og framleiðslukostnað mjólkur í helstu mjólkurframleiðslulöndum heimsins. IFCN gefur út reglulega skýrslur þar sem borin eru saman margs konar fróðleg gögn um heimsframleiðslu mjólkur og í nýlegri skýrslu um stöðu heimsmála árið 2025 kom m.a. fram að árið hafi verið afar hagstætt fyrir mjólkurframleiðslu víða um heim. Heimsframleiðsla mjólkur jókst t.d. um 2,8% milli ára, sem er meira en meðalvöxtur síðasta áratugar, og eftirspurn hélt áfram að aukast samhliða framleiðslunni.

Asía og Afríka í sókn

Þrátt fyrir framleiðsluaukningu mjólkur, sem á sér stað nú um stundir í heiminum, þá spáir IFCN því að eftirspurn muni á næstu árum vaxa hraðar en framboðið. Það verði með öðrum orðum skortur á mjólkurvörum, sem þýðir í raun tækifæri fyrir framleiðendur víða um heim. Skýringin felst að líkindum í þeirri staðreynd að það sjást skýr merki um að vöxtur mjólkurframleiðslunnar sé að færast í auknum mæli til Afríku og Asíu en þar eru búin, a.m.k. enn sem komið er, frekar smá og afurðasemi kúnna lág. Fyrir vikið vantar kraftinn í að fylgja eftir breytingum á markaðinum og því tekur lengri tíma fyrir mjólkurframleiðslu heimsins að svara aukinni eftirspurn. Árið 2025 var þó svolítið sérstakt því þá jókst framleiðslan meira í bæði Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og Suður-Ameríku en sést hefur í mörg ár. 

Gott ár fyrir mjólkurframleiðendur

Árið 2025 einkenndist af góðu jafnvægi og hækkaði meðal afurðastöðvaverð að jafnaði um 11%, miðað við mjólkur- verðsvísitölu IFCN. Samkvæmt útreikningunum var meðal afurðastöðvaverðið 48,9 Banda- ríkjadalir fyrir hver 100 kg af orkuleiðréttri mjólk, eða sem nemur 59,45 ÍKR á innlagðan mjólkurlítra. Á sama tíma lækkaði fóðurverð frá fyrra ári sem bætti afkomu margra framleiðenda víða um heim.

Skýrsluhöfundar benda einnig á að veðurfar hafi almennt verið hagstæðara en undanfarin ár og t.d. voru áhrif El Niñoveðurfyrirbærisins, sem höfðu haft neikvæð áhrif á fóðuröflun og framleiðslu víða árið 2023 og 2024, óveruleg árið 2025. Fyrir vikið var beitargróður nægur og gróffóður einnig af góðum gæðum. Þá virðist sem hitastreita hafi verið minni en mörg undanfarin ár. Enn fremur er talið að áhrif búfjársjúkdóma á framleiðsluna hafi verið minni en árið áður og þá sérstaklega áhrif blátungu í Evrópu.

Neysla heldur áfram að aukast

Þrátt fyrir aukna umræðu um jurtaafurðir, grænmetisfæði og aðrar staðgönguvörur við mjólkurvörur sýna tölur IFCN að mjólkurneysla hélt áfram að aukast á heimsvísu og jókst hún um 2,7%. Það sem er sérstaklega áhugavert við þessa aukningu er að stærsti hluti hennar kom ekki til vegna fólksfjölgunar heldur vegna aukinnar neyslu á mann. Þar vega þungt lönd eins og Indland og Pakistan, þar sem hækkandi tekjur gera sífellt fleiri heimilum kleift að kaupa reglulega mjólkurvörur. Einnig jókst eftirspurn verulega í mörgum löndum Suður-Ameríku.

Þetta er sérstaklega áhugaverð þróun, því umræðan í Evrópu og Norður-Ameríku getur stundum gefið þá mynd að mjólkurvörur eigi undir högg að sækja. Þegar heimurinn allur er aftur á móti skoðaður er hins vegar ljóst að milljarðar manna reiða sig í síauknum mæli á mjólkurvörur, enda mikilvæg uppspretta próteina og annarra næringarefna.

Færri bú en fleiri dýr

Ein af athyglisverðustu niðurstöðum IFCN snýr að þróun bústærðarinnar og sú þróun sem sést hefur í áratugi heldur áfram nær alls staðar í heiminum: Kúabúum fækkar en búin sem eftir standa stækka. Þetta er þróun sem hefur verið nokkuð jöfn heilt yfir í áratugi, algjörlega óháð framleiðslukerfum ólíkra landa eða ríkjasambanda. Þannig hefur t.d. búum sem framleiða mjólk í heiminum fækkað um 3% á síðustu fimm árum en á sama tíma hefur kúm og buffalóum fjölgað um 6,5% og meðalbústærðin aukist um tæp 10%.

Það er þó að verða ákveðin breyting á þessari þróun en svo virðist sem meðalstór fjölskyldubú séu að gefa aðeins eftir og eigi hvað erfiðast uppdráttar. Smæstu búin halda enn velli í mörgum þróunarlöndum, þar sem mjólkurframleiðsla er gríðarlega mikilvæg fyrir framfærslu fjölskyldna. Stærstu búin halda hins vegar áfram að stækka og nýta sér stærðarhagkvæmni, betri tækni og auðveldara aðgengi að fjármagni. Þannig eru bú með 100 og fleiri kýr í mikilli sókn á kostnað búa sem eru á bilinu 30-100 kýr í dag.

Heimsframleiðslan byggir enn á smábúum

Þegar horft er til þróunar mjólkurframleiðslunnar er ljóst að stór hluti heimsframleiðslunnar er á hraðleið í átt að mjög stórum kúabúum en það er þó langur vegur frá að það sé að verða hin algilda regla. Þannig sýna tölur IFCN að um 94 milljónir smábúa eru enn til, þ.e. bú sem eru einungis með 1-2 kýr.

Þessi bú, sem má t.d. finna í löndum eins og Indlandi, Pakistan, Bangladesh og víða í Afríku, eru með mjólkurframleiðslu til heimanota en selja svo aukalítrana sem falla til á næsta markaði eða til samlags. Þar sem þessi gerð kúabúa er svo algeng enn þann dag í dag er meðalbústærðin í heiminum ekki nema um þrjár kýr! Þetta er tala sem kemur mörgum á óvart, enda er staðan í Evrópu og NorðurAmeríku töluvert frábrugðin þessu. Í Suður-Asíu er meðalbúið t.d. aðeins með tvær kýr og í Afríku er meðalbúið með sex kýr.

Til samanburðar er meðalbústærðin um 27 kýr í Evrópu- sambandinu, 316 kýr í Norður-Ameríku og rúmlega 400 kýr í Eyjaálfu eins og sjá má af meðfylgjandi mynd.

Stóru búin framleiða sífellt meira

Þótt smábúin séu fjölmörg, er framleiðslan sífellt að færast yfir á stærri búin. IFCN áætlar að aðeins um 3% allra kúabúa heimsins standi undir um 59% þeirrar mjólkur sem fer til vinnslu árlega í heiminum.

Þessi staða sést vel ef t.d. er litið til Ameríku þar sem t.d. bú í Bandaríkjunum, sem eru með fleiri en þúsund kýr, eru nú um 70% allra búa landsins. Aðeins sunnar, í Mexíkó, hefur kúabúum með yfir 300 kúm fjölgað einnig mjög hratt undanfarinn áratug.

Evrópa að taka við sér?

Undanfarin ár hafa margir talið að mjólkurframleiðsla í Vestur-Evrópu væri í raun stöðnuð m.a. vegna aukinna umhverfiskrafna og hás framleiðslukostnaðar vegna launaþróunar. Þessi staða hafði, að því talið var, dregið úr bjartsýninni í greininni og haft áhrif á nýliðun í greininni.

En árið 2025 breyttist staðan nokkuð og þannig jókst t.d. mjólkurframleiðslan í Evrópusam- bandinu um 2,1% og er það mesta aukningin á ársgrundvelli síðan 2015. Þá jókst fjöldi kúa einnig í nokkrum löndum og má þar t.d. nefna Þýskaland, Danmörku, Belgíu og Svíþjóð. IFCN telur þó að þessi breyting sé líklega tímabundin og til lengri tíma litið er búist við fækkun kúa víða í Vestur-Evrópu. Framreikningar IFCN, til ársins 2035, benda til áframhaldandi vaxtar í mjólkurframleiðslu heimsins. Áætlað er að framleiðslan muni aukast um 13% á næstu tíu árum en að á sama tíma muni búum sem framleiða mjólk fækka um 16%. Þá spáir IFCN því að kúm muni fækka um 7% á heimsvísu en meðalnytin muni aftur á móti aukast um 22%. Tölurnar bera með sér þá þróun sem á sér stað á heimsvísu þar sem vöxtur mjólkurframleiðslunnar kemur í sífellt minna mæli vegna aukins fjölda gripa heldur vegna meiri afurðasemi gripanna. Hér kemur til bæði öflugt kynbótastarf, bætt fóðrun, aukin tæknivæðing og stærri framleiðslueiningar með betri bústjórn.

Á sama tíma telur IFCN að eftirspurnin eftir mjólkurvörum muni vaxa hraðar en framboðið og að árið 2035 geti skapast skortur sem nemur rúmlega 18 milljörðum lítrum mjólkur. Mesti skorturinn er talinn muni verða í Kína og víða í Afríku, þar sem fólksfjölgun og batnandi lífskjör muni auka eftirspurnina hraðar en framleiðslan geti náð að fylgja eftir miðað við núverandi stöðu. Eigi að loka þessu fyrirsjáanlega gati á markaðinum er því mikið verk að vinna og langauðveldasta leiðin til að auka mjólkurframleiðsluna er að hlúa að framleiðslunni í Afríku og Suður-Asíu, þar sem kúabúin eru í dag töluvert vanbúin en geta, með réttri ráðgjöf, aukið allverulega framleiðslu sína.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...