Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Sítrónu- og hvítlaukskjúklingasnitsel með fljótlegri puttanesca-sósu
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 28. janúar 2022

Sítrónu- og hvítlaukskjúklingasnitsel með fljótlegri puttanesca-sósu

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson

Stökkt kjúklingasnitsel, borið fram með sterkri (og fljótlegri) puttanesca-tómatsósu, er í þessari ljúffengu máltíð.

Langar þig í eitthvað öðruvísi? Notaðu þá fisk, kálfakjöt að ítalskri fyrirmynd – eða svínakjöt – í staðinn fyrir kjúkling.

Kjúklingasnitsel með fljótlegri puttanesca-sósu
  • 3-4 stórar kjúklingabringur (skinnlausar)
  • 50 g venjulegt hveiti
  • 2 stk. egg, þeytt
  • 70 g brauðrasp
  • Fínt rifinn börkur af 1 sítrónu
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • 2 msk. ólífuolía
  • 400 g (dós) kirsuberjatómatar
  • 130 g svartar ólífur (steinlausar)
  • 4 ansjósuflök úr krukku eða dós, grófsöxuð
  • Ný söxuð fersk steinselja (má sleppa)

Aðferð

Hitið ofninn í 220 °C. Notið kökukefli til að fletja kjúklingabringurnar varlega út, á milli tveggja matarfilma, þar til þær eru komnar í um 2,5 sentimetra þykkt. Setjið til hliðar.
Setjið hveiti, egg og brauðrasp í þrjár aðskildar grunnar skálar.

Haldið brauðraspi aðskildu með hreinum áhöldum til að koma í veg fyrir kekki. Blandið fínt rifnum sítrónuberki og ½ tsk. af pressuðum hvítlauk út í hveitið og kryddið vel með salti og pipar. Dýfið kjúklingabringunum fyrst í hveiti, síðan egginu og að lokum brauðmylsnuna. Hristið allt umfram af í hvert skipti.

Setjið kjúklinginn á bökunar­pappírsklædda ofnplötu og dreypið 1 msk. olíu yfir. Bakið í 25 mínútur, snúið eftir hálfan eldunartímann. Látið kjúklinginn hvíla í 5 mínútur áður en hann er skorinn í sneiðar.

Á meðan skal steikja afganginn af hvítlauknum í olíunni sem eftir er á pönnu við lágan hita.

Hitið í 2 mínútur og bætið svo tómötunum, ólífunum og ansjósunum út í. Kryddið vel og látið malla hressilega, hrærið reglulega í, í 15 mínútur (lengur ef þú hefur tíma).
Berið kjúklinginn fram með puttanesca sósunni, stráið steinselju yfir (ef það er notað) og skerið sítrónuna í báta til að kreista yfir ef vill.

Fylltir rjómaostsveppir

Ljúffengur forréttur eða sem grænmetisréttur, svo nota margir portobello svepp í stað kjöts í hamborgaragerð.

  • 12 heilir ferskir sveppir, eða 6 stórir portobello sveppir
  • 1 matskeið jurtaolía
  • 1 matskeið saxaður hvítlaukur
  • 1 pakki rjómaostur, mildaður (má nota piparost eða sleppa pipar)
  • ¼ bolli rifinn parmesanostur
  • ¼ tsk. malaður svartur pipar
  • ¼ tsk. laukduft
  • ¼ tsk. cayenne pipar

Forhitið ofninn í (175 gráður). Útbúið bökunarplötu með fituúða eða ögn af olíu.

Hreinsið sveppi með röku pappírshandklæði. Brjótið varlega fótinn af sveppum. Saxið stilkana mjög fínt.

Hitið olíu á stórri pönnu yfir meðalhita. Steikið saxaða sveppa­afskurðinn og hvítlauk­inn í heitri olíu þar til raki er horfinn í um 3 til 5 mínútur, passið að brenna ekki hvítlaukinn. Dreifið sveppa­blöndunni í skál og látið kólna alveg, í um það bil 10 mínútur.

Hrærið rjómaosti, parmesan­osti, svörtum pipar, laukdufti og cayennepipar saman við sveppastönglana og hvítlaukinn þar til það er mjög þykkt og alveg blandað saman.

Notið litla skeið og fyllið hverja sveppahettu með ríkulegu magni af fyllingu. Raðið fylltum sveppum á tilbúna bökunarplötuna.

Bakið í forhituðum ofni þar til glóðheitt og vökvi fer að myndast undir lokunum, í um 20 mínútur.

Kókoskakódöðlukúlur

Ef fólk vill finna hollari kost þá mæli ég með því að búa til þessar döðlukúlur. Kannski hjúpa í bræddu súkkulaði til að gera aðeins flottari og þetta er gott til að undirbúa sérstaklega fyrir Valentínusardaginn (eða konudaginn).

Þessar kókoskakódöðlukúlur eru fljótlegar, auðveldar og næringar­ríkar sem snarl eða eftirréttur. Þau eru fullkomin fyrir krakka sem vilja millimál.

  • 1 bolli valhnetur
  • 1 bolli rifinn kókos
  • 1/2 msk. kókosolía, brætt og við stofuhita
  • 1 1/3 bolli (12 stk.)
  • hreinsaðar Medjool-döðlur
  • 1 tsk. vanilluþykkni
  • 2-3 msk. kakó eða kakóduft
  • 1/8 tsk. sjávarsalt
  • lítil handfylli mulin frostþurrkuð hindber, auk fleira til skrauts
  • klípa af kardimommudufti, valfrjálst
  • rifinn kókos, til skrauts

Bætið valhnetunum og rifnum kókos í matvinnsluvél. Vinnið þar til valhneturnar hafa brotnað vel niður. Bætið restinni af hráefnunum út í, nema skreytingunni, og vinnið saman þar til þetta hefur blandast vel saman, í um það bil 2 mínútur.

Skiptið blöndunni í matskeiðar-stórar kúlur. Veltið kúlunum upp úr möluðum frostþurrkuðum hindberjum og kókoshnetu til að hjúpa þær.

Lokið og geymið í kæliskáp í að minnsta kosti 30 mínútur svo olían geti storknað.

Skylt efni: kjúklingur

Bólstrað brauð
Matarkrókurinn 1. desember 2025

Bólstrað brauð

Brauðbakstur heima er ekki alltaf auðveldur. Flatbrauð er þó auðveldara en brauð...

Napolí, New York…Kópavogur
Matarkrókurinn 3. nóvember 2025

Napolí, New York…Kópavogur

Frá því að Íslendingar kynntust pítsum í fyrsta sinn fyrir alvöru, um og eftir m...

Sætur og súr
Matarkrókurinn 20. október 2025

Sætur og súr

Flest hráefni í mat sem hægt er að fá á sæmilegum kjörum þarf smá tíma og ást ti...

Haustsúpa
Matarkrókurinn 22. september 2025

Haustsúpa

Íslenska er til margra hluta nytsamleg. Sér í lagi ef þarf að finna mörg orð um ...

Grillaðar lambakótelettur með indverskum blæ
Matarkrókurinn 10. júní 2025

Grillaðar lambakótelettur með indverskum blæ

Nú er líklega of seint í rassinn gripið að grilla þegar kannski bestu dagar suma...

Grillarar allra landa sameinist
Matarkrókurinn 26. maí 2025

Grillarar allra landa sameinist

Fyrsti maí er liðinn og sólin er farin að þrýsta sér í gegnum vorhretið og vonan...

Fiskneysla fiskveiðiþjóðar & stolinn karfi
Matarkrókurinn 12. maí 2025

Fiskneysla fiskveiðiþjóðar & stolinn karfi

Þó að fiskur sé stór hluti af sjálfsmynd Íslendinga þá hefur fiskneysla dregist ...

2 fyrir 1-tilboð
Matarkrókurinn 23. apríl 2025

2 fyrir 1-tilboð

Það að geta gert tvo hluti í einu eða fengið meira fyrir minna er alltaf æskileg...