„Gefa landbúnaðinum tækifæri til að þróast á markaðsforsendum“
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir Íslendinga hafa að einhverju leyti blandað saman byggðahlutverki landbúnaðarins og því að landbúnaður sé atvinnurekstur. „Að gefa landbúnaðinum tækifæri til þess að þróast á markaðsforsendum væri það sem ég myndi leggja til.“
Það þýði að skapa bændum frekari tækifæri til að njóta afraksturs eigin fjárfestinga og vinnu og að ríkið stjórni í minna mæli nákvæmlega hvernig þeir starfa.
„Skipti sér ekki af staðsetningu, skipti sér ekki af stærð, skipti sér ekki af hvernig stuðningurinn er nýttur svo lengi sem hann er nýttur til þess að skapa framleiðni,“ sagði Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins.
„Við höfum pínulítið blandað saman byggðahlutverki landbúnaðarins og því að þetta er atvinnurekstur. Lagt á herðar landbúnaðinum skyldur sem hafa þýtt að hann verður ekki eins spennandi framtíðarvalkostur.“
Þeir hlutar landbúnaðarins þar sem menn hafi fremur horfst í augu við að starfsemin þurfi að vera efnahagslega sjálfbær gangi betur en þar sem meiri áhersla hafi verið lögð á að viðhalda byggðamynstri eða öðrum hlutverkum.
Hér má hlusta á þáttinn í heild sinni.
