Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Fréttir 27. nóvember 2018
Höfundur: smh
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti setningarræðu á Matvæladaginn 25. október. Hún setti matvælaframleiðslu og -neyslu mannfólksins í samhengi við loftslagsmálin og sagði það ótækt að einum þriðja af matvælaframleiðslu heimsins væri hent. Hún sagði að fyrir samfélögin muni matur, matvælaframleiðsla og matvælaneysla verða eitt af stóru pólitísku viðfangsefnum 21. aldarinnar.
Katrín sagði að loftslagsbreytingarnar muni hafa gríðarlega áhrif á allt umhverfi okkar og allt umhverfi matvælaframleiðslu.
Verðum að gera miklu betur í matvælaframleiðslu
Katrín sagði að sömuleiðis muni þessar breytingar hafa áhrif á innflutning matvæla til Íslands. Loftslagsbreytingarnar einar og sér ættu því að ýta við okkur Íslendingum að gera miklu betur í matvælaframleiðslu hér heima. Það skipti nefnilega miklu máli að við verðum sjálfbærari um matvælaframleiðslu; getum framleitt meiri mat og séum að einhverju leyti sjálfum okkur nóg um mat. Aukin matvælaframleiðsla hér á Íslandi – með réttum hætti – geti þannig verið lóð á vogaskálarnar gegn loftslagsbreytingunum þegar horft er til þess magns matvæla sem flutt er til landsins með tilheyrandi kolefnisfótspori.
Ógnin af sýklalyfjaónæmum bakteríum
Katrín sagði að samfara auknum innflutningi á matvælum til Íslands verði einnig til ákveðin heilsufarsógn. Sýklalyfjaónæmar bakteríur sem fundust í innfluttu salati væri nýlegt dæmi um þá ógn.
Stefnumótun um matvælastefnu samvinna flestra ráðuneyta
Katrín ræddi næst um þá vinnu við stefnumótun á matvælastefnu fyrir Ísland, sem farin er af stað. Hún sagði að þar færi fram mjög mikilvægt starf sem nánast öll ráðuneyti ríkisstjórnarinnar væru tengd saman inn í. Með matvælastefnunni yrði lögð fram framtíðarsýnin fyrir matvælalandið Ísland.
Fréttir 9. október 2026
Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...
Fréttir 9. október 2026
Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...
Fréttir 9. október 2026
Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...
Fréttir 9. október 2026
Allir básar uppbókaðir
Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...
Fréttir 8. október 2026
Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...
Fréttir 8. október 2026
Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...
Fréttir 8. október 2026
Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...
Fréttir 8. október 2026
Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...
8. október 2026
Stjörnuspá vikunnar
6. október 2026
Vönduð óþekkt
7. október 2026
Ungir vinna Haustmótið
7. október 2026
Margrét Þóra
7. október 2026
