Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Merkingar á dekkjum. Framleiðendur mæla ekki með að ónotuð dekk séu eldri en 5 ára, en þeir ábyrgjast þau þó í 6 til 7 ár. Hér sést merking á framleiðsludegi dekks. Númerið 4710 stendur fyrir vika 47 árið 2010. Í raun er því ekki mælt með því lengur í söl
Merkingar á dekkjum. Framleiðendur mæla ekki með að ónotuð dekk séu eldri en 5 ára, en þeir ábyrgjast þau þó í 6 til 7 ár. Hér sést merking á framleiðsludegi dekks. Númerið 4710 stendur fyrir vika 47 árið 2010. Í raun er því ekki mælt með því lengur í söl
Á faglegum nótum 27. október 2015

Vanbúinn bíll til vetraraksturs er hættulegur

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Sá sem er vanbúinn til aksturs í snjó og hálku og biður um aðstoð á bara að fá eina tegund af aðstoð – hjálp til að komast út fyrir veg. 
 
Viðkomandi er hættulegur öðrum í umferð og á ekki að vera í umferð.   
 
Ný reglugerð um mynstursdýpt dekkja tók gildi 1. nóvember 2014
 
Þeim „skussum“ sem voru ekki rétt búnir til vetraraksturs fækkaði töluvert síðasta vetur við breytta reglugerð sem tók í gildi síðasta ár. Lágmarks mynstursdýpt hjólbarða samkvæmt reglugerð er 3,0 millimetrar að lágmarki yfir vetrartímann (1. nóvember–14. apríl) og 1,6 mm lágmarks mynstursdýpt yfir sumartímann. Miðað við tjón síðasta vetur taka tryggingafélögin þessa reglugerð alvarlega, mælist dekkjamynstursdýpt hjá þeim sem tjóni veldur er hann í slæmum málum.
 
Auðvelt að mæla mynstursdýpt
 
Mjög auðvelt er að fylgjast með munstursdýpt með því að mæla dekkin reglulega og sem dæmi þá er gott að nota einnar krónu pening til mælinga. Á landvættarhliðinni er innri hringur á peningnum þar sem myndin af landvættinum byrjar og út á brún peningsins eru 4 mm. Allir hjólbarðar eiga að vera með merki sem kallast slitmerki og þaðan á að mæla mynstursdýpt hjólbarða. Einstaka dekk eru auðveldari að lesa en önnur og má þar nefna Nokian-dekk, en þau hafa þá sérstöðu að á þeim er dekkjaslitmerking sem sýnir mynstursdýptina hverju sinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með mynstursdýpt dekkjanna til að tryggja akstursöryggi við krefjandi aðstæður, en ekki er óvitlaust að færa dekk fram og aftur reglulega undir bílnum. 
 
Mælið reglulega loftþrýsting
 
Miðað við kannanir sem gerðar hafa verið á loftþrýstingi í hjólbörðum í Danmörku þá var annar hver bíll sem mældur var með eitt eða fleiri dekk undir bílnum með rangan loftþrýsting hjólbarða (einn eða fleiri). Mörgum finnst dekk kosta mikið og til að enda hjólbarðana þann tíma sem uppgefinn er af framleiðanda er hjólbarðanum lífsnauðsynlegt að hafa réttan loftþrýsting. Bestu hjólbarðarnir og þeir dýrustu eru nánast alltaf bestu kaupin og sem dæmi þá kosta gæðahjólbarðar eins og  Michelin og Good Year hjólbarðar ekki nema 20 til 30% meira en þeir ódýrustu, en gæðahjólbarðar endast yfirleitt tvö- til þrefalt meira í kílómetrum talið en þeir ódýrustu (til eru dæmi um Michelin-vetrarhjólbarða sem rúllaði undir heimilisbíl í yfir 60.000 km á meðan þrisvar voru keyptir ódýrir hjólbarðar undir sambærilegan bíl sem ók sömu vegalengd). 
 
Varasamt að kaupa notuð dekk, þau gætu verið orðin fúin 
 
Töluvert er um að fólk sé að kaupa notuð dekk sem er gott fyrir bæði seljanda og kaupanda. Eitt ber þó að athuga við kaup á notuðum dekkjum. Hjólbarðaframleiðendur taka ábyrgð á sinni framleiðslu almennt í 6–7 ár og mæla með því að ekki séu seld eldri dekk en 5 ára þó svo að þau hafi aldrei komið á felgu. Á flestöllum dekkjum er lítill rammi sem segir til um viku árs og ár þegar dekkið var framleitt. Rammi þessi er almennt sporöskjulaga og með fjórum tölustöfum. Enginn ætti að kaupa notaðan hjólbarða sem er með inni á sviganum lægri seinni stafina tvo en 10, en ef inni í rammanum er (4310) þá er þessi hjólbarði orðin 60 mánaða (5 ára). Í sumum tegundum bíla stendur í eigandahandbókinni að aldrei eigi að keyra bílinn á eldri dekkjum en 6 ára.

Skylt efni: Vetrardekk

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...