Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Birki með reklum.
Birki með reklum.
Mynd / Vilmundur Hansen
Á faglegum nótum 14. ágúst 2014

Tré og runnar í íslenskri flóru

Höfundur: Vilmundur Hansen

Í íslensku flórunni er að finna nokkrar fallegar trjá- og runna­tegundir sem rækta má í görðum og við sumarbústaðinn. Tré og runnar sem vaxa af sjálfsdáðum í náttúrunni þola yfirleitt illa að vera flutt í garða og því borgar sig sjaldnast að taka plöntur úr náttúrunni þar sem þær vaxa.

Auk þess eru sumar plöntur friðaðar og óheimilt að raska þeim, skemma eða flytja úr stað. Þeir sem vilja íslenskar tegundir í garðinn ættu að leita til gróðrarstöðva, taka græðlinga eða rækta þær upp af fræi.

Birki

Vaxtarlag birkisins er breytilegt, allt frá jarðlægum og kræklóttum runnum til beinvaxinna trjáa sem hafa náð um 15 metra hæð. Birkið verður 70 til 80 ára og er nægjusamt en sólelskt tré sem nær bestum þroska í frjósömum jarðvegi og skjóli. Blöðin eru góð í te, gefa gulan lit og fá fallegan haustlit. Birkivendir þóttu ágætir til að hýða óþekk börn.

Úr birki má tappa birkisafa og brugga úr honum birkivín. Tré sem tappa skal safa af verða að vera um 20 sentímetrar í þvermál. Bora skal 10 til 12 sentímetra djúpa holu í tréð, stinga trekt eða röri í gatið og safna safanum í ílát. Til að brugga 20 lítra af birkivíni þarf til að byrja með 18 lítra af safa, 2 kíló af sykri og ger sem blandað er saman. Þetta er látið standa í tæpa viku. Því næst er 2 lítrum af birkisafa og 2 kílóum af sykri bætt út í. Blandan er látin gerjast í þrjár vikur áður en gerstoppari er settur út í. Eftir um það bil viku hefur vínið fallið og óhætt er að setja það á flöskur.

Blæösp

Hægvaxta, einstofna tré sem getur náð 10 til 15 metra hæð. Harðgert, sólelskt tré sem þolir samt nokkurn skugga og þrífst best á skjólsælum stað. Blæöspin er meðal annars skemmtileg fyrir þær sakir að lauf hennar skrjáfar í vindi. Fremur fágæt á landinu, aðeins fimm vaxtarstaðir þekktir. Á hverjum stað vex aðeins einn einstaklingur, klónn, og af því að blæöspin er sérbýlistré, annaðhvort karltré eða kventré, eru litlar líkur á að hún geti fjölgað sér með fræfalli hérlendis nema að mannshöndin komi þar til hjálpar. Blæösp er aftur á móti dugleg að breiðast út með rótarskotum, sem auðvelt er að stinga upp og gera að sjálfstæðum trjám.

Einir

Íslenski einirinn er eina barrtréð sem vex villt í íslenskri náttúru. Hann er seinvaxinn, sígrænn, jarðlægur eða hálfuppréttur runni. Einir er sólelskur og kann illa við sig í skugga en er nægjusamur á jarðveg. Hentar vel í ker. Könglarnir eða berin dökkblá. Þurrkuð og mulin eru berin sæt á bragðið og þykja gott krydd með villibráð.

Fjallavíðir Jarðlægur runni, 10 til 20 sentímetrar á hæð. Algengur um allt land og afar lífseigur.

Aldin kvenblómanna eru gráloðin og þekkjast á því frá loðvíði sem hefur snoðin aldin. Tilvalin þekjuplanta innan um grjót.


Fjalldrapi

Algengur um allt um land. Hann líkist smávöxnu birki, enda ættingi þess. Fjalldrapi er hægvaxta, jarðlægur og lágvaxinn runni, 10 til 60 sentímetrar á hæð. Blöðin fá á sig fallegan koparrauðan haustlit. Vex gjarnan í fjallshlíðum eða samfelldum fjalldrapamóum á láglendi og hentar vel í steinhæðir. Harðgerð og nægjusöm planta. Áður fyrr var fjalldrapi notaður sem tróð undir torf í þökum torfbæja því börkur hans fúnar seint og hlífði viðnum undir torfinu.

Blendingur af birki og fjalldrapa nefnist skógarviðarbróðir.


Glitrós

50 til 150 sentímetrar á hæð. Greinarnar bogsveigðar eða slútandi. Blómin bleik. Aldinið er kringlótt og rauðleitt. Glitrós vex villt í Kvískerjum í Öræfasveit, sú eina á landinu og er alfriðuð samkvæmt náttúruverndarlögum. En græðlingaplöntur af henni eru af og til fáanlegar í garðplöntustöðvum.


Gulvíðir

Breytilegur í útliti, ýmist lágvaxinn runni eða margstofna lítið tré. Fær gullgulan haustlit. Þarf nokkra umhirðu til að vera falleg garðplanta. Seyði af víðilaufi eða víðiberki er gott verkjalyf sem þykir styrkja ónæmiskerfið.


Strandavíðir er ræktunar­afbrigði sem komið er út frá gulvíðitré sem óx í heimilisgarðinum í Tröllatungu við Steingrímsfjörð um 1960. Hann er þéttvaxinn, með glansandi, fremur smáum og mjóslegnum laufum. Fínlegur og mjög harðgerður.


Brekkuvíðir

Blaðfallegt afbrigði af gulvíði, kræklóttur runni eða lítið tré. Fremur skuggþolinn og auðveldur í ræktun. Hentar vel í limgerði en er nokkuð maðksækinn, einkanlega sé mikið á hann borið.


Grasvíðir/smjörlauf

Smávaxinn og jarðlægur runni, 1 til 10 sentímetrar á hæð. Kvenreklarnir og reklahýðin rauð og áberandi á vorin. Harðgerður og algengur í holtum og móum um allt land. Fallegur í steinhæðir.


Þessi lágvaxni runni hefur gengið undir mörgum nöfnum og eiga þau flest það sameiginlegt að lúta að vaxtarlagi hans og því að þetta þótti afbragðs beitarplanta. Nöfnin dvergvíðir og grasvíðir lúta að vaxtarlaginu en nöfn eins og geldingalauf, sauðkvistur, smjörlauf og kostvíðir benda á gildi plöntunnar til beitar. Einnig eru þekkt nöfnin kotúnslauf og kotungslauf.


Hreggstaðavíðir

Blendingur milli viðju og brekkuvíðis. Ársprotarnir eru gulbrúnir og laufið fagurgrænt. Harðgerður, vindþolinn, hraðvaxta og hentar í skjólbelti. Síðustu ár hefur mjög borið á ásókn ryðsvepps, sem gerir runnana fremur ljóta og leiðinlega síðsumars.


Loðvíðir

Allt frá því að vera jarðlægur og upp í 1,5 til 2 metrar á hæð. Blómstrar snemma á vorin, karlreklarnir með skærgulum og áberandi frjóhirslum. Blöðin loðin á efra og neðra borði. Harðgerður, vind- og seltuþolinn.

Inúítar notuðu loðvíði til að lina tannverk, stöðva blæðingar og lina niðurgang.


Reyniviður

Ýmist einstofna eða margstofna tré, allt að 15 metra hátt með sléttum berki. Þrífst best í frjóum jarðvegi og ekki of rökum eða þéttum. Blöðin fjöðruð og fá rauðan haustlit.

Blómgast hvítum blómum í júní og fær falleg rauð ber á haustin. Þolir ágætlega skugga en er viðkvæmur fyrir reyniátu. Varast ber að gras nái að vaxa að stofni ungra plantna vegna þess að slíkt truflar vöxt þeirra og getur valdið rótarhálsfúa. Verður 60 til140 ára. Berin þóttu góð við þvagblöðrusteini og saft af þeim er sögð þvaglosandi og hægðadrífandi.


Þyrnirós

Þyrnóttur runni, jarðlægur en getur orðið allt að einn metri á hæð. Sjaldgæfur en finnst á nokkrum stöðum á landinu. Blómin hvít, blómstrar í júlí. Aldinið hnöttótt og dökkt. Harðgerð og seltuþolin. Fjölgar sér með neðanjarðarrenglum. Vex í gras- og lyngbrekkum og grýttum fjallshlíðum. Er alfriðuð samkvæmt náttúruverndarlögum.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...