Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Fallegur foss í skóginum í Skarðdal í Siglufirði. Tuttugu sinnum meira lífrænt efni er að finna í lækjum sem renna um barrskóg en lækjum sem renna um skóglaust mólendi.
Fallegur foss í skóginum í Skarðdal í Siglufirði. Tuttugu sinnum meira lífrænt efni er að finna í lækjum sem renna um barrskóg en lækjum sem renna um skóglaust mólendi.
Á faglegum nótum 2. júní 2017

Tré á landi, fiskur í sjó

Höfundur: Pétur Halldórsson kynningarstjóri Skógræktarinnar
Umfangsmikil skógrækt er stunduð í heiminum í því augnamiði að vernda vatnsauðlindir. Skógivaxin vatnasvið og votlendissvæði eru uppspretta þriggja fjórðu alls ferskvatns á jörðinni. En hvað kemur það Íslendingum við?
 
Ísland er vatns- og vindsorfið. Eldfjallajarðvegurinn er rokgjarn og ef gróðurþekja rofnar eiga roföflin vatn og vindur létt með að skola og feykja jarðveginum á haf út. Sú er örlagasaga Íslands frá landnámi. 
Meðan birkiskógurinn þakti að minnsta kosti fjórðung landsins og líklega talsvert meira var jarðvegsauðlindin varin. Í öskugosum hélt birkiskógurinn velli því yfirleitt var öskufallið ekki svo mikið að birkið kafnaði þótt lággróðurinn færi illa. Landið náði sér fljótt á ný og jarðvegurinn hélst á sínum stað. Birkiskógurinn er harðger og stóð keikur þótt harðindatímabil geisuðu í lengri eða skemmri tíma. Þegar skógurinn hvarf voru örlög jarðvegsauðlindarinnar ráðin. Stór hluti hennar er nú glataður. Ekki er þó öll von úti því snúa má vörn í sókn.
 
Meiri skógur, meiri veiði
 
En hvað kemur skógur vatni við að öðru leyti og hvaða vernd felst í því fyrir vatnasvið að rækta skóg? Jú, þegar vatn rennur óhindrað til sjávar grípur það með sér mikilvæg næringar- og jarðvegsefni. Heilbrigð skógarþekja hægir mjög á þessu rennsli vatnsins og þar með efnanna. Gróðurinn dregur í sig vatnið og nýtir til starfsemi sinnar. Sumt gufar upp í stað þess að renna áfram. Gróðurmagn er meira í skógi og rætur ná dýpra en þar sem aðeins vex lággróður og því eru þessi áhrif gróðurlendis á vatnsbúskapinn mest ef gróðurlendið er skógur. 
 
Horft yfir gömlu bogabrúna yfir Fnjóská í Vaglaskóg. Skógur hægir á rennsli vatns til sjávar. Á skóglendu landi  tapast næringarefni síður ónýtt til sjávar en skógurinn leysir líka upp kalsín og fleiri efni úr bergi sem nýtast sjávarlífverum m.a. til kolefnisbindingar.
 
Rannsóknir hérlendis sem erlendis hafa kennt okkur að þar sem skógar vaxa við læki og vötn dregur úr streymi frumefnanna köfnunarefnis og fosfórs út í vatnið. Þetta kom meðal annars skýrt fram í rannsóknarverkefninu Skógvatni sem unnið var hér á landi. Einnig kom fram í rannsókninni að þrettánfalt meiri nýmyndun lífræns efnis væri á skógarsvæðum en skóglausum svæðum. Tuttugu sinnum meira lífrænt efni barst út í skógarlæki sem runnu um lerkiskóg en læki sem runnu um skóglaust mólendi. Það þýðir að lífríkið hefur úr mun meiri næringu að spila þar sem skógurinn er og næringin streymir ekki ónotuð til sjávar. 
 
Þessi kerfi náttúrunnar gagnast ekki einungis trjánum sjálfum. Skógur er vistkerfi þar sem saman spila örverur, sveppir og ýmis smádýr ofan og neðan moldar, fuglar, spendýr og samfélag jurta. Örverur og smádýr nærast á efnunum sem myndast í skóginum og því meira sem þessum smáu lífverum fjölgar því meira hafa stærri dýr eins og fiskar og fuglar að éta. Skógur við ár og vötn eflir því lífríkið og eykur fiskgengd. Vilji Íslendingar auka veiði í ám og vötnum er skynsamlegt að rækta þar skóga öfugt við það sem oft er haldið fram. Vafasamt er að banna skógrækt nærri ár- og vatnsbökkum í skipulagi sveitarfélaga.
 
Skógur eflir kolefnisbindingu í sjó
 
Önnur rannsókn sem gerð var í Skorradal sýnir hvernig skógur losar efni úr bergi á landi sem nýtast lífverum í sjó. Hverjum hefði dottið í hug að skógar sæju skeldýrum í sjó fyrir frumefninu kalsíni (Ca)? Margfalt meira losnar af því efni í skógi en á skóglausu landi og hluti þess berst til sjávar. Efnið binst kolefni og myndar kalsínkarbónat. Þetta kolefni getur verið upprunnið í sprengihreyflum eða kolaorkuverum okkar mannanna og því er þarna ein af fjölmörgum aðferðum náttúrunnar til að binda kolefni. Óbeint getum við stuðlað að slíkri bindingu með aukinni skógrækt. Svona eru undur náttúrunnar mikil. 
 
Lausnarorðið í allri náttúruvernd er hringrásir. Rofni hringrásir náttúrunnar hnignar henni. Saga íslenskrar náttúru er saga rofinna hringrása. Verkefnið fram undan er að loka rofnum hringrásum og efla þær. 
 
Landið þarf skóg
 
Náttúra Íslands þarfnast hjálpar okkar við að klæðast á ný heilbrigðum skógi. Til að styrkja byggð í landinu og efla landið til matvælaframleiðslu er nauðsynlegt að rækta nytjaskóga með gjöfulum tegundum í sveitum landsins. Stuðla ber að sem mestri útbreiðslu birkis með því að gróðursetja það í bletti þaðan sem það getur breiðst út af sjálfu sér. Horfur eru á að birki geti vaxið um mestallt hálendi Íslands þegar líður á öldina. Væri hálendið vaxið birkiskógi drægi úr því hitauppstreymi sem nú verður þegar sumarsólin skín á svarta sandana. Þar með yrði sjaldnar hafgola í byggð. 
 
Bindum kolefni með skógrækt, eflum þar með sveitir landsins, búum til atvinnutækifæri og verðmæti, veitum búpeningi skjól og jafnvel fóður með skóginum, skýlum öðru ræktarlandi, bætum veðurfarið, aukum líf í ám og vötnum og stuðlum að bjartari framtíð bæði Íslands og alls heimsins með því að gera okkar til að binda koltvísýring og vinna gegn eyðingu jarðvegs. Skógur gefur, hvernig sem á það er litið.
 
Pétur Halldórsson
kynningarstjóri Skógræktarinnar
 
Tilvísanir:
Stefánsdóttir, Helena Marta o.fl. 2010. Áhrif gróðurs á vatnasviðum á magn lífræns efnis sem berst út í læki Rit Fræðaþings landbúnaðarins, 7, 182-191. 
 
Moulton KL o.fl. 2000. Solute flux and mineral mass balance approaches to the quantification of plant effects on silicate weathering. Am. J. Sci. 300, 539-570.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...