Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Sýningarbás Expert kælingar ehf. á landbúnaðarsýningunni Íslenskur landbúnaður 2018 sem haldin var í október í Laugardalshöllinni í Reykjavík.
Sýningarbás Expert kælingar ehf. á landbúnaðarsýningunni Íslenskur landbúnaður 2018 sem haldin var í október í Laugardalshöllinni í Reykjavík.
Mynd / HKr.
Líf&Starf 22. nóvember 2018

Þjónustar bændur, iðnað og verslun

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Fyrirtækið Expert kæling ehf. er ört vaxandi þjónustufyrirtæki sem er með snertifleti víða. Fyrirtækið leggur allt í að veita framúrskarandi þjónustu og sér meðal annars um viðhald og viðgerðir allra kæli- og frystitækja fyrir Coca Cola á Íslandi, N1, Samkaup og ýmsar útgerðir hérlendis. En á síðustu árum hefur fyrirtækið stóraukið þjónustu sína við bændur.
 
Starfsmenn fyrirtækisins kynntu starfsemi þess á sýningunni Landbúnaður á Íslandi 2018 sem fram fór í Laugardalshöllinni í síðasta mánuði. 
 
Expert kæling er m.a. með umboð fyrir hina margrómuðu RØ-KA mjólkurkælitanka, sem eru í dag á fjórða hverjum bæ á Íslandi og hafa reynst framúrskarandi vel. Danska fyrirtæki RØ-KA industri A/S, er með aðsetur í Rødding í Danmörku. Það er með yfir 50 ára reynslu í framleiðslu á búnaði sem er ætlaður til að kæla mjólk. Fyrirtækið framleiðir tanka í ýmsum stærðum, allt frá 5.000 til 40.000 lítra, bæði sem liggjandi eða síló tanka. Framleiðslan er seld til meira en 50 landa.
 
„Þetta hefur gengið vel og hópur okkar viðskiptavina hefur farið ört vaxandi,“ sagði Sigurjón Guðmundsson, vélfræðingur og einn af eigendum Expert kælingar, í samtali við blaðamann Bændablaðsins. Fyrirtækið er nú með starfsstöðvar í Reykjavík, á Selfossi og Akureyri.
 
Með kælikerfi fyrir mjólk, ýmiss konar iðnað og verslanir
 
„Ég er búinn að vera í frysti- og kæligeiranum síðan 1992 og mínir samstarfsmenn eru með víðtæka starfsreynslu, svo innan fyrirtækisins er mjög öflug þekking og reynsla sem nýtist okkar viðskiptavinum. Við leggjum okkur fram við og sýnum mikinn metnað við að þjónusta landbúnaðinn. Þetta verður allt að vera í topplagi, því annars er fljótt að verða tjón sem er algjörlega ótækt. Þess vegna bjóðum við bakvaktar- og neyðarþjónustu fyrir þá viðskiptavini okkar sem eru með þjónustusamning. Sú þjónusta hefur sannað sig og bjargað miklum verðmætum á síðustu árum.“ 
 
Líka að þjónusta bruggverksmiðjur
 
Þá segir Sigurjón að umfang örbrugg­verksmiðja hafi stóraukist á Íslandi. Þeirri starfsemi fylgi upp­setningar, umsjón og eftirlit með rafmagns- og kælibúnaði sem Expert kæling hafi sinnt víða um land. 
Kolsýran mikið að koma í stað Freons og annarra kælimiðla
 
Hefur tæknin eitthvað breyst varðandi efnin sem notuð eru sem kælimiðill?
„Já, tæknin er að gjörbreytast. Hér áður voru bara fjögur kæliefni sem notuð voru. Þau voru Ammoniak, Freon 22, Freon 12 og Freon 502. Nú eru fjölmargar tegundir af alls konar blöndum. Kolsýran hefur verið að koma mjög sterk inn sem kælimiðill á liðnum misserum. Kolsýran hefur það fram yfir flest önnur efni að vera umhverfisvænni og er að verða mjög algeng í í íslenskum verslunum. Hún er hins vegar undir meiri þrýstingi en önnur hefðbundin kæliefni. Því þarf allt lagnakerfið og kútar að vera mun öflugri. Í stað þess að vera með þrýsting á kælikerfum í kringum 2 til 3 bör, getur þrýstingur í kolsýrukerfum náð allt upp í 130 bör,“ segir Sigurjón. 
 
Svona til að gefa fólki hugmynd um hvað Sigurjón er þarna að tala um þá getur þrýstingur í hjólbörðum fólksbíla kannski verið nálægt 30 pundum (psi) á tommu2, eða rétt rúmlega 2 bör. Því eru 130 bör nærri 63 sinnum meiri þrýstingur en í fólksbíladekki, eða 1.885 pund á fertommu.   
 
Lítil hætta á ferðum þó kolsýrukerfi leki
 
„Þótt þrýstingurinn sé mikill er hættan fyrir fólk lítil þótt kerfið færi að leka. Í það minnsta ef ekki er um að ræða lokað rými þannig að það skapist súrefnisskortur. Það er bara kolsýra sem lekur út og því ekki hætta á íkveikju. Freon veldur svo sem ekki heldur íkveikju, því það er eðlisþungt og ryður súrefni frá eldi. Við bruna getur Freon hins vegar klofnað í hættuleg efnasambönd, sem kolsýra gerir ekki.
 
Félagarnir Sigurður Frímann Emilsson framkvæmdastjóri og Sigurjón Guðmundsson stóðu vaktina í bás Expert kælingar. Þeir höfðu í nógu að snúast við að sinna áhugasömum gestum.
 
Framkvæmdastjórinn með löng tengsl við landbúnaðinn
 
Sigurður Frímann Emilsson, rafvirkjameistari og vélstjóri, er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann stóð líka vaktina á bás Expert kælingar þegar Bændablaðið átti þar leið um. Hann er vel kunnugur bændum og þeirra þörfum, af áralangri þjónustu í sambandi við mjólkurtanka, mjaltavélar og annan búnað en Sigurður starfaði áður fyrir Mjólkurbú Flóamanna og Remfló ehf. á Selfossi. Sigurður er með aðsetur á Selfossi og hafði hann í nógu að snúast við að upplýsa bændur og aðra áhugasama gesti landbúnaðarsýningarinnar um undur kælitækninnar.  

Skylt efni: Expert kæling

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...