Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
SseanYong Korando DLX.
SseanYong Korando DLX.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 27. apríl 2016

SsangYong Korando er álitlegur jepplingur

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Fyrir um ári síðan prófaði ég SsangYong Rexton jeppann frá Bílabúð Benna og lét vel af honum. Þegar ég prófaði Rexton jeppann var mér sagt að von væri á mikið breyttum og alveg nýjum Korando, nýtt útlit og með mun stærri vél.
 
SsangYong Korando jepplingurinn er kominn og fór ég fyrir skemmstu góðan hring á honum.
 
Nýja 2,2 lítra 178 hestafla dísilvélin virkar vel
 
Eftir að hafa prófað bílinn í innanbæjarakstri fannst mér hann reynast vel fyrir utan að vera með stífara móti þegar farið var yfir hraðahindranir. 
 
Næst var tekinn um 100 km hringur upp í Kjós og þaðan upp Kjósaskarð á Mosfellsheiðina. Að loknum þessum hring hafði ég keyrt bílinn tæpa 140 km og samkvæmt aksturstölvunni var ég að eyða 7,9 lítrum af dísil á hundraðið (uppgefin eyðsla í bæklingi er 6,8 í blönduðum akstri). Ég var bara nokkuð sáttur við þá eyðslu þar sem ég var dálítið oft að „kitla pinnann“ fullmikið, en mér er það tamt þegar ég kemst á skemmtilega kraftmikla bíla að ofprófa kraftinn með hægra fæti.
 
Þægilegur ferðabíll þegar kemur að sætum
 
Að ferðast í bílnum er mjög þægilegt, fótapláss gott og framsæti þægileg. Útsýni er gott til allra átta og manni finnst maður sitja mun hærra í þessum jepplingi en mörgum sambærilegum jepplingum.
 
Aftursætin eru ekki síðri, en þeim er hægt að halla vel aftur vilji maður hvíla sig á lengri ferðum (eða bara að fá sér „kríu“). Á milli aftursætanna er púði sem hægt er að setja niður og nota sem armpúða ef aðeins tveir eru í aftursætunum. Farangursrýmið er þokkalega stórt, en varadekkið er því miður það sem ég kalla „aumingi“. 
 
Lítið veghljóð á malarvegi
 
Utanaðkomandi hljóð frá umhverfi heyrðust lítið inn í bílinn þegar ég keyrði steyptan veginn í Kollafirði, sem bendir til þess að bíllinn sé vel hljóðeinangraður, en það kom svo berlega í ljós þegar ég kom á malarveginn í Kjósarskarðinu að malarvegahljóð var sáralítið inni í bílnum. 
 
Eftir því sem ofar dró í Kjósarskarðið varð vegurinn verri og verri þar sem að þar standa yfir vegabætur og endaði vegurinn í holóttu drullusvaði. Á þessum kafla reyndi vel á fjöðrun sem er mjög góð (þrátt fyrir að hafa ekki verið hrifinn af fjöðruninni á hraðahindrunum Reykjavíkur). Þegar ég náði inn á bundna slitlagið efst á Mosfellsheiðinni steig ég út úr bílnum til að skoða hversu mikið bíllinn væri skítugur og kom það mér á óvart hversu hreinn bíllinn var miðað við hvernig vegurinn var.
 
Korando er hlaðinn aukabúnaði
 
Korando er til í þremur útgáfum (LX, DLX og HLX), en bíllinn sem ég prófaði var DLX, sem er meðal annars með hita í stýri, sólarvörn í framrúðu, en allir Korando eru með 5 ára ábyrgð, EBD hemlajöfnunarkerfi, ESP stöðugleikastýringu, ARP veltivörn, BAS bráðahemlaaðstoð (sjálfvirkar neyðarbremsur), hita í hliðarspeglum og margt fleira.
 
Það eina sem ég gat fundið að bílnum er að maður þarf að kveikja ljósin til að vera löglegur í umferðinni, en sjálfvirki ljósabúnaðurinn kveikir ekki afturljósin svo að það þarf að kveikja ljósin. Svo finnst mér að varadekkið mætti vera í fullri stærð, en annars var ég mjög hrifinn af þessum bíl (konuna langar í svona bíl). Ódýrasti Korando er LX á 4.490.000 en bíllinn sem ég prófaði var DLX og kostar 4.990.000, en dýrastur er HLX sem kostar 5.690.000.

5 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...