Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Ofnsteikt appelsínuönd
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 19. desember 2016

Ofnsteikt appelsínuönd

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Það er ekta íslensk jólahefð og fjölskylduskemmtun að skera út blaðþunn laufabrauð, velja sígild mynstur eða skapa eigin, og djúpsteikja. Laufabrauðið passar sérdeilis vel með elduðu eða hráu hangikjöti, sem er okkar ljúffenga svar við Parmaskinkunni. Hrátt hangikjötið er látið hanga á köldum stað í nokkra daga eða jafnvel vikur eftir smekk. 
 
Appelsínuönd er rómaður hátíðarmatur og rótargrænmeti fer einkar vel með henni.
 
Gott er að láta matargesti smyrja laufabrauð sitt með rjómaosti eða sýrðum rjóma og svo er sett þunnskorið hangikjöt ofan á með einhverju sætu eins og döðlusultu eða bláberjakaramellu.
 
Laufabrauð
 
Hráefni
  • 550 g (4 bollar) hveiti 
  • 25 g (¼ bolli) sykur 
  • 1½ tsk. lyftiduft (yfirleitt ½ tsk. hjarta­salt og 1 tsk. lyftiduft) 
  • Ögn af salti og kúmeni 
  • 230 g (1 bolli)  mjólk (eftir auganu, passa að bæta við í skömmtum) 
  • 40 g smjör
Aðferð
Hitið mjólk, smjör og kúmen í potti (ekki láta sjóða). Bætið við þurrefnunum og blandað í hrærivél.
Hnoðið næst deigið með höndunum. Rúllið deigið í langan hólk og vefjið það upp í viskastykki.
Eftir að búið er að láta deigið hvíla um stund skerið pylsuna í um 20 þriggja sentímetra breiðar sneiðar og fletjið þær út með kökukefli.
Að hnoða og fletja út laufabrauðsdeigið er erfitt starf (hægt að kaupa út flatt deig).
Hefð er fyrir því að gera  þríhyrningslaga munstur með litlum hníf. Þeir sem eiga íslenskt laufabrauðsjárn, geta nýtt sér þau til að gera lífið auðveldara við útskurðinn.
Laufabrauðið á að vera þunnt, helst svo þunnar að maður geti lesið Biblíuna í gegnum það.
Eftir skrautskurð er hrátt laufabrauðið djúpsteikt í sjóðandi fitu (með hjálp tveggja gaffla, steikja hverja hlið jafnt. Eftir aðeins nokkrar sekúndur, þegar það er orðin gullið að lit, skal veiða það upp úr fitunni. Látið þorna á pappír.
Laufabrauðið (sumir vilja með smjöri) er borið fram með hangikjöti, soðnum kartöflum, grænum baunum, rauðkáli og sætum uppstúf á jólum, en það er líka frábær forréttur með hráu hangikjöti.
 
Ofnsteikt appelsínuönd með rótargrænmeti
 
Hráefni
  • 1 heil önd, eða 2–4 andabringur
  • 8 hvítlauksrif 
  • salt og svartur pipar eftir smekk
  • 255 g (3/4 bolli) ferskur appel­- sínusafi (og börkur)
  • 6 matskeiðar ósaltað smjör
  • 2 bollar rauðlaukar, 
  • miðlungs teningar
  • 1 bolli næpur skrældar, skorið í teninga
  • 1 bolli sellerírót, skræld teningar
  • 2 bollar gulrætur, teningar
  • 500 g (1 1/2 bolli)  þurrt rauðvín
  • 1/4 bolli hunang
  • 2 tsk. timjan, saxað (ferskt, annars smá af þurrkuðu)
  • 1 tsk. svartur pipar
Aðferð
Hitið ofninn í 205 gráður.
Skolið öndina með köldu vatni, skerið rákir í fituna og skerið af umfram fitu og skinn.
Þerrið með klút og veltið upp úr söxuðum hvítlauk.
Nuddið öndina með appelsínuberki. Kryddið með salti og pipar.
Setjið fituhliðina  niður á heitri pönnu. Steikið rólega  í 20 mínútur.
Snúið fituhliðinni nú upp og ausið fitunni af pönnunni yfir öndina og bakið við 175 gráður í ofninum. Ausið fitunni áfram yfir með skeið og bakið í 10 til 15 mínútur til viðbótar, en styttri tíma tekur að ofnsteikja ef um bringur er að ræða. Notið kjarnhitamæli og eldið þar til kjarnhitinn hefur náð 58 gráðum. Látið þá hvíla í 20 mínútur. 
Setjið eina og hálfa matskeið af smjöri á pönnu með, hafið stillt á miðlungs hita. Setjið lauk á pönnuna og mýkið hann á pönnunni í um tvær mínútur. 
Bætið andafitunni úr ofnílátinu við og steikið grænmetið í henni í um 2–4 mínútur.
Bætið restinni af smjöri saman við og hálfum bolla (um 115 ml) af appelsínusafa. Sjóðið þangað til  vökvinn er næstum gufaður upp. 
Eftir tíu mínútur ætti grænmetið að vera orðið að eins konar karamellu með smjöri og appelsínusafa. Takið grænmetið til hliðar og bætið meiri appelsínusafa við, víni, hunangi, timjan, og einni teskeið (eða tveimur grömmum) af pipar og sjóðið á háum hita. Lækkið hitann og látið malla á mjög lágum hita í um 10 til 15 mínútur, eða þar til vökvinn hefur minnkað niður í einn bolla (um 235 ml).
Þegar öndin er fullelduð er hún tekin úr ofninum  og látin standa í 10 mínútur áður hún er skorin niður í fínar sneiðar.
Notið steikarskófir úr ofnfatinu til að gera sósuna með víninu og smá appelsínusneiðum. Geymið fituna til að steikja grænmeti með síðar.
Framreiðið með kartöflum að eigin vali ásamt grænmetisblöndunni og appelsínu sósu.
 
 
Kryddað Crème brûlée
 
Hráefni
  • 900 ml rjómi
  • 100 ml mjólk
  • 3/4 bollar sykur, skipt í tvo jafna hálfa hluta (1/4 bolli plús 2 
  • matskeiðar)
  • 2 kanilstangir
  • 1 stjörnuanís
  • 7 stórar eggjarauður
  • 2 tsk. vanilludropar eða fersk vanilla
  • 1/4 tsk. gróft salt
  • 1/4 tsk. malað múskat
  • 1 heill kanill
  • 1/8 tsk. malaður negull
  • Fyrir sykurskelina (brûlée) 
  • 3/4 bolli sykur
Aðferð
Hitið ofninn í 150 gráður. Látið vatn sjóða í potti eða katli fyrir vatnsbaðið.
Í stórum potti er blandað saman:
 
4 og ¼ bolli rjómi, 2 matskeiðar sykur, hrærið saman. Hiti yfir miðlungs þar til blandan byrjar að rjúka kringum brúnir á pönnunni, í kringum 7 til 8 mínútur. Verið varkár að láta blönduna ekki sjóða 
Þegar kremblandan er rjúkandi, er hún varlega fjarlægð af hitanum. Bætið blöndunni saman við eggjarauðurnar í litlum skömmtum og hrærið stöðugt í henni. Bætið við tveimur ausum af rjómablöndu, einni í einu, en haldið áfram að hræra í. Hrærið smám saman restinni af blöndunni saman við og gott er að sigta hana í mæliglas eða könnu.
 
Lækkið ofninn í 110 gráður og skiptið kreminu jafnt í átta eldfastar skálar. Setjið skálarnar í ofnfat með nægu af sjóðandi vatni þannig að það nái hálfa leið upp að hliðum formanna. Bakið þar til kremið er orðið stíft  (það ætti að vera hlaupkennt í miðju), í um 30 til 40 mínútur. Leyfið að kólna í 30 mínútur áður en það er borið fram. Gott er að setja það í kæli.
 
Fyrir framreiðslu er 1½ matskeið af hrásykri stráð yfir hverja skál. Hægt er að brúna sykurinn með gasloga á yfirborði kremsins, en líka er hægt að bræða sykur á pönnu, setja á smjörpappír þegar hann er orðinn að karamellu, kæla hann, brjóta og strá yfir kremið – ásamt piparkökum og berjum.
 

 

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...