Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Mitsubishi L 200.
Mitsubishi L 200.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 8. desember 2015

MMC L200: Nýr og mikið breyttur L 200 frá Mitsubishi

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson

Fyrir skömmu kom ég í Heklu og sagði Stefán Sandholt, sölustjóri Mitsubishi-bíla, mér að væntanlegur væri nýr pallbíll frá Mitsubishi og bað ég hann endilega að láta mig vita þegar hann hefði bíl handa mér til að prófa.

Um miðjan nóvember hringdi Stefán í mig og bauð mér að prófa, valið var að fá sjálfskiptan eða beinskiptan. Ég kaus beinskiptan sem Stefán lét setja á aðeins stærri dekk, en naglalaus.

Allar breytingar á bílnum gera hann eigulegri

Það fyrsta sem ég tók eftir var að búið var að stækka pallinn frá fyrri árgerðum, en nú mælist pallurinn 147x147 lokaður, en með gaflinn opinn er hann 211 cm langur. Góð breyting þar sem á eldri árgerðum var pallurinn of stuttur (ef ég man rétt var hann 17 cm styttri). 

Hámarks dráttargeta er 3.100 kg. (miðað við að vagn sé með bremsubúnað). Heildar hleðslugeta bílsins er nálægt 1100 kg (farþegar og á pall). 

Fjöðrun eins og flestir pallbílar, gormar að framan og fjaðrablöð að aftan.

Vélin er 2,4 dísil sem á að vera 181 hestafl. 

L200 er rúmgóður að innan, ekki skemmir fyrir að vera með bakkmyndavél (ef ég man rétt er þetta fyrsti pallbíllinn sem ég prófa með bakkmyndavél).

Speglar á hliðum eru í yfirstærð (næstum eins og á vörubíl), frábærir speglar sem sýna aftur fyrir bílinn meira en ég er vanur.

90 km prufuakstur í vondum aðstæðum

Sökum veðurs og akstursskilyrða ók ég bílnum minna en ég hafði hugsað mér. Í innanbæjarakstri er gott að vera á L 200, maður situr hátt og sér yfir flesta bíla. Útsýni úr ökumannssætinu er fínt til allra átta, svo er hann glettilega lipur þrátt fyrir að vera stór og langur. Það eina sem var að trufla mig var að leggja í þröng stæði og snúa bílnum við. Þrátt fyrir að mér hafi fundist bíllinn vera óþjáll við þröngar aðstæður þá er þvermál beygjuhrings aðeins 5,9 m.

Á beinum og breiðum vegi þar sem er hámarkshraði þarf maður aðeins að passa sig að keyra ekki of hratt þar sem maður finnur lítið fyrir hraða bílsins. Þegar ég hélt mig vera á um 90 kílómetra hraða var bíllinn vel yfir þeim hraða í tvígang. 

Á malarvegi er afturendinn frekar laus í holóttum malarvegum þegar bíllinn er svona tómur, en ég hef fulla trú á að 100 kg aftast á pallinum lagi þetta. Líka getur skipt máli að bíllinn var aðeins keyrður 30 km þegar ég fékk hann, en margir bílar mýkjast eftir 2–300 km. 

Í prufuakstrinum var skriðstillirinn prófaður sérstaklega

Fyrirfram hafði ég ímyndað mér að vél sem á að skila yfir 180 hestöflum mundi mokeyða eldsneyti, en raunin var sú að eftir um 90 km akstur var ég ekki að eyða nema 9,9 lítrum af dísil í blönduðum akstri (uppgefin eyðsla samkvæmt bækl-ingi er 7,2 lítrar á hundraðið). Það var þrátt fyrir akstur á mjög vondum vegslóða, hálkuæfingar og ýmsar aðrar æfingar sem þurfa mikið eldsneyti. Ég get því ekki verið annað en ánægður með eyðsluna.

Besta skriðvörnin

Nánast allir nýir fjórhjóladrifnir bílar eru bæði með spólvörn og skriðvörn. Í flestum bílum virkar skriðvörnin þannig að ef bíll fer að renna til í hálku slær bíllinn sjálfkrafa af, en í þessum bíl er það ekki svoleiðis. Ef L 200 byrjar að renna til slær vélin mun minna af en aðrar vélar, þess í stað bremsar bíllinn sjálfkrafa á annað framhjólið til að rétta bílinn af. Við þetta tapar maður mun minni hraða og skapar sjálfum sér minni hættu á heimsókn bíls sem á eftir kemur aftan á afturenda L 200. Fyrir vikið er skriðvörnin í Mitsubishi L 200 að mínu mati sú besta sem ég hef prófað.

Millikassinn fær toppeinkunn

Einnig prófaði ég á klaka hvernig læsingin í millikassanum virkaði. Eftir að hafa tekið snöggt af stað var stoppað og skoðað fyrir aftan öll hjól. Jöfn spólför fyrir aftan hvert hjól gefa læsingunni toppeinkunn. 

Góður bíll, en ljósabúnaður ekki að mínu skapi

Miðað við verð og getu bílsins tel ég að allar breytingar á bílnum séu vel heppnaðar og bíllinn góður hvort sem fjölskyldubíll eða vinnuþjarkur, en þó er ég ósáttur við ljósabúnaðinn á bílnum þar sem ég vil alltaf hafa öll ljós kveikt þegar bíll er í akstri og vil ekki þurfa að muna að slökkva ljós að lokinni bílferð. Að mínu mati á ekki að vera hægt að aka af stað út í umferð nema með fullan ljósabúnað. Eitthvað virðast sumir einstaklingar misskilja íslensk umferðarlög, en þar er línan skýr:

Ljós allan hringinn alltaf í umferð, annars fær maður sekt ef maður er ljóslaus að aftan. Ég er ósáttur við túlkun manna og innflytjenda bíla á að í lagi sé að vera með Evrópusamþykktan ljósabúnað, íslensk lög um ljósabúnað eru eins og þau eru vegna sérstöðu og legu landsins með öryggi vegfarenda að leiðarljósi.

Þegar ég skoðaði verðið ætlaði ég ekki að trúa því, en grunnverð á beinskiptum MMC L 200 er frá 6.890.000 fyrir beinskiptan bíl, en sjálfskipti bíllinn kostar 7.390.000. Allar nánari upplýsingar um bílinn má finna á vefsíðunni www.hekla.is.

Helstu mál og upplýsingar:

Hæð 1.780 mm
Breidd 1.815 mm
Lengd 5.260 mm
Þyngd 1.875.kg

6 myndir:

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum
Fréttir 26. apríl 2024

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum

Gýgjarhólskot í Biskupstungum var útnefnt ræktunarbú síðasta árs á fagfundi sauð...

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...