Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Sigurður Sigurðarson dýralæknir við hljóðfærið og væntanlega að sinna faglegu erindi í farsímanum sínum.
Sigurður Sigurðarson dýralæknir við hljóðfærið og væntanlega að sinna faglegu erindi í farsímanum sínum.
Líf&Starf 15. janúar 2019

Lífslög Sigurðar dýralæknis

Sigurður Sigurðarson dýra­læknir hefur gefið út Lífslög Sigurðar dýralæknis sem inniheldur 60 sönglög á tveim geisladiskum sem hann hefur samið á 60 árum, eða frá 1958 til 2018. Textar fylgja lögunum og 43 þeirra eftir Sigurð sjálfan en aðrir eftir kunningja hans. 
 
Til liðs við sig hefur hann fengið 28 söngvara, þar á meðal Diddú, Bergþór Pálsson og grunnskólabörn. Þá eru á diskinum kvæðamenn og m.a. María Jónsdóttir á Kirkjulæk, sem varð 100 ára 15. apríl síðastliðinn. Þykja öll lögin á plötunni mjög falleg og tekið er til þess að þau séu líka sérlega söngvæn. 
 
Hópur kunningja og vina
 
„Flestir söngvararnir á plötunni eru kunningjar mínir eða í ætt við mig,“ sagði Sigurður í samtali við Bændablaðið. „Ég hef notað mér það óspart.“
 
Landslið söngvara
 
Um sönginn á plötunum sér eftirfarandi listafólk: 
  • Hörpukórinn á Selfossi með einsöngvurum undir stjórn Guðmundar Eiríkssonar syngur 3 laganna, Eldeyjarkórinn undir stjórn Arnórs Vilbergssonar með einsöng flytur eitt lag og Álftagerðisbræður eitt lag undir stjórn Stefáns R. Gíslasonar. 
  • Alþekktir og minna þekktir söngvarar, alls 28, syngja 1–3 lög hver. 
  • Yngstu söngvarar eru grunn­skólanemar, 11 og 12 ára, og þeir elstu kvæðakonur, önnur nær því 100 ára og hin rúmlega 100 ára. 
  • Hér er saman komið landslið söngvara. Þeir eru flestir úr hópi ættingja, fornvina eða kunningja Sigurðar. Stemmur eða kvæðalög eru 4, einn sálmur. Kórlög eru 5. Hitt eru einsöngslög.
 
Landslið söngvara: 
  • Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir grunnskólanemi, Lambhaga Rangárvöllum. 
  • Ragnar Bjarnason – tónlistarmaður, Ferjuvaði 7 í Reykjavík. 
  • Hjördís Geirsdóttir, söngvari og fjörkona frá Byggðarhorni í Flóa. 
  • Álftagerðisbræður, Sigfús, Gísli, Pétur og Óskar. 
  • Ingimar Halldórsson frá Akranesi, trésmiður og kvæðamaður, Reykjavík. 
  • Egill Árni Pálsson, söngvari og söngkennari, Reykjavík.
  • Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiður og kvæðamaður, Reykjavík. 
  • Jón Hólm Stefánsson, bóndi og fasteignasali, Gljúfri, Ölfusi.
  • Gunnar Örn Guðmundsson dýralæknir, Hvanneyri. 
  • Marta Kristín Friðriksdóttir úr Reykjavík, söngnemi í Vín.
  • Signý Ólöf Stefánsdóttir skólanemi, Gili, Ölfusi.
  • Sigrún Hjálmtýsdóttir óperusöngkona, Túnfæti, Mosfellsbæ.
  • Gísli Stefánsson söngvari, Selfossi. 
  • Ragnheiður Ólafsdóttir, tónlistarkennari og kvæðakona, Álftanesi.
  • Þuríður Sigurðardóttir söng- og listakona frá Laugarnesi. 
  • Óskar Pétursson frá Álftagerði, söngvari og bifvélvirki, Akureyri.
  • Þórður Brynjarsson menntaskólanemi, Refsstöðum Borg. 
  • Viktor Kári Garðarsson grunnskólanemi, Selfossi. 
  • Snorri Hjálmarsson bóndi, hestam. söngvari og hjálpari, S-Fossum, Borg.
  • Sigurður Torfi Guðmundsson, Garðabæ, dómvörður í Landsrétti.
  • Signý Sæmundsdóttir, söngvari og tónlistarkennari, Reykjavík.
  • Bergþór Pálsson óperusöngvari í Reykjavík.
  • Jón Magnús Jónsson, bóndi á Reykjum í Mosfellsbæ.
  • Gissur Páll Gissurarson óperusöngvari, Reykjavík. 
  • Steindór Andersen, sjómaður, kvæðamaður og smiður, Hafnarfirði.
  • Þór Sigurðsson, setjari og hestamaður Akureyri. 
  • María Jónsdóttir frá Kirkjulæk og Guðríður B. Helgadóttir frá Austurhlíð, listamenn báðar.
  • Oddur Jónsson óperusöngvari, Hæðarbyggð  5, Garðabæ.
Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...