Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Á sviðinu fæðast töfrarnir og eitt er víst að ævintýri Kardimommubæjarins er og verður öllum minnisstætt sem á það horfa og að því koma. Hér má sjá yngstu leikarana sem taka þátt og víst er að þau búi lengi að þeirri upplifun.
Á sviðinu fæðast töfrarnir og eitt er víst að ævintýri Kardimommubæjarins er og verður öllum minnisstætt sem á það horfa og að því koma. Hér má sjá yngstu leikarana sem taka þátt og víst er að þau búi lengi að þeirri upplifun.
Mynd / Aðsendar
Líf&Starf 1. febrúar 2022

Kardimommubærinn á fjalirnar í Eyjafjarðarsveit

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Eins og áður hefur komið fram hér á síðum Bændablaðsins á Freyvangur sér langa sögu bæði samkomuhúss og leikhúss en það hefur iðað af lífi um árabil, eitt athafnamesta áhugaleikhús landsins.

Samkvæmt dagblaðinu Degi árið 1957 er „Sjónleikurinn Ráðskona Bakkabræðra sýndur að Freyvangi, Öngulsstaðahreppi“ auk þess sem ónefnd hljómsveit lék þar að loknum sjónleik. Nokkrum árum síðar, eða snemma í apríl árið 1962, funduðu áhugamenn í samkomuhúsinu með það fyrir augum að stofna leikfélag í Öngulsstaðahreppi sem síðar var nefnt Freyvangsleikhúsið. Yfir árin hefur leikfélagið fjórum sinnum hlotið þann heiður að sýning þeirra er valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin; Kvennaskólaævintýrið 1995, Velkomin í Villta vestrið 1998, Vínland 2009 og Góði dátinn Svejk árið 2011.

Þessa dagana standa leikarar Freyvangs í æfingum fyrir sýningu verksins ástsæla sem allir þekkja, Kardimommubæjarins, undir stjórn leikstjórans Ólafs Jens Sigurðssonar. Ólafur hefur leikstýrt félagsmönnum áður með miklum ágætum og var m.a. leikstjóri verksins Vínlands er fór á fjalir Þjóðleikhússins við mikið lof – kröftugur og litríkur söngleikur, saminn af Helga Þórissyni, sem nú er í hlutverki Kaspers, eins ræningjanna og bræðranna þriggja, Kaspers, Jespers og Jónatans.

Til gamans má geta að bræður Helga, Ingólfur og Bergsveinn Þórissynir, leika þá Jesper og Jónatan, en eins og flestir vita ógna þeir þremenningar bæjarbúum í fylgd ljónsins síns sísvanga – sem elskar mjólkursúkkulaði.
Önnur ógn bæjarins, hin ráðríka og skapstygga Soffía frænka, fléttast inn í líf þeirra er þeir ákveða að ræna henni til þess að sjá um húsverkin fyrir sig ... sem kemur svo í ljós að er frekar vanhugsað hjá þeim.

Kardimommubærinn er þó yndislegur bær þar sem margar skemmtilegar persónur stinga upp kollinum, en söguna og söngvana samdi Thorbjörn Egner (12. des. 1912–24. des. 1990) norskur rit­höfundur, leikskáld, myndskreytir og tónskáld auk þess sem hann hannaði búninga og leikmyndir við eigin leikrit.

Alls eru þeir sem koma að verkinu ríflega fimmtíu talsins, bæði börn og fullorðnir, og því nóg um að vera, enda iðar Kardimommubærinn ávallt af lífi. Stefnt er á að sýningarhald hefjist um mánaðamótin febrúar/mars, að öllu óbreyttu

Skylt efni: Áhugaleikhús | Freyvangur

Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri
Fréttir 14. mars 2026

Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri

Dagana 16.-17. mars næstkomandi verður nýsköpunarvinnustofa í Landbúnaðarháskóla...

Fólk fylgir ekki næringarráðleggingum
Fréttir 13. mars 2026

Fólk fylgir ekki næringarráðleggingum

Offita er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Danir fylgja ekki opinberum næ...

Ostur er ostur
Fréttir 13. mars 2026

Ostur er ostur

Í gær vísaði Landsréttur máli Danóls ehf. gegn ríkinu vegna tollflokkunar á pizz...

Tæp 60% hafa aðgang að afleysingu
Fréttir 13. mars 2026

Tæp 60% hafa aðgang að afleysingu

Um 57% bænda í Bændasamtökum Íslands hafa aðgang að afleysingafólki samkvæmt kön...

Beðið eftir stefnumótun fyrir garðyrkjunám á Íslandi
Fréttir 12. mars 2026

Beðið eftir stefnumótun fyrir garðyrkjunám á Íslandi

Enn er beðið eftir pólitískri stefnumótun um málefni garðyrkjunáms á Íslandi, en...

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum
Fréttir 12. mars 2026

Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum

Í undirbúningi er átak í endurheimt votlendis á ríkisjörðum í umsjón Lands og sk...

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði
Fréttir 12. mars 2026

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði

Alls uppfylltu 47 kúabú skilyrði Auðhumlu um framleiðslu á úrvalsmjólk alla mánu...

Setja ætti niður samningsmarkmið
Fréttir 12. mars 2026

Setja ætti niður samningsmarkmið

Bændasamtök Íslands (BÍ) setja sig ekki upp á móti því að áframhald viðræðna við...