Daði Már telur skynsamlegt að RÚV fari af auglýsingamarkaði
„Ég auðvitað er þeirrar skoðunar að það væri skynsamlegt skref að taka,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, spurður hvers vegna ríkið taki ekki ábyrgð á rekstri RÚV og fjarlagi það af auglýsingamarkaði í viðtali við Útvarp Bændablaðið.
Daði Már bendir þó á að þegar hafi verið tekin skref í þessa átt og að fyrir liggi tillögur frá háskóla-, menningar- og nýsköpunarráðherra um að byrja að takmarka aðkomu Ríkisútvarpsins að auglýsingamarkaði.
Umræðan verði þó að ná lengra en til auglýsingateknanna einna.
„Það er auðvitað líka þannig, eins og þú veist, að það þarf ýmsar ákvarðanir að taka um heildarumsvif fjölmiðilsins. Ef þú ætlar að kippa undan einni tekjustoðinni þá þarftu alla vega að taka afstöðu til þess hvaða afleiðingar þú ætlar að láta það hafa.“
Hann segir umræðuna vera að hefjast og fagnar henni.
Almennt sé hann þeirrar skoðunar að ríkið eigi að fara mjög varlega inn á samkeppnismarkaði.
„Það er raunverulega í mínum huga fyrst og fremst þegar um er að ræða náttúruleg einokunarfyrirtæki sem er eðlilegt að þau séu rekin af ríkinu. Annars er ég mikill markaðstrúarmaður.“
Skattlagning samfélagsmiðla reynst erfið
Daði Már skilur vel sjónarmið íslenskra fjölmiðla sem vilja að stjórnvöld skattleggi auglýsingar á samfélagsmiðlum, líkt og ýmis önnur ríki hafa gert en segir málið stórt og flókið og.
„Auðvitað svíður okkur það að sjá þessa miðla geta raunverulega boðið sína vöru án eðlilegra gjalda sem aðrir bera.“
Erfiðara hafi hins vegar reynst að innheimta slíka skatta en að setja reglurnar.
Hann segir að þótt slík skattlagning hafi verið tekin upp erlendis hafi hann ekki séð miklar tekjur koma af henni.
„Mér finnst það nú svona pínu pólitískt ódýrt að setja á einhvern skatt. Ef hann skilar engum tekjum þá skil ég ekki að hann breyti neinu.“
Vandinn sé þó raunverulegur og tengist víðtækari breytingum á hagkerfinu, þar sem sífellt meiri neysla felist í þjónustu sem veitt sé af fáum erlendum stórfyrirtækjum.
„Þá erum við raunverulega komin í þá skringilegu stöðu að ekki einu sinni ríkin mega sín mikils gagnvart þessum aðilum. Það er ekki gott.“
Ráðherrann segist reiðubúinn að skoða betur þær leiðir sem farnar hafa verið annars staðar til að skattleggja staðbundnar auglýsingar alþjóðlegra samfélagsmiðla.
„Okkar greining á þessu hefur bent til þess að vissulega séu reglurnar til en tekjur ríkisins af því séu litlar.“
Hér má hlusta á þáttinn í heild sinni.
