Melsrétt í Hítardal, Mýrum. Skilarétt sem var síðast notuð árið 1991.
Melsrétt í Hítardal, Mýrum. Skilarétt sem var síðast notuð árið 1991.
Mynd / Anna Fjóla Gísladóttir
Menning 3. nóvember 2026

„Réttir eru mikilvægar minjar“

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Nýútkomin bók Önnu Fjólu Gísladóttur, Réttir á Íslandi, hefur að geyma ljósmyndir af um 700 réttum ásamt staðsetningu þeirra og heiti. Verkefnið hófst sem áhugamál en varð að endingu að tæplega 400 blaðsíðna bók.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á réttunum, fundist þessir hlöðnu veggir fallegir og spennandi,“ segir Anna, sem er ljósmyndari. „Þegar ég keypti mér dróna fyrir um fjórum árum ákvað ég að mynda rétt sem er hérna nálægt mér, Dælarétt. Ég setti drónann upp og byrjaði að mynda og þá gerðist eitthvað. Loksins gat ég myndað réttirnar þannig að þær skiluðu sér, sem hafði aldrei gengið vel frá jörðu.“

Mörg hundruð réttir

„Ég hugsaði að það væri gaman að mynda fleiri réttir og ég var í raun svo vitlaus að ég hélt að það væru ekki nema svona 150 réttir í landinu. Ég áttaði mig engan veginn á því hvað þær eru margar í raun,“ segir Anna. „Ég var ekki byrjuð að hugsa um bók á þessum tímapunkti, heldur var ég bara að skrá og mynda af áhuga. Þegar ég var komin með einhverjar 250 réttir þá fór ég að huga að því hvað ég gæti gert. Faðir minn, Gísli B. Björnsson, hefur verið mér mikill stuðningur og hvatti mig til þess að gefa þetta út sem bók.“

Anna notaði veturinn til að leita að réttum, skrá það sem hún fann, skoða kort og lesa byggðasögur. „Fyrst fór maður í bíltúra á Snæfellsnesið, Suðurlandið og Reykjanesið. Svo fór maður að færa sig lengra út á land, norður og vestur og á Austfirði og alltaf bættust við réttir.“

Hefur skráð yfir 1.000 réttir

„Þegar ég var að tala við bændur og heimamenn og spyrja út í réttirnar þá bættust alltaf fleiri við. Fólk sagði: já, það er önnur hér fyrir innan, þessi tók við af þessari, það eru leifar af annarri niður við á. Þannig hélt það áfram þar til ég var búin að skrá yfir 1.000 réttir.“ Auk þeirra 700 sem eru í bókinni er Anna með fleiri sem hún er búin að skrá en ekki finna og aðrar sem hún veit hvar eru en á eftir að mynda. „Ég veit alveg að ég er ekki búin að finna þær allar en ég sé þó ekki endilega fyrir mér að gera aðra bók þó ég ætli að halda áfram að leita.“

Okkar elstu minjar

Anna segir réttirnar með okkar elstu minjum. „Þetta eru mikilvægar minjar, þarna er arfur allt frá 1200, ég held meira að segja að elsta réttin sem er í bókinni sé frá um 1000, eftir því sem ég best veit. Ég get ekki staðfest það, ég er ekki fornleifafræðingur, en út frá heimildum, Íslendingasögum og öðru þá passar staðsetningin. Við eigum kannski enga kastala eða kastalarústir en við eigum allar þessar fallegu réttir. Það er eiginlega ótrúlegt að við séum ekki búin að kveikja á þessu.“

Hún segir að margar réttir séu eflaust alveg horfnar og segir hún að áhuginn hafi einnig legið í því að leita að einhverju sem enginn virtist hafa sinnt. „Það virðist enginn halda utan um þennan arf sem mér fannst alltaf verða merkilegri og merkilegri eftir því sem ég talaði við fleiri,“ segir Anna sem er enn að frétta af réttum.

Vitneskjan hjá fólkinu í landinu

„Þeir sem hjálpuðu mér var fólkið í landinu, það voru bændurnir og heimamennirnir sem gátu vísað mér veginn,“ segir Anna. „Þessi vitneskja er mest munnleg, það er ekkert mikið skrifað um réttir. Yfirleitt er bara tekið fram hvar réttin er staðsett og ekkert meira sagt.“

Það kom Önnu á óvart hversu lítinn áhuga minjastofnanir höfðu á verkefninu og hefur hún áhyggjur af því að réttirnar gleymist sem minjar með þessu viðmóti. Magnús Aðalsteinn Sigurðsson, minjavörður á Snæfellsnesi, var hjálplegur Önnu í verkefninu. „Magnús var eini minjavörðurinn sem svaraði mér. Hann sendi mér lista yfir þær réttir sem hann var með skráðar og ég sendi honum sömuleiðis þær réttir sem ég hafði fundið til viðbótar svo hann gat bætt þeim við hjá sér. Ég var til í samstarf við minjaverði en lítill áhugi var á því og ekkert varð úr samvinnu.“

Samfélagslegt fyrirbæri

„Fólk flettir alltaf strax upp sinni rétt í bókinni,“ segir Anna. „Réttin er svo samfélagslegt fyrirbæri, fólki þykir vænt um réttina sína og kallar hana sína, segir, réttin mín er ...“

Réttirnar segja einnig margar sögur. „Eins og þegar mæðiveikin kom þá þurfti að reisa rétt hvort sínum megin við ána því að svæði máttu ekki ganga saman og þess háttar. Það væri hægt að skoða enn betur hvernig staðsetningar og bygging rétta hefur þróast en kindin hefur skipt okkur alveg gríðarlegu máli hér á landi. Mér finnst dálítið sorglegt hvað það er lítill áhugi á menningartengdu landslagi og menningartengdum landbúnaði og er það ein ástæða þess að mér fannst mikilvægt að að setja saman þessa bók,“ segir Anna að lokum og vonar að fólk fari að sjá réttir sem menningararf.

Skylt efni: bókaútgáfa

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts
Líf og starf 3. nóvember 2026

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts

Í skjóli þess að vera undir feldi í haustveðrunum má velta ýmsu fyrir sér. Til a...

Frumsýning á Kvennaráð
Líf og starf 3. nóvember 2026

Frumsýning á Kvennaráð

Leikfélag Eyrarbakka frumsýnir leikritið Kvennaráð eftir leikskáldið og rithöfun...

Herdís Kolka stendur vaktina
Líf og starf 3. nóvember 2026

Herdís Kolka stendur vaktina

Ein er sú búð á landi hér sem er flestum búðum smærri, það er Djúpavíkurbúðin í ...

Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku: Er af grjót...

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...

Dagur sauðkindarinnar
Líf og starf 30. október 2026

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu fór fram 10. október síðastliðinn. Fjöl...

Grikk eða gott?
Líf og starf 29. október 2026

Grikk eða gott?

Í tilefni hrekkjavökudagins sem nú hefur hægt og sígandi fest sig í sessi hérlen...

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...