Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
Lesendarýni 13. janúar 2015

100 ár af kosningarétti

Höfundur: Auður Styrkársdóttir
Hinn 30. desember verður blásið í lúður og afmælisár boðið velkomið. Fluttur verður fyrirlestur Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem hún hélt einmitt þann dag árið 1887. Hann er oft talinn marka upphaf kvennabaráttunnar á Íslandi. 
 
Bríet Bjarnhéðinsdóttir. 
Margt hefur að sönnu breyst frá árinu 1887. Það hefur þó komið þeim sem undirbúa flutninginn á óvart hversu margt er enn óbreytt og ógert. Það er full ástæða til að leggja leið sína í Iðnó þann 30. desember kl. 16. Allir eru velkomnir (gegn vægu gjaldi), en húsrými er takmarkað. Missið ekki af þessum upptakti!
Á næsta ári verða liðin 100 ár frá því Kristján konungur X skrifaði undir lög frá Alþingi sem færðu konum kosningarétt til Alþingis, mjög takmarkaðan að vísu, en langþráðan. Þetta gerðist þann 19. júní 1915 og alla tíð síðan hefur sá dagur verið sérstakur kvenréttindadagur.
 
Þessa stórviðburðar verður minnst með margvíslegum hætti. Alþingi hefur samþykkt að láta um 100 milljónir rakna til afmælishaldsins. Sérstök framkvæmdanefnd, sem kjörin var á almennum kvennafundi í september 2013, hefur haft veg og vanda af að velja afmælisverkefni. Auk upptaktsins í Iðnó þann 30. desember eru verkefnin þessi:
 
1) Safnasýningar
Höfuðsöfn landsins munu setja upp sérstakar sýningar. Í Landsbókasafni opnar sýning 16. maí 2015 er fjallar um sögu og þróun kosningaréttarins. Í Listasafni Íslands opnar sýningin „Áhrifakonur í íslenskri myndlist“ þann 30. janúar, og sýning helguð Nínu Tryggvadóttur opnar 12. september. Þjóðminjasafnið heldur sýningu sem nefnist „Konur í 100 ár“ auk þess sem farið verður yfir grunnsýningu safnsins með kynjagleraugum.
 
2) Hátíðahöld á Austurvelli
Sérstakur hátíðaþingfundur verður í Alþingishúsinu fyrir hádegi 19. júní 2015. Húsið verður opið almenningi þennan dag og þar verður sérstök sýning með leiðsögn. Eftir hádegi verður efnt til almennrar hátíðar á Austurvelli. Meðal viðburða verða kvennatónleikar þar sem nokkrar af okkar fremstu tónlistarkonum munu koma fram.
 
3) Ráðstefna
Framkvæmdanefndin mun ásamt fleirum gangast fyrir alþjóðlegri ráðstefnu, sem tileinkuð verður kosningarétti kvenna, lýðræði og lýðréttindum. Hún verður haldin dagana 22.–23. október 2015. Meðal gesta verða Vigdís Finnbogadóttir, Gro Harlem Brundtland og Laura Ann Liswood.
 
4) Rit
Rannsóknarrit, helgað 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, mun koma út á árinu 2020, en þá fengu konur kosningarétt til jafns við karlmenn. Sögufélagi hefur verið falin umsjá ritsins.
 
5) Verkefnastyrkir
Stofnaður var sérstakur sjóður um styrki vegna verkefna sem tengjast markmiðum afmælisársins. Mikill fjöldi umsókna barst þegar styrkir voru auglýstir í október og var sótt um til margháttaðra verkefna um allt land sem sýna mikinn áhuga, metnað og hugmyndaauðgi. Úthlutun er nú lokið, en styrkir verða aftur auglýstir í febrúar.
 
Auk þessa má nefna að Íslandspóstur gefur út sérstakt amælisfrímerki þann 30. apríl 2015. Sinfóníuhljómsveit Íslands verður með tónleika þann 11. júní 2015 undir yfirskriftinni „Höfuðskáld og frumkvöðlar“ og á efnisskrá verða eingöngu verk eftir konur. Margt er enn í mótun víða um land, sem væntanlega verður greint frá síðar. 
 
Ég vil hér með hvetja alla skipuleggjendur til að tilkynna viðburði til afmælisnefndar sem heldur úti sérstakri upplýsingavefsíðu með viðburðadagatali: www.kosningarettur100ara.is. Þar er skráður nokkur fjöldi viðburða og bætist ört í hópinn. Það er fljótlegt og gott að geta nálgast alla viðburði á einum stað. Fylgist með frá byrjun!
 
Auður Styrkársdóttir.
Auður Styrkársdóttir
forstöðukona Kvennasögusafns Íslands og formaður framkvæmdanefndar um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
 
 
(Fyrirlestur Bríetar má nálgast á heimasíðunni www.baekur.is og slá þar inn nafn Bríetar).

2 myndir:

Skylt efni: Kvennasaga | kosningaréttur

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...