Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Í fyrrahaust var vígt nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn, „Hringur og kúla“ /“Orbis et Globus“, sem marga fýsir að sjá. Verkið er hönnun Kristins E. Hrafnssonar myndhöggvara og Studio Granda. Myndin tekin 20. júní í sumar, degi fyrir sumarsólstöður.
Í fyrrahaust var vígt nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn, „Hringur og kúla“ /“Orbis et Globus“, sem marga fýsir að sjá. Verkið er hönnun Kristins E. Hrafnssonar myndhöggvara og Studio Granda. Myndin tekin 20. júní í sumar, degi fyrir sumarsólstöður.
Mynd / María Helena Tryggvadóttir
Líf&Starf 5. september 2018

Vaxandi ferðaþjónusta á nyrsta byggða bóli landsins

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
„Fuglalífið, og þá sérstaklega lundarnir, miðnætursólin og heimskauts­baugurinn er það sem dregur flesta út í Grímsey. Grímsey er nyrsta byggða ból Íslands, eini staðurinn þar sem heimskauts­baugurinn sker landið og þar er að finna lítið og samheldið samfélag sem vekur forvitni gesta,“ segir María Helena Tryggvadóttir, verkefnastjóri ferðamála hjá Akureyrarstofu. 
 
Sveitarfélögin Grímsey og Akur­eyri sameinuðust árið 2009. Verulegur vöxtur hefur verið í ferðaþjónustu í Grímsey undanfarið, æ fleiri skemmtiferðaskip leggja leið sína þangað og farþegar þeirra skoða sig um á eyjunni á meðan staldrað er við, en að auki koma ferðalangar ýmist með áætlunarflugi eða ferju út í eyju.
 
Áhuginn vex
 
María Helena segir að Grímseyingar taki auknum straumi ferðafólks fagnandi og bjóði upp á nýja þjónustu og afþreyingu sem ekki var áður fyrir hendi.
 
„Við finnum það að áhugi bæði einstaklinga og ferðaskrifstofa á eyjunni í norðri hefur aukist til muna hin síðari ár. Fyrirspurnir eru talsvert fleiri en áður hefur verið. Þessi áhugi fer heldur ekki framhjá heimamönnum sem verða varir við síaukinn áhuga umheimsins á þeirra heimkynnum,“ segir hún.
 
Fleiri skemmtiferðaskip
 
Nú í sumar boðuðu alls 33 skemmtiferðaskip komu sína til Grímseyjar, mun fleiri en áður, sem dæmi komu 11 slík skip þangað árið 2016. Flogið er til Grímseyjar þrisvar í viku yfir veturinn en daglega yfir hásumarið. Flugfarþegum hefur þó fækkað, sem María Helena segir að rekja megi til þess að dregið hafi verið úr framboði á flugi hluta úr sumri, það sé slæmt í ljósi hins vaxandi áhuga ferðafólks á að komast þangað. 
 
Áætlunarferja siglir til Grímseyjar allt árið, þrjár ferðir í viku yfir veturinn, en í fyrrasumar var bætt við ferðum og voru þá í boði fimm ferðir í viku og hefur svo einnig verið nú í sumar. „Farþegum með ferjunni hefur fjölgað um 1.500 manns undanfarin ár, eða á tímabilinu frá árinu 2015 til ársins 2017,“ segir hún og bætir við að til viðbótar bjóðist nú einnig útsýnisflug frá Akureyri til Grímseyjar með viðkomu í eyjunni.
 
Æ meiri afþreying í boði
 
María Helena segir að aukinn straumur ferðamanna hafi hleypt lífi í ferðaþjónustuna í Grímsey. Nefnir hún sem dæmi að hjólaleiga sé fyrir hendi, afþreyingarfyrirtækið Artic Trip bjóði upp á gönguferðir með leiðsögn, köfun með lunda, siglingar og ýmislegt fleira. Í boði eru einnig ferðir með gömlum Akureyrarstrætó sem mælst hafa vel fyrir meðal ferðalanga. Auk þessa eru í eyjunni veitingastaðurinn Krían, verslun, gjafavöruverslun og kaffihúsið Gullsól. Nýtt tjaldsvæði var opnað við sundlaugina en einnig eru gistiheimili fyrir hendi í eynni. Allar upplýsingar um afþreyingu og það sem hægt er að taka sér fyrir hendur í Grímsey er að finna á heimasíðunni www.grimsey.is. 
 
Nýtt kennileiti vekur athygli
 
Á liðnu hausti, 2017, var vígt nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn, „Hringur og kúla“ /“Orbis et Globus“,  sem marga fýsir að sjá. Því til viðbótar voru settir upp þrír aldamótasteinar til að merkja staðsetningu baugsins þegar hann fyrst kom inn á Grímsey árið 1717, annar steinn gefur til kynna hvar baugurinn lá árið 1817 og sá þriðji árið 1917. Nýja kennileitið verður fært reglulega til að gefa til kynna staðsetningu heimskautsbaugsins hverju sinni. Verkið var fært í fyrsta sinn í byrjun sumars á hátíðinni Sumarsólstöður sem efnt var til í júní síðastliðnum. 

13 myndir:

Skylt efni: Grímsey | ferðaþjónsta

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!
Líf&Starf 19. apríl 2022

Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!

Nú hefur leikfélag Hólmavíkur sett upp farsann Bót og betrun eftir Michael Coone...

Ef væri ég gullfiskur!
Líf&Starf 28. mars 2022

Ef væri ég gullfiskur!

Spéfarsinn „Ef væri ég gullfiskur“ eftir Árna Ibsen, í flutningi leikfélags Umf....

Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði
Líf&Starf 16. mars 2022

Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði

Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði frumsýndi leikritið „Ekki um ykkur” eftir Gun...

Verndarar láðs & lagar
Líf&Starf 14. mars 2022

Verndarar láðs & lagar

Þegar verndarar láðs og lagar ber á góma er gaman að rekast á þá þar sem maður á...

Flestir gullsmiðir voru bændur
Líf&Starf 28. febrúar 2022

Flestir gullsmiðir voru bændur

Árið 2011 hlaut Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður þakkarviðurkenningu FKA – Fé...

Hann á það skilið? Á hann það skilið?
Líf&Starf 2. febrúar 2022

Hann á það skilið? Á hann það skilið?

Í kaflanum „Misseristalið og tildrög þess“ eftir Þorkel Þorkelsson, í 1. tbl. Sk...