Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Efst á baugi hjá kúabændum
Á faglegum nótum 9. desember 2021

Efst á baugi hjá kúabændum

Höfundur: Herdís Magna Gunnarsdóttir, formaður kúabænda

Umhverfismál, afurðaverð og búgreinaþing voru þau mál sem brunnu helst á bændum á haustfundum kúabændadeildar BÍ sem haldnir voru í liðinni viku. Fundirnir voru 4 talsins og mættu rúmlega 100 bændur til að hlýða á og taka þátt í umræðum. Enn þurfum við að notast við fjarfundarbúnað og þó það sé farið að venjast vel þá kemur slíkt fundarhald aldrei í stað þess að hittast í persónu, en fundirnir gengu vel og mátti greina keimlíkar áherslur bænda um allt land.

Framleiðsla og sala

Líkt og venja er var farið yfir framleiðslu og sölu mjólkur og nautakjöts. Innvigtun mjólkur undanfarna 12 mánuði stendur í 148,5 milljónum lítra og framleiðsluspá gerir ráð fyrir að árið 2021 endi í 149,1 milljón lítra, sem yrði samdráttur um 1,4% frá árinu 2020.

Greiðslumark hefur haldist óbreytt í 145 milljónum lítra nú í nokkur ár og var rætt um möguleika til að stækka kökuna. Úr ferðaþjónustugeiranum hefur heyrst að það muni taka nokkur ár að ná upp þeim ferðamannafjölda sem við vorum að sjá þegar mest var og því byggist stækkun markaðarins um þessar mundir fyrst og fremst á fjölgun Íslendinga. Vonandi förum við að sjá fjölgun ferðamanna með tilheyrandi aukningu á neyslu innan skamms.

Þann 1. desember mun svo lágmarksverð til bænda hækka um 3,38%, úr 101,53 kr./ltr. í 104,96 kr./ltr. og er verðhækkunin til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun 1. apríl 2021.

Framleiðsla á nautakjöti hefur aukist um 5% sl. 12 mánuði og er nú um 4.875 tonn. Þrátt fyrir að sala hafi einnig aukist um 5% og að bændur séu að skila inn betri og þyngri gripum, hefur afurðaverð til bænda lækkað og töluverð umræða var um að bændur væru fyrir nokkru komnir að þolmörkum hvað það varðar. Líkt og nýleg skýrsla RML um rekstrarafkomu nautakjötsframleiðenda sýndi þá var afurðaverð komið undir framleiðslukostnað árið 2019 og hefur lækkað síðan þá. Það er því ljóst að þar þarf að bregðast hratt við ef halda á í framleiðsluvilja bænda til lengri tíma.

Hækkun aðfanga

Það hefur ekki farið fram hjá bændum frekar en öðrum að verulegt hökt hefur komið í aðfangakeðju heimsins vegna heimsfaraldurs. Þetta hefur áhrif á verð og framboð á mikilvægum aðföngum til innlendrar matvælaframleiðslu s.s. olíu, kjarnfóðri og áburði. Við höfum séð Noreg bregðast við vandanum með því að auka stuðning við landbúnað og sænsku bændasamtökin benda á að við stöndum með annan fótinn í miðri loftslagskreppu á meðan við erum á leið í alþjóðlega matvælakreppu. Stjórnvöld þar í landi verði því að auka stuðning við bændur til þess að gera þeim kleift að framleiða áfram úrvals matvæli fyrir landa sína án þess að of mikill kostnaður falli á neytendur.

Áherslur okkar hljóta að vera þær sömu. Til þess að svo megi verða þarf að tryggja bændum viðunandi starfsskilyrði og afkomu án þess að verð til neytenda fari upp úr öllu valdi. Liðsmenn BÍ hafa fylgst vel með málum og leggja áherslu á að eiga náið samband við stjórnvöld í þessum málum sem öðrum.

Loftslagsaðgerðir í hendur bænda

Umhverfismál af ýmsum toga voru bændum einnig ofarlega í huga. Fyrir liggur að bæta á í fjármagn til loftslagstengdra aðgerða í landbúnaði á næstu árum og var samhljómur um að því væri best varið í beinar aðgerðir á búum, t.a.m. í gegnum verkefnin Loftslagsvænan landbúnað og Kolefnisbrúna. Það var áhugavert að heyra frá bændum sem nú þegar eru þátttakendur í Loftslagsvænum landbúnaði og deildu reynslu sinni, sem er jákvæð og áhrifamikil og hvöttu þeir aðra bændur til að sækja um í verkefnið í framtíðinni.

Árið 2020 var gefin út aðgerðaáætlun um loftslagsmál í nautgriparækt þar sem lagt var upp með 7 verkefni sem lagt var til að ráðist yrði í nú þegar og þeim lokið fyrir árslok 2022. Nú þegar eru 5 af þeim 7 aðgerðum lokið eða komnar vel á veg. Þar á meðal eru kaup á búnaði til að styðja við rannsóknir á metanlosun íslenskra nautgripa, en hann ætti að koma til landsins í marsmánuði nk. og verður staðsettur í kennslufjósinu á Hvanneyri. Þá er RML að vinna stöðumat varðandi geymslugetu og gerð hauggeymslna, en það er mikilvægt fyrir okkur að vita hver staðan er þar, enda leynast þar líklega mikil tækifæri til að gera betur.

Bændur ósáttir með sjálfbærnireglugerð

Drög að sjálfbærnireglugerð, sem kynnt voru á samráðsgátt stjórnvalda fyrr í haust, voru áberandi í umræðum og ljóst að bændur eru áhyggjufullir yfir þeirri stefnu sem þar birtist. Miðað við drögin yrðu nýtingarmöguleikar margra jarða skertir til muna og framleiðslukostnaður búvara gæti hækkað nokkuð. Nú hafa fjölmargar umsóknir borist frá bændum til viðbótar við umsögn Bændasamtaka Íslands og fleiri og næstu skref eru þau að ráðuneytið tekur reglugerðina aftur til skoðunar með hliðsjón af þeim umsögnum. BÍ mun funda með nýjum ráðherrum þegar þeir eru komnir í sín ráðuneyti og er reglugerðin hluti af áhersluatriðum okkar þegar kemur að því samtali.

Erfðamengisúrval

Fyrirhugað er að hefja DNA-sýnatöku úr öllum kvígum um næstu áramót og verður sýnatakan í höndum bænda sjálfra. RML er að útbúa leiðbeiningarmyndband fyrir bændur og verða kassar undir sýnatökuglösin send á alla mjólkurframleiðendur á næstu vikum. Við minnum bændur á að hinkra með að panta kálfamerki eða halda pöntunum í lágmarki þar sem ný merki munu koma innan skamms, en sýnatakan mun fara fram um leið og merkið er sett í kálfinn sem kallar á aðra gerð merkja. Fyrst um sinn er það ekki skylda að taka þátt í verkefninu en við hvetjum bændur til þess, enda verður sameiginlegur ávinningur okkar meiri eftir því sem þátttakan er meiri.

Búgreinaþing

Búgreinaþing er helsta samkoma kúabænda og kemur í stað aðalfunda LK. Þar verða mál sem snúa að greininni lögð fram og afgreidd, kosið í stjórn og búnaðarþingsfulltrúa greinarinnar. Stefnt er á að búgreinaþingið verði haldið í byrjun mars og mun fjöldi fulltrúa vera svipaður og hefur verið á aðalfundum LK, eða um 30 manns. Tryggja skal landfræðilega dreifingu fulltrúa og munu kjördeildir miðast að miklu leyti við félagssvæði gömlu aðildarfélaga LK. Fyrirkomulagið er í vinnslu hjá stjórn deildarinnar og verður kynnt nánar þegar nær dregur. Skráning kúabænda í BÍ hefur gengið með ágætum en við hvetjum ykkur sem eigið eftir að skrá veltuna að gera það hið fyrsta inni á Bændatorgi, þar sem fulltrúafjöldi kúabænda inn á Búnaðarþing mun taka mið af fjölda félagsmanna.

Með félagskveðju,
Herdís Magna Gunnarsdóttir, formaður kúabænda

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...